Fréttablaðið - 28.07.2007, Side 17
[Hlutabréf]
Hagnaður Skipta, móðurfélags
Símans og tengdra félaga, nam
rúmum 2,4 milljörðum króna á
fyrri helmingi árs. Sala fyrirtæk-
isins jókst um rétt tæpan þriðjung
sé miðað við
sama tímabil í
fyrra.
Skipti töpuðu
6,4 milljörðum
króna fyrstu sex
mánuði ársins
2006. Fram
kemur í tilkynn-
ingu að viðsnún-
ingurinn skýrist
að mestu leyti af
gengisþróun. Hluti skulda Símans
sé í erlendri mynt og hafi styrking
krónunnar skilað félaginu tæplega
tveggja milljarða króna hagnaði.
„Horfurnar í rekstri eru góðar
fyrir seinni hluta þessa árs og
undirbúningur fyrir skráningu
Skipta á markað fyrir lok þessa
árs stendur nú yfir,“ sagði Brynj-
ólfur Bjarnason forstjóri.
Viðsnúningur
hjá Skiptum
Sérfræðingar hjá Føroya Banka
spá Eik Banka miklum hagnaði á
árinu gangi hlutafélagaáform
SPRON eftir. Eik er stærsti stofn-
fjáreigandinn í SPRON með tæp-
lega tíu prósenta hlut.
Föroya Banki býst við að hagn-
aður Eik fyrir skatta verði um
einn milljarður danskra króna á
árinu, jafnvirði ellefu milljarða
króna, fari SPRON á markað.
Hlutur Eik í SPRON er bókfærð-
ur á um 2,7 milljarða króna en
markaðsverð hlutarins er 7,7
milljörðum meira.
Stjórnendur Eik búast við að
hagnaður ársins fyrir skatta
verði um 340 milljónir danskra
króna, um 3,8 milljarðar króna,
án uppfærslu eignarhluta í öðrum
fjármálafyrirtækjum, á borð við
SPRON.
Eik Banki á 7,7
milljarða inni
Úrvalsvísitalan lækkaði í gær um 1,32
prósent og endaði í 8.681 stigi. Vísitalan
lækkaði alls um 3,49 prósent í vikunni
sem er að líða. Tuttugu félög lækkuðu í
viðskiptum gærdagsins en á sama tíma
stóð aðeins eitt í stað, Alfesca. Bakka-
vör, Exista, FL Group, Landsbankinn og
Straumur-Burðarás lækkuðu um meira
en eitt prósent og Kaupþing um tæpt
prósent.
Krónan gaf jafnframt eftir og lækk-
aði um 0,68 prósent. Gengisvísitalan
stóð í 113,7 stigum við lokun markaða
og hefur því gefið talsvert eftir á síð-
ustu dögum eins og aðrar hávaxtamynt-
ir á borð við Kanadadal og ástralska og
nýsjálenska dalinn. Hins vegar hefur
lágvaxtamyntin japanska jenið sótt í sig
veðrið og hafði ekki verið sterkari gagn-
vart Bandaríkjadal í meira en þrjá mán-
uði í gær.
Hlutabréf á öðrum mörkuðum héldu
áfram að lækka eftir miklar lækkanir á
fimmtudaginn þegar helstu vísitölur
heims féllu um 2-3 prósent. Tengist
þetta ótta fjárfesta um minni aðgang að
lánsfé og væntingum um hækkandi
vexti. Uppgangur alþjóðlegra hluta-
bréfamarkaða hefur verið knúinn áfram
af samrunum og yfirtökum fyrirtækja
þar sem aðgengi að ódýru fjármagni
hefur verið fyrir hendi.
Hér á landi fylgja lækkanirnar upp-
gjörum nokkurra stærstu fyrirtækj-
anna í Kauphöllinni. Uppgjör Kaup-
þings og Existu voru framar væntingum.
Líklegt má telja að fjárfestar hafi grip-
ið tækifærið og innleyst hagnað eftir
miklar hækkanir á markaði það sem af
er ári.
Tuttugu félög lækkuðu í verði
Fasteignafélagið Stoðir, sem er í
eigu Baugs, hefur lagt fram bind-
andi yfirtökutilboð í danska fast-
eignafélagið Keops. Tilboðið
hljóðar upp á tuttugu og fjórar
danskar krónur á hlut, eða
19,231,39 nýja hluti í Stoðum á
hvern hlut.
Stjórn Keops sendi í gær frá
sér yfirlýsingu þar sem stjórnin
mælti með að hluthafar tækju
boði Stoða um greiðslu tuttugu og
fjögurra danskra króna fyrir
hvern hlut. Hins vegar taldi
stjórnin sig ekki í aðstöðu til að
mæla með tilboðinu um nýja hluti
í Stoðum fyrir hvern hlut í Keops,
vegna skorts á upplýsingum um
starfsemi félagsins.
Fram kemur á vefsíðu danska
viðskiptablaðsins Börsen að til
standi að skrá Stoðir á markað í
einhverri hinna norrænu OMX
kauphalla innan tíu mánaða.
Stoðir taka
Keops yfir
Auglýsingasími
– Mest lesið