Fréttablaðið - 28.07.2007, Side 58

Fréttablaðið - 28.07.2007, Side 58
Þær styttur sem prýða torg og garða víðs- vegar um landið eru mér ekki að skapi. Fyrir utan þá augljósu staðreynd að áður fyrr virðist hafa verið mun erfiðara að búa til stytt- ur af kvenfólki en körlum (mér dettur ekki í hug nein önnur rökrétt ástæða fyrir því af hverju það eru svo fáar styttur af konum) eru flest- ar okkar styttur af mönnum sem dóu fyrir mörgum áratugum ef ekki árhundruðum. Okkur vantar styttur af nútíma- hetjum. Hvar er styttan af Land- helgisgæslumönnum með klippur í þorskastríðinu? Hvar er styttan af Jóni Páli Sigmarssyni? Hvar er styttan af Halldóri Laxness og Gunnari Gunnarssyni í sjómanni? Nú er gullið tækifæri að upp- hefja hversdagshetjuna. Örlög tveggja þeirra hafa litað blaðsíður blaðanna blóði síðustu vikurnar. Þær hafa fengið okkur landsmenn, sem venjulega nennum ekki að mót- mæla, til að rísa upp á afturlapp- irnar og slá frá okkur. Þær hafa fengið okkur til að líta í eigin barm, skammast okkar fyrir trúgirni okkar og neytt okkur til að endur- meta eigið siðgæði. Önnur þeirra sýndi ótrúlega seiglu þrátt fyrir eigin smæð í óendanlegum mótbyr við erfiðar aðstæður. Hin stóð keik og sagði við hvern þann sem henni ógnaði: „Sá yðar sem syndlaus er kastið fyrsta steininum“ og svo köstuðu allir steinunum. Ég er að tala um Lúkas og Helga Rafn. Ég vil sjá styttu í grasagarðinum á Akureyri þar sem Helgi stendur stoltur og gerir sig tilbúinn að kasta litlum bolta. Fyrir neðan ræður Lúk- as sér vart fyrir kæti og bíður með bísperrt eyrun og dillandi rófu eftir kastinu. Þeir eru vinir. Vinir sem sigruðu alla fjölmiðla, alla þjóðina og alla sleggjudóma. Þeir eru hvunn- dagshetjurnar sem standa fyrir þann eilífa sannleika að réttlætið sigri að lokum. Sannleikurinn mun gera yður frjálsan. Svo munu börn um ókomna tíð spyrja foreldra sína er þau labba fram hjá styttunni: Af hverju er strákurinn að leika við rottuna? SKOÐAÐU ÚRVALIÐ Á WWW.N1.ISN1 BÍLAÞJÓNUSTA Fellsmúla 24, Rvk. s: 530 5700 Réttarhálsi 2, Rvk. s: 587 5588 Ægisíðu 102, Rvk. s: 552 3470 Langatanga 1, Mos. s: 566 8188 Reykjavíkurvegi 56, Hfj. s: 555 1538 Dalbraut 14, Akranes. s: 431 1777 FLOTTAR FELGUR UNDIR BÍLINN 27 31 _0 7. 07 _T

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.