Fréttablaðið - 28.07.2007, Side 24

Fréttablaðið - 28.07.2007, Side 24
„Þessi árás hafði mikil áhrif á líf okkar hér því hún var mjög hrika- leg og harkaleg,“ segir Sigurður Guðmundsson, landlæknir og Mal- avífari. Í maí síðastliðnum brutust vopnaðir ræningjar inn til sam- starfsmanns þeirra, Ársæls Krist- ófers Ársælssonar, sem býr um 200 metra frá húsi Sigurðar og Sigríðar í þorpinu Chirombo við Apaflóa í Malaví. Ræningjarnir bundu hann og kefluðu og stálu um einni millj- ón króna í peningum, raftækjum og rauðvínsbirgðum Ársæls. „Ræn- ingjarnir voru vopnaðir byssum og sveðjum. Þeir réðust á öryggis- verðina sem vöktuðu hús Ársæls, bundu þá og kefluðu og læstu inni á klósetti. Eftir það fóru þeir inn í svefnherbergi Ársæls og hótuðu honum með byssu. Þeir höfðu ekki hulið andlit sín og hélt Ársæll að þeir myndu skjóta hann svo að hann gæti ekki borið kennsl á þá aftur. Í staðinn bundu þeir hann líka og kefluðu og læstu hann inni. Örygg- isverðirnir náðu að kalla á hjálp og var búið að leysa þá alla þrjá eftir um klukkustund,“ segir Sigurður. „En þetta hörmulega rán breytt- ist í tragíkomedíu því þegar löggan var látin vita bað hún um að hún yrði sótt því hún á ekki bíl. Þegar lögreglumennirnir komu á staðinn þurfti að lána þeim blað og blýant svo þeir gætu tekið skýrslu af fórn- arlömbunum. Tveimur tímum eftir ránið bað löggan bílstjórann um far svo að þeir gætu sett upp vegar- tálma í nágrenninu. Svo þegar rann- sóknarlögreglan kom daginn eftir, þurfti auðvitað að taka myndir. Þeir áttu hins vegar enga myndavél og var ég því dubbaður upp sem lögg- uljósmyndari. Lögreglumennirnir báru sig voðalega vel og sögðust ætla að ná ræningjunum en það hefur ekki gerst enn því þeir voru örugglega komnir úr landi þegar rannsóknin hófst, og lifa nú kannski í vellystingum á kostnað stofnunar- innar í Mósambík eða Suður-Afr- íku,“ segir Sigurður og bætir því við að slík rán séu ekki algeng í Malaví sem sé frekar friðsælt land. Sigurður segir að þessi dæmi séu lýsandi fyrir þann almenna skort sem einkenni lífið í Malaví. „Skort- urinn hérna er mjög áberandi. Stundum kemur hann upp á bros- legan hátt eins og í þessum dæmum en almennt séð þá er hann grafal- varlegt mál, skortur á heilbrigðis- starfsfólki, lyfjum, menntuðu fólki, samgöngutækjum, höfnum og fleira og fleira,“ segir Sigurður. Hann segir að atvinnuleysi í land- inu sé um áttatíu prósent og að um 70 prósent af því sem komi inn í ríkiskassann sé fjármagn frá öðrum löndum. „Skatttekja í Malaví er því eftir þessu.“ Sigurður segir að ein af afleið- ingum þessa skorts sé að innviðir samfélagsins séu afar slæmir og því sé erfitt að halda úti grunnþjón- ustu á sviði heilbrigðismála, og að einn hjúkrunarfræðingur sé fyrir hverja fjörutíu þúsund íbúa og einn læknir fyrir hverja sextíu þúsund. „Á spítalanum okkar er til dæmis helmingi færra starfsfólk en á að vera samkvæmt malavískum kröf- um, sem ekki eru mjög háar,“ segir Sigurður. Ein af afleiðingum þessa mikla skorts er að ekki er hægt að veita fólki þá þjónustu sem það þarf. „Hér deyr fólk úr malaríu og heila- himnubólgu, sjúkdómum sem hægt er að meðhöndla, en við getum það ekki því okkur skortir aðstöðu til þess. Malaría hrjáir til dæmis tuttugu til þrjátíu prósent af fólkinu og eitt barn deyr á með- altali á dag úr sjúkdómnum hér á spítalanum hjá okkur. Svo man ég eftir barni sem dó úr heilahimnu- bólgu í nóvember eftir að hafa verið veikt heima hjá sér í viku áður en það fékk læknisaðstoð.“ „Það er sláandi að hér í Malaví eru lífslíkur undir 40 árum og eru dauðsföll vegna smitsjúkdóma eða barnsfæðinga allt of algeng. Með öðrum orðum, dauðsföll sem vel er hægt að koma í veg fyrir. Það er mjög erfitt að horfa upp á þetta og geta ekki gert meira til þess að hjálpa fólkinu,“ segir Sigurður. Sigurður segir að þau séu að reyna að efla þjónustuna við spít- alann á margs konar hátt, til dæmis að koma upp röntgendeild, skurðstofu og göngudeild fyrir HIV-smitaða, bjóða upp á tann- þjónustu og að byggja eldhús svo hægt sé að bjóða fólki sem liggur á spítalanum upp á mat. Hann segist horfa öðrum augum á vandamálin á Íslandi eftir að hafa dvalið í Malaví. „Hér erum við að glíma við vandamál sem kannski má kalla raunveruleg vandamál samanborið við lúxus- vandamál heima á Íslandi,“ segir Sigurður „Svo er það alnæmi, en um 15 pró- sent af fullorðnu fólki í Malaví er með HIV-veiruna. Þetta er ekki hátt prósentuhlutfall miðað við mörg önnur Afríkulönd, en það sem er verst hér er að tíðni alnæmis er ekki að lækka eins og víða annars staðar,“ segir Sigurður. Sigurður segir að kynlífshegðun- in hjá Malövum sé þannig að alnæmi eigi auðvelt með að breið- ast út. „Til dæmis eru ungur stúlk- ur innvígðar inn í samfélagið þegar þær komast á kynþroskaaldur. Þær þurfa þá að hafa samfarir við þrjá karlmenn í þorpinu. Annar siður er að konum sem missa börn, sem hafa verið getin utan hjónabands, er refsað með því að vera nauðgað af þremur karlmönnum: einn nauðgar henni vegna þess að hún svaf hjá utan hjónabands, annar vegna þess að hún eignaðist barn utan hjónabands og sá þriðji vegna þess að barnið dó. Þetta er vel þekkt í landinu þó að menn tali ekki mikið um þetta,“ segir Sigurður. Sigurður segir einnig að karl- menn í Malaví vilji helst ekki nota getnaðarvarnir. „Hér er mann- dómsmerki að eiga mörg börn og eignast hver kona sex til sjö á lífs- leiðinni. Og vegna hás ungbarna- dauða er mönnum lítið um getnað- arvarnir gefið því fólk tryggir sér ákveðið öryggi í ellinni ef það eign- ast mörg börn. Stundum þora kon- urnar ekki að nefna getnaðarvarnir á nafn við eiginmenn sína,“ segir Sigurður og bætir því að í júní hafi þau hjónin gengið fram á krakka- hóp í þorpinu sem lék sér að því að blása upp smokkana sem hafði verið dreift meðal fullorðna fólks- ins í öðrum tilgangi. Sigurður segir að spilling sé land- lægt vandamál í Malaví og að til dæmis sé um 30 til 40 prósent af lyfjunum í lyfjaverslun ríkisins stolið. Hann segir að sér hafi þótt erfitt að glíma við spillinguna. „Eitt kvöldið þegar við hjónin vorum að ganga heim urðum við vitni að því að bílstjóri sjúkrabílsins sem stofn- unin var að kaupa hingað var að nota hann til að flytja húsgögn fyrir vin sinn, píparann í þorpinu. Þessi maður vinnur ekki lengur fyrir spítalann,“ segir Sigurður og bætir því við að þau hafi einnig þurft að glíma við alls kyns bókhaldssvik. „Þótt þetta sé okkur erfitt, þá er spillingin meira áberandi hérna því hún á svo miklar rætur í kúlt- úrnum. Fólki í Malaví ber skylda til að hygla ættmennum sínum og vinum. Ef embættismaður stendur frammi fyrir því að fara að mala- vískum lögum eða hefðarvenjum þá fer hann eftir hefðarvenjunni. Fólk þarf að sinna sínum. Þeir fáu sem eru með launatekjur þurfa til dæmis að halda allri fjölskyldunni uppi, kannski 20 manns. Og vegna þess hversu skorturinn er mikill þá nýta menn sér þau tækifæri sem þeim gefast til að bæta stöðu sína.“ Sigurður segir að þrátt fyrir ýmis konar erfiðleika þá hafi tími þeirra hjóna í Malaví verið einstakur. „Við höfum lært miklu meira af umhverfinu og því fólki sem við erum að vinna með en það hefur lært af okkur. Þetta er búið að vera lífsreynsla sem ég hefði ekki viljað vera án, Ég held að maður verði aldrei samur aftur eftir að hafa búið hérna “ segir Sigurður. Þau hjónin munu fara aftur heim til Íslands í október. „Það verður ósköp gott að koma heim, en ekki auðvelt að fara frá þessu landi og starfinu sem við höfum unnið hér. Við hefðum viljað sjá meira fyrir endann á ákveðnum verkefnum sem við höfum byrjað á.“ Sigurður segir að starfið sem Þróunarsamvinnustofnunin hafi unnið í Malaví sé langtímaverk- efni sem skilað hafi góðum árangri frá því það hófst fyrir fimm árum síðan því margfalt fleiri á svæð- inu hafi nú aðgang að heilbrigðis- þjónustu. „Það verður ekki hægt að halda þessu verkefni úti ein- göngu með fjármagni héðan, fyrr en eftir 15, 20 ár eða hugsanlega mannsaldur. „Okkur finnst að Ísland, sem er fimmta ríkasta þjóð í heimi, hafi ráð á að veita meira fjármagni í þróunaraðstoð en gert er í dag, til dæmis í landi eins og Malaví sem er eitt af þeim fimm fátækustu. Við erum að vinna gott starf og fólk hér í Malaví er þakk- látt fyrir það sem við höfum gert fyrir það. Við verðum að halda því áfram. Ég er barnslega stoltur af því að fá að taka þátt í þessu,“ segir landlæknir. Glíma við skort og sjúkdóma Sigurður Guðmundsson landlæknir og eiginkona hans Sigríður Snæbjörnsdóttir hafa starfað hjá Þróunarsamvinnustofnun Íslands (ÞSSÍ) í Malaví frá því í október í fyrra. Starf þeirra felst í að byggja upp spítala sem þjónar rúmlega hundrað þúsund manns. Ýmislegt hefur drifið á daga þeirra í Malaví frá því þau komu til landsins, meðal annars vopnað rán heima hjá íslenskum samstarfsmanni þeirra. Ingi F. Vilhjálmsson ræddi við Sigurð um dvölina í Malaví.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.