Fréttablaðið - 28.07.2007, Blaðsíða 11
Fyrstu sex mánuði
ársins 2005 stöðvaði lögreglan
10.735 ökumenn fyrir of hraðan
akstur. Á sama tímabili í fyrra
voru ökumennirnir orðnir 14.858
sem er tæplega fjörutíu prósenta
aukning. Í ár voru brotin 16.735
fyrstu sex mánuði ársins. Aukning
upp á tæp þrettán prósent.
„Aukið fjármagn til umferðar-
eftirlits er meðal ástæðna fyrir
þessu,“ segir Jónína Sigurðardótt-
ir aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá
Ríkislögreglustjóra. Fyrstu sex
mánuði þessa árs voru tvöfalt
fleiri ökumenn stöðvaðir fyrir of
hraðan akstur en árið 2005 þegar
samningur á milli samgönguráðu-
neytis, ríkislögreglustjóra,
Umferðarstofu og Vegagerðarinn-
ar tók gildi. Samningurinn gerði
lögregluembættum kleift að auka
umferðareftirlit og bæta við sig
búnaði. Samgönguráðuneytið
greiðir fyrir þennan auka kostnað.
Í febrúar síðastliðnum var samn-
ingurinn endurnýjaður.
Sektir vegna allra umferðar-
lagabrota á síðasta ári voru rúm-
lega 33 þúsund. Tæplega 3.400
þeirra fóru til dómsmeðferðar.
Ekki hefur verið lokið við og tekin
ákvörðun um 720 sektarboð frá
síðasta ári.
Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 • www.ellingsen.is
Tryggvabraut 1–3, Akureyri • Sími 460 3630
Afgreiðslutími
Mánudaga–föstudaga 8–18,
laugardaga 10–16
og sunnudaga 12–16
(ath. lokað sunnudaga á Akureyri)
Í dag, 28. júlí kl. 10:00 efnir
Orkuveita Reykjavíkur til
fræðslugöngu frá Minjasafn-
inu í Elliðaárdal, upp dalinn
að Gvendarbrunnum. Meðal
annars verður hugað að ánni,
örnefnum, jarðfræði, gróðri og dýralífi.
Fjölmargir fræðimenn koma til leið-
sagnar. Gengnir verða um 12 km en
boðið verður upp á akstur til baka um kl
16:00. Þátttakendur þurfa ekki að
koma nestaðir.
• Orkuveita Reykjavíkur rekur stærstu jarðvarmaveitu í heimi. www.or.is
Fræðsluganga
um Elliðaárdal
og upp að
Gvendar-
brunnum
ÍS
LE
N
SK
A
SI
A.
IS
I
C
E
3
80
05
0
6.
20
07