Fréttablaðið - 28.07.2007, Blaðsíða 25
Ferðamannabólusetningar
og ráðgjöf
tímapantanir í síma: 535-7700
Læknasetrið Mjódd, Þönglabakka 1
www.ferdavernd.is ferdavernd@ferdavernd.is
ferðavernd
Sigurbergur Kristjánsson er einlægur aðdáandi
ítölsku Ducati-hjólanna.
„Ég fékk áhuga á mótorhjólum þegar ég var þrettán ára
og hef verið forfallinn Ducati-áhugamaður í nákvæm-
lega fjörutíu ár. Eldri bróðir minn var á kafi í mótorhjól-
um og smitaði mig af þessari bakteríu,“ segir Sigur-
bergur Kristjánsson, mótorhjólaeigandi og meðlimur í
félagi Ducati-eigenda á Íslandi.
Fyrstu hjólin hans Sigurbergs voru skellinöðrur sem
síðan breyttust í stærri hjól og þá helst Ducati. „Ég hef
átt hjól nánast óslitið síðan ég var þrettán ára. Nema á
baslárunum þegar maður var að byggja þá gat maður
ekki leyft sér það. Nú á ég þrjú hjól og einn bíl,“ segir
Sigurbergur sem á tvö sígild sýningarhjól árgerð 1974
og 1978 ásamt Ducati-draumahjólinu. „Ég keypti Ducati-
hjólið á Íslandi í fyrra og lét upp í annað sem ég hafði
flutt inn erlendis frá þremur árum áður. Nýja hjólið er
árgerð 2007, GT 1000-retró útgáfa af Ducati árgerð
1978, sem var GT 750,“ segir Sigurbergur.
Hann hefur ferðast gífurlega mikið á hjóli, bæði
erlendis og hérlendis og margoft keyrt hringinn með
fjölskylduna aftan á. „Ég á þrjá krakka og hef farið með
þau öll hringinn svona um fermingu. Þetta voru æðis-
legar ferðir þar sem ég var bara einn með krökkunum á
hjólinu úti í náttúrunni. Síðan höfum ég og konan mín
ferðast mikið um Ísland, farið öll Norðurlöndin og nú
síðast þjóðveg 66 frá Chicago til Santa Monica í Banda-
ríkjunum,“ segir Sigurbergur sem segist þó nota hjólið
æ minna dags daglega.
„Umferðin hefur breyst svo mikið í Reykjavík. Hún
er orðin þyngri og maður er mest keyrandi á milli ljósa.
Í þau skipti sem ég fer á því í vinnuna nota ég tækifærið
og fer lengri leiðina um Seltjarnarnes og Heiðmörk
heim í Grafarvoginn,“ segir Sigurbergur sem segist
taka eftir auknum áhuga á mótorhjólum á Íslandi.
„Ég held að aukið fjármagn í landinu sé ein af ástæð-
um fyrir aukinni mótorhjólaeign landsmanna. Síðan eru
margir sem ég þekki að láta gamlan draum rætast á efri
árum. Þar hef ég rekist á marga sem eru að kaupa svo-
kölluð hippahjól en það er ekkert fyrir mig,“ segir Sig-
urbergur.
Smitaður af Ducati-áhuga