Fréttablaðið - 28.07.2007, Page 72

Fréttablaðið - 28.07.2007, Page 72
ÚTSÖLUNNI lýkur á morgun 29. júlí FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR www.visir.is Ísamræðu við félaga minn um daginn var mér bent á ákveðna samsvörun milli hundsins Lúkas- ar og annars hunds sem er tals- vert frægari, en gekk í gegnum dálítið svipaðar hremmingar, en það er tíkin Lassie sem vafraði um Skotland og niður til Englands í leit að upphaflegum eiganda sínum, öðlingspilti í Yorkshire, eftir að hafa verið seld til illra manna af fjárhagslegum ástæð- um. var reyndar að mínu mati nokkuð fallegra dýr en Lúkas, svo ég segi það bara hreint út og von- andi án þess að móðga neinn. Einn- ig má segja að sagan af Lassie sé út frá ákveðnum skáldlegum sjón- armiðum nokkuð tilkomumeiri en sagan af Lúkasi. Lassie lendir í alls kyns hremmingum en kemst jafnan út úr þeim með því að beita yfirburðagáfum og óviðjafnanleg- um styrk í mótlæti. Ást hennar á piltinum góða, sem og tryggð hennar og hollusta við þá bláfá- tæku og tandurhreinu barnssál – sem var túlkuð svo eftirminnilega í bíómyndinni Lassie Come Home – fékk jafnvel hina kaldrifjuðustu stigamenn til þess að fella tár. nokkrum einföldum saman- burðaræfingum má halda því fram að hin meinlegu ævintýri Lúkasar, með hliðsjón af hinni hárómant- ísku og fögru sögu af Lassie, dragi fram nokkuð athyglisverða þætti í íslenskri þjóðarsál og ekki síður nútímanum í heild sinni, sem halda má fram að einkennist af vissri hnignun. höfum við hund og pilt. Einn augljós munur í söguþræði er sá að í tilviki Lúkasar er hinn bláeygi piltur alls ekki elskaður af hundin- um heldur þvert á móti. Í hinni íslensku sögu er pilturinn vændur um það að hafa troðið aðalsögu- hetjunni í íþróttatösku og drepið hana með spörkum. Fíkn nútímans í ljótleika og harðneskju kemur hér skýrt fram. Hrópandi órétt- læti einkennir líka þessa frásögn og í stað hins trausta sambands pilts og hunds einkennist sagan af Lúkasi af miklum og djúpstæðum misskilningi pilts og hunds – nærð- um af fordómum hins stygga og hleypidómafulla netsamfélags – sem gerir það að verkum að þeir fá aldrei að kynnast á uppbyggi- legan og ástríkan máta. má segja um samband Lúkasar og eiganda hans, sem í hinni íslensku sögu er kona. Í stað þess að leita eiganda síns, eins og Lassie, þá forðaðist Lúkas eiganda sinn og í stað þess að beita klók- indum til þess að komast í fang hans, þurfti eigandinn að beita klókindum til þess að fá hann í fang sitt. Þetta lýsir firringu. er það skýrt ein- kenni á sögunni af Lúkasi, og lýsir þjóðarsálinni vel, að þegar öllu er á botninn hvolft gerðist ekki neitt í þeirri sögu annað en það að lítill hundur varð hræddur og hljóp upp í Hlíðarfjall. Það er einkum þetta sem gerir söguna svo íslenska enda hefur það löngum verið vitað að þessi eyþjóð hefur ákveðinn hæfileika til þess, í viðvarandi tíð- indaleysi, að gera sér mat úr engu. Ekki síst á þennan hátt er Lúkas hinn íslenski Lassie. Lúkas og Lassie

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.