Fréttablaðið - 18.08.2007, Side 38
Mikil ánægja ríkir með nýju
forsetabifreiðina sem er af
gerðinni Lexus LS600h.
Um síðustu mánaðamót urðu þau
tíðindi að forseti Íslands, Ólafur
Ragnar Grímsson, tók við nýrri
Lexus-tvinnbifreið af gerðinni
Lexus LS600h. Lexusinn leysti þar
með af hólmi Mercedes Benz bif-
reið sem hafði verið í notkun hjá
forsetaembættinu frá árinu 1994.
Ríkarður Már Ríkarðsson hefur
starfað undanfarin ár sem bíl-
stjóri hjá forsetaembættinu. Um
þessar mundir leysir hann af
hólmi aðalbílstjóra forsetans,
Einar Sigurjónsson, sem er í veik-
indaleyfi. Ríkarður hefur því
umtalsverða reynslu af akstri
gömlu og nýju forsetabifreiðar-
innar. Hann segir himin og haf
aðskilja bílana tvo.
„Það er ekki hægt að neita því
að munurinn er gríðarlegur,“
segir hann. „Ör þróun hefur átt
sér stað í framleiðslu bíla undan-
farin fimm til sex ár og tæknibún-
aður tekið ótrúlegum framförum.
Núorðið fær maður til að mynda
miklu meira afl út úr eyðsluminni
vélum heldur en áður fyrr.“
Í því samhengi bendir Ríkarður
á að nýja forsetabifreiðin sé búin
blendingsvél, sem samanstandi af
rafmótor og öflugri átta strokka
fimm lítra bensínvél. Bíllinn sé
margfalt umhverfisvænni en
eldri bifreiðar og þegar hann er
knúinn rafmagninu einu sé hann
bæði laus við hljóð og mengandi
útblástur. Sá eiginleiki komi sér
vel, til dæmis við opinberar
athafnir.
„Þá getur bíllinn í raun staðið
skammt frá þar sem athöfnin á
sér stað og verið í gangi, án þess
að valda einhverri mengun. Að
því leyti er hann einn besti mögu-
leiki sem völ er á. Eftir fimm ár
verður framboðið kannski orðið
allt annað og þá til dæmis hægt að
fá hentugan vetnisbíl og vetnis-
stöðvar komnar víða. En eins og
málin standa í dag er það ekki
raunhæfur kostur.“
Þar fyrir utan segir Ríkarður
Lexusinn mun liprari í akstri og
tæknilega fullkomnari en gamla
Bensinn hvað öryggisbúnað og
aksturseiginleika varðar. Þar
skiptir miklu að bifreiðin er fjór-
hjóladrifin, sem hentar vel ekki
aðeins í hálku og snjó, heldur
einnig á blautum vegum. Þá er
ónefnt að nýi bíllinn er miklu
sparneytnari en eldri bílar og
umhverfisvænni.
En skyldi Ríkarður ekki finna
fyrir örlitlum söknuði eftir gömlu
forsetabifreiðinni? „Ég get nú
ekki sagt það,“ segir hann og hlær.
„Það var orðið svo mikið viðhald á
bílnum og hann þar af leiðandi
orðinn dýr í rekstri. Þriggja ára
ábyrgð er á þeim nýja svo vænta
má að hann verði léttari á fóðrum.
En við erum raunar með annan bíl
hérna, þroskaðan Cadillac frá
árinu 1990, sem er eingöngu not-
aður við sérstök tækifæri. Um
hann gegnir allt öðru máli og ég
er ekki frá því að maður hafi taug-
ar til hans.“
Liprari í akstri og að flestu
leyti tæknilega fullkomnari
Breskt bílablað er mjög hrifið af
Mazda MX-5 Roadster Coupé.
Breska bílablaðið Auto Express
greinir frá því í júlíhefti sínu að
sportbíllinn Mazda MX-5 Road-
star Coupé hafi hlotið verðlaun-
in blæjubíll ársins 2007 í hinni
árlegu verðlaunaafhendingu
New Car Honours.
Helsta nýjungin við Mazda
MX-5 RC er að boðið er upp á
nýja útgáfu af hörðu þaki sem
hægt er að fella saman með einni
hreyfingu.
Bíllinn byggir á töluverðri verk-
fræðiþekkingu en hið samanfell-
anlega þak tekur ótrúlega lítið
pláss og vegur aðeins um 37 kíló.
Brimborg selur Mazda MX-5 en
hægt er að sérpanta Mazda MX-5
RC útgáfuna.
Blæjubíll ársins
KERRUÖXLAR
Í ÚRVALI
og hlutir
til kerru-
smíða
Vagnhöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 517 5000
topdrive.is Smiðjuvellir 3 Keflavík Sími: 422-7722
Allar þessar ólíku vörur eiga það sameiginlegt að fást hjá
topdrive.is Smiðjuvellir 3 Keflavík Sími: 422-7722