Fréttablaðið - 28.07.2007, Blaðsíða 26
Önnur kynslóð TT tekur fyrir-
rennara sínum langt fram.
Haldið er í hönnunina sem
komst í sögubækurnar og búið er
að bæta aksturseiginleikana.
Þegar Audi TT kom á markað árið
1998 olli hann ákveðnum straum-
hvörfum. Hönnunin þótti framúr-
stefnuleg, djörf og áhættusöm og
ekki til þess fallin að falla í kramið
hjá almenningi. Það hlakkaði í
öðrum framleiðendum sem ætluðu
sér nú að horfa upp á hrakfarir
keppinautarins.
Til að gera langa sögu stutta gleypti
markaðurinn við TT. Bíllinn setti ný
viðmið í hönnun og Audi, sem hing-
að til hafði staðið í skugga þýsku
risanna BMW, Benz og Porsche
Audi, var skyndilega orðið leiðandi
með hönnun sinni.
Eins vel og TT leit út var álíka
gott að keyra hann og mjólkurbíl.
Bíllinn var óstöðugur, svo óstöðug-
ur reyndar að kalla þurfti hann inn
áramótin 1999/2000. Reynt var að
laga þessi vandamál með vindskeið-
um og stífari fjöðrun en allt kom
fyrir ekki. Bíllinn var ennþá lélegur
akstursbíll.
Allt þetta er nú breytt. Nýja kyn-
slóðin af TT er búin öllum þeim
kostum sem prýddu fyrirrennara
sinn á meðan búið er að sníða alla
helstu vankantana af. TT er nú
stærri og rúmbetri en þrátt fyrir
það léttari (vegna þess að nú er
notað mun meira ál í bílinn), fjöðr-
unin er stífari (sem þýðir að bíllinn
svarar vel þegar beygt er í stað þess
að stýrinu sé snúið, bíllinn hugsi sig
um, bíði eftir samþykkt frá Evrópu-
sambandinu og beygi svo) og búið
er að uppfæra útlitið og gera bílinn
grimmari.
Tveggja lítra forþjöppuvélin,
sem kemur beint úr Golf GTI, skil-
ar skemmtilega hráu afli og DSG-
skiptingin, tvöfalda skiptingin sem
Audi kallar S-tronic, er einfaldlega
ein besta sjálfskiptingin sem fáan-
leg er á almennum markaði í dag.
TT er hinsvegar ekki gallalaus.
Hvers vegna ákveðið var að halda í
aftursætin er ráðgáta. Plássið er
svo lítið að sætin gagnast engum
nema smábörnum, dvergum, fóta-
lausu fólki og þeim sem hafa ekkert
höfuð. Sætin eru í rauninni ekkert
annað en hilla og hefði plássinu
verið betur varið í að stækka skott-
ið, sem reyndar er furðu rúmgott
fyrir miðað við tveggja sæta,
afsakið, fjögurra sæta bíl.
Audi TT er gott dæmi um hvernig
kynslóðaskipti bíla geta skipt sköp-
um. Búið er að laga það sem laga
þurfti, bæta tæknilegu hliðina, end-
urnýja útlitið og gera hann rúm-
betri en um leið léttari. Enn ein
fjöðurin í hattinn hjá Audi sem virð-
ist ætla að bæta sig með hverju
árinu sem líður.
Batnandi bíl er best að keyra
SMUR- BÓN OG DEKKJAÞJÓNUSTAN
SÆTÚNI 4 • SÍMI 562 6066
SUMARDEKK
HEILSÁRSDEKK
OLÍS SMURSTÖÐ
BÓN OG ÞVOTTUR
HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
RAGEYMAÞJÓNUSTA
BREMSUKLOSSAR
PÚSTÞJÓNUSTA
Auglýsingasími
– Mest lesið