Fréttablaðið - 28.07.2007, Side 60
Sumarið er tíminn sem karlmenn, líkt og konur, njóta þess að geta
sprangað um fáklæddari en venjulega. Því miður býður þessi hlýinda-
tími upp á þónokkur algeng tískumistök hjá hinu minna pjattaða kyni.
1. Sundskýlur. Þröngar Speedo-buxur eru hræðilegar, og síðar
mynstraðar „sörf“-buxur eru næstum því jafnslæmar. Það eina sem
gengur upp eru einfaldar stuttbuxur í klassískum litum.
2. Derhúfur. Einungis fyrir ameríska túrista. Alls ekki klæðilegar
nema fyrir fjórtán ára unglingsstráka.
3. Snekkjustíllinn. Röndóttir jakkar með akkeri á og þvíumlíkt.
Konur munu ekki falla fyrir þessu og halda að þú sért ríkur snekkju-
eigandi. Mæli frekar með sjóræningjabúning ef þú ætlar að fara í
grímubúning á annað borð.
4. Nekt. Ekki fara úr að ofan nema þú sért í sundi eða í garðinum
heima hjá þér. Alls ekki. Sérstaklega ekki ef þú ert með gömul og ljót
„tribal-tattú“ sem ættu ekki að komast í dagsljósið.
5. Skartgripir. Já, ég veit að David Beckham og Eiður Smári eru með
demant í eyranu, en þetta er skelfilega ósmekklegt. Gleymdu líka
brasilískum vinaarmböndum og hákarlatönnum um hálsinn.
6. Hlýrabolir. Þarf eitthvað að útskýra það frekar?
7. Engir sokkar við skó. Þetta er eitthvað ítalskt Rivíeru-lúkk sem er
alls ekki að virka á Íslandi. Segir okkur konum ekkert nema … táfýla.
8. Íþróttasandalar. Eflaust þægilegir en skelfilega ósexí. Enn verri
við hvíta sokka.
9. Ofgrillun. Enginn verður fallegur með svínslegan rauðbrúnan lit,
hvað þá appelsínugulan. Sparaðu bæði sólina og gervibrúnkuna.
Eflaust eru margir orðnir þreyttir á hrúgum af sumarvörum á útsölum í versl-
unum bæjarins en fljótt fer að rofa til. Brátt fara haustvörurnar að streyma inn
og þá er gaman að versla fyrir íslenskt veður. Fullt af notalegum prjónapeysum,
treflum, hlýjum kápum og öðru. Einhvern veginn eru haustvörurnar alltaf
aðeins gæðalegri en sumarvörurnar.
Peter Jensen kynnti dásamlega fallega vetrarlínu í vor
og sótti áhrif í dönsku endurreisnarprinsessuna
Christinu. Um var að ræða skemmtileg snið, þykk
efni og föla húð við rauð-appelsínugulan vara-
lit. Einstaka fyrirsæta klæddist hettu sem
virtist millivegur á riddaraklæðum og
húfu með kattareyrum. Litirnir í flíkun-
um voru muskulegir. Grár, brúnn, dökk-
grænn og svartur og eflaust fara margir
að verða þreyttir á neonlitunum og skipta
yfir í klassískari liti líkt og Jensen sýndi í
þessari fallegu línu.
2.000
1.000
ENN MEIRI
VERÐLÆKKUN
GALLABUXUR
SKÓR
VERÐDÆMI