Fréttablaðið - 28.07.2007, Qupperneq 16
B
jörgólfur er
langflottast-
ur, bæði
duglegur og
áræðinn,“
segir athafnamaðurinn
Magnús Kristinsson um
Björgólf Thor Björgólfs-
son, umsvifamesta
útrásarvíking þjóðarinn-
ar. Þeir hafa bæði tekist
á og unnið saman að
góðum málum í íslensku
viðskiptalífi og af þeim
vettvangi þekkir
Magnús Björgólf. „Hann
stendur sig óskaplega
vel í öllu sínum viðskipt-
um og fáir náð öðrum
eins árangri.“
Ekki er það ofsagt hjá
Magnúsi að Björgólfur
Thor hafi staðið sig vel
því hann er meðal
ríkustu manna heims og
fer enn mikinn í við-
skiptalífinu, en úti í
hinum stóra heimi er
hann gjarnan kallaður
Thor Björgólfsson. Hann
er fyrsti Íslendingurinn
sem komst á lista Forbes
Magazine yfir 500 ríkustu
menn heims, datt inn í
488. sæti snemma árs
2005. Á þessu ári stökk
hann upp um hundrað
sæti milli ára og er í 249.
sæti. Á sama tíma er hann
í 23. sæti á lista Sunday
Times yfir ríkustu menn
Bretlands, en þar er hann
búsettur. Má búast við að
Björgólfur taki enn stökk
á þessum listum þegar
þeir verða næst teknir
saman því þegar þeir
voru gerðir fyrr á árinu
voru eignir hans metnar á
rétt rúma 250 milljarða
króna. Síðan seldi hann
eignarhlut sinn í búlg-
arska fjarskiptafélaginu
BTC með 60 milljarða
króna hagnaði, hefur
tekið yfir Actavis að fullu
og er virkur í fjölda
fjárfestinga. Eftir söluna
á BTC voru hreinar
eignir Björgólfs taldar
liggja í kring um 315
milljarða króna.
Þegar beðið er um
persónulýsingu á
Björgólfi segja þeir sem
þekkja hann úr viðskipt-
um að þar fari afskap-
lega ákveðinn og
áræðinn maður, töffari.
„Það fer ekki hver sem
er í fötin hans Björgólfs.
Hann er svo áræðinn og
fljótur að greina hismið
frá kjarnanum til að
komast að niðurstöðu.“
Hann er sagður vinna
bæði hratt og vel og vera
mjög skipulagður í öllum
sínum störfum.
Björgólfur er hins
vegar passasamur þegar
kemur að einkalífinu og
leggur þó nokkuð upp úr
því að halda því fyrir
sig. Kristín Ólafs
kvikmyndagerðarmaður, kona Björgólfs, lýsti því í
viðtali við Fréttablaðið í ársbyrjun 2005 að það
hefði verið þeim báðum erfitt þegar áhugi fjöl-
miðla á þeim vaknaði fyrir alvöru. „Sérstaklega
Bjögga sem vill halda einkalífi sínu út af fyrir sig,“
sagði hún, en þau Björgólfur kynntust í byrjun
tíunda áratugarins þegar hún var aðeins átján ára
gömul. Á þeim tíma var Björgólfur í námi í New
York, þaðan sem hann útskrifaðist árið 1991 frá
New York University. Þar bjuggu þau saman í um
hálft ár, en Björgólfur starfaði hjá fjármálafyrir-
tækjum á Wall Street. Björgólfur kom svo heim til
Íslands um skeið og gerðist markaðsstjóri hjá
Pharmaco og í drykkjarvörunum hjá Sanitas. Á
þessum tíma er Björgólfur til dæmis sagður hafa
staðið fyrir fyrstu oktoberfest-hátíðinni hér á
landi, en fagnaðurinn var á Rauða ljóninu á
Eiðsgranda. Fljótlega lá leiðin hins vegar til
útlanda þar sem hann með föður sínum stofnaði
Bravo Brewery í Sankti-Pétursborg í Rússlandi
árið 1993. Þar úti var Kristín vitanlega mikið með
honum, bæði fyrir og eftir eigið meistaranám í
Bretlandi. Núna búa þau í Lundúnum, en Björgólf-
ur var yfir áratug í Sankti-Pétursborg. Þannig var
það til dæmis ekki
fyrr en vorið 2006
sem hann lét af
störfum sem
kjörræðismaður
þar. Í Rússlandi má
hins vegar segja að
grunnurinn að
auðæfum Björgólfs
hafi verið lagður, en
gosdrykkja- og
bjórframleiðsla þar
undir merkjum
Bravo skilaði
honum, Björgólfi
föður hans og
Magnúsi Þorsteins-
syni um 40 milljörð-
um króna þegar
reksturinn og
vörumerki var selt
til Heineken árið
2002. Þegar þeir
feðgar sneru aftur
heim keyptu þeir
tæplega helmings-
hlut í Landsbankan-
um fyrir um ellefu
milljarða króna.
Markaðsvirði
Landsbankans er nú
tæpir 440 milljarðar
króna. Þá eiga þeir
feðgar í fjárfesting-
arbankanum
Straumi og Novator
á nú Actavis að
fullu. Þá hafa
fjárfestingar í
Austur-Evrópu
skilað Björgólfi
miklu, sér í lagi í
fjarskiptageira,
bæði með sölunni á
BTC og svo að auki
salan í fyrra á
hlutnum í tékk-
neska símafyrir-
tækinu CRa sem
skilaði honum um
50 milljarða króna
hagnaði.
Björgólfur hefur
áhuga á íþróttum en
þá frekar á einstakl-
ingsíþróttum en
hópíþróttum. Hann
er með mótorhjóla-
dellu og svo hjólar
hann einnig á
fjallahjóli, er
„fjallahjólakappi“
eins og einn
viðmælandi orðaði
það. Þá skíðar hann
mikið og hefur
áhuga á siglingum.
Þannig hafa margir
málsmetandi menn
fengið að heim-
sækja skútuna The
Parsifal sem
Björgólfur á. Eins á
hann veglega
einkaþotu og
væntanlega ekki
vanþörf á þar sem
oft þarf að hendast
heimshorna á milli
til að sinna viðskipt-
um upp á tugi
milljarða.
Björgólfur Thor
er yngstur í hópi
fimm systkina.
Hann er tíu árum yngri en næstyngsta systkinið.
Hann er enda ekki sagður hafa skort athygli í
uppvextinum, með systur tíu og tólf árum eldri.
Helsti vinahópur Björgólfs er stundum kallaður
Verslóhópurinn en hann samanstendur af gömlum
skólafélögum. Þá eru nokkrir aðrir góðvinir sem
hann heldur sambandi við. Björgólfur, sem er mjög
oft upptekinn í vinnu, gefur sér engu að síður tíma
til að rækta vinskapinn og heldur mjög góðu
sambandi við vini sína. Tekur hann sér þá gjarnan
nokkurra daga frí og býður vinum sínum með í
ferðir, eða eitthvað slíkt. Með þeim hætti kveðst
Björgólfur bæta þeim upp fjarveru vegna vinnu
mestan annan part ársins.
Í dögunum sem Björgólfur tekur sér til þess að
sinna vinum sínum endurspeglast persónuleikaein-
kenni hans að sinna hlutum í skorpum. Þegar hann
fer í frí lokar hann sig af og sinnir sínum málum,
ástvinum, fjölskyldu og félögum. En þegar hann er
í vinnunni sinnir hann henni af fullum krafti. „Ekki
er að finna hálfkák í kringum neitt sem Björgólfur
tekur sér fyrir hendur,“ sagði viðmælandi. „Svo er
hann líka skemmtilegur, mikill orkubolti og frjór. Í
kring um hann er aldrei nein ládeyða.“
Öflugasti útrásarvíkingurinn