Fréttablaðið - 19.09.2007, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 19.09.2007, Qupperneq 38
www.SAMbio.is 575 8900 KEFLAVÍK AKUREYRIÁLFABAKKA SELFOSSIKRINGLUNNI BRATZ THE MOVIE kl. 8 L KNOCKED UP kl. 8 - 10:30 12 DISTURBIA kl. 10:10 12 BRATZ THE MOVIE kl. 6 L VACANCY kl. 8 -10 12 ASTRÓPÍÁ kl. 6 L VEÐRAMÓT kl. 8 - 10 14 MR. BROOKS kl. 5:30 - 8 - 10:30 16 MR. BROOKS kl. 8 - 10:30 BRATZ kl. 5:30 - 8 - 10:30 L KNOCKED UP kl. 5:20 - 8 - 10:40 12 DISTURBIA kl. 8 - 10:30 14 ASTRÓPÍÁ kl. 6 - 8 - 10:10 L ASTRÓPÍÁ kl. 6 RATATOUILLE M/- ÍSL TAL kl. 5:30 L VIP MR. BROOKS kl. 8 - 10:30 16 BRATZ kl. 5:30 - 8 L LICENSE TO WED kl. 6 - 8 7 ASTRÓPÍÁ kl. 6 L BOURNE ULTIMATUM kl. 10 14 TRANSFORMERS kl. 10:30 10 MR. BROOKS kl. 8 - 10:30 16 LICENSE TO WED kl. 8 7 BOURNE ULTIMATUM kl. 10:10 14 DIGITAL VIP Allir eiga sín leyndarmál. Óvæntasti sálfræðitryllir ársins. Mynd í anda Clueless og Mean Girls. Skemmtilegustu vinkonur í heimi eru mættar. Ertu að fara að gifta þig? Þá viltu alls ekki lenda í honum!!! Drepfyndin gamanmynd með hinum eina sanna Robin Williams og ungstirninu Mandy Moore. Langmest sótta myndin á Íslandi í dag SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919 SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000 SÝNINGARTÍMAR GRÆNA LJÓSSINS 16 14 14 12 14 14 HAIRSPRAY kl. 5.50 - 8 - 10.20 KNOCKED UP kl. 8 - 10.20 BRETTIN UPP ÍSL. TAL kl. 5.50 14 16 14 HAIRSPRAY kl. 5.30 - 8 - 10.30 VEÐRAMÓT kl. 5.40 - 8 - 10.20 BRETTIN UPP ÍSL. TAL kl. 6 ASTRÓPÍA kl. 6 - 8 - 10.10 BOURNE ULTIMATUM kl. 10.30 !óíbí.rk045 Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu KL. 8 Sicko KL. 10.30 Sicko VACANCY kl.6 - 8 - 10 VEÐRAMÓT kl. 5.40 - 8 - 10.20 BRETTIN UPP ÍSL. TAL kl.6 THE SIMPSONS MOVIE ENSKT TAL kl.6 - 8 - 10 -A.F.B. Blaðið ÓHUGNANLEGASTI SPENNUTRYLLIR ÁRSINS! HAIRSPRAY kl. 5.30 - 8 - 10.30 HAIRSPRAY LÚXUS kl. 5.30 - 8 - 10.30 VACANCY kl. 8 - 10 VEÐRAMÓT kl. 5.40 - 8 KNOCKED UP kl. 8 - 10.40 BRETTIN UPP ÍSL. TAL kl. 4 - 6 THE SIMPSONS MOVIE ENSKT TAL kl. 3.45 THE SIMPSONS MOVIE ÍSL. TAL kl. 3.45 RUSH HOUR kl. 5.50 - 10.20 EF ÞEIM TEKST EKKI AÐ SLEPPA ÞÁ VERÐA ÞAU FÓRNARLÖMB Í "SNUFF" MYND. - L.I.B., Topp5.is - bara lúxus Sími: 553 2075 HAIRSPRAY kl. 5.30, 8 og 10.30 L KNOCKED UP kl. 6 og 9 14 DISTURBIA kl. 5.45 og 10.20 14 THE BOURNE ULTIMATUM kl. 8 14 LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR www.laugarasbio.is - Miðasala á Hver segir að ekki sé hægt að dusta rykið af íslenskum leikrit- um og sýna þau aftur og aftur? Sagan um stóru börnin sem þurfa að fara að minnka til þess að verða fullorðin er í fullu gildi, enda hug- myndin um að hvolfa hefðbund- inni tilveru alltaf góð. Það var unun að horfa á litlu peysufata- konuna og gaman að sjá hversu sterk litla mamman var í fram- göngu sinni en það er sagan um félagana Guðmund og Finn sem fangar athygli áhorfenda. Þegar vissum gildum er snúið á haus er nauðsynlegt frá fyrstu stundu að komast að samkomulagi við áhorfendur um að svona sé til- veran. Hér var þetta innsiglað vel í byrjun með því að risastór strák- ur sté upp úr agnarlitlu húsi, eins konar Gúlliver en samt ekkert ógnvekjandi. Leikmynd Finns Arnars Arnarssonar var einföld en bráðsnjöll í smekklegri lýsingu Björns Bergsteins Guðmundsson- ar. Dansatriðin voru í höndum Ástrósar Gunnarsdóttur, sem er nú orðin þaulreynd í að samhæfa unga og aldna í ævintýrum á sviði, og var lokadansinn skemmtileg- astur. Mörgum krökkunum þótti það alveg ótrúlegt og botnuðu ekkert í því hvernig aðalpersónan Guð- mundur gat staðið öðrum megin á sviðinu, inni í herberginu sínu, og æpt svo út um gluggann hinum megin. Einkar vel til fundinn áhættuleikur sem féll vel í kram áhorfenda. En hver var hinn eigin- legi markhópur? Þegar börn leika fyrir börn eru þau í ákveðnum stellingum. Þegar börn leika fyrir fullorðna eru þau í öðrum stellingum. Þegar full- orðnir og börn sameinast í leik getur samleikurinn oft orðið hár- fín jafnvægisganga, það eru agn- arlítil atriði sem geta orðið að svo miklu ósamræmi. Börnin léku öll vel, en hugsanlega hefði það gert heildaryfirbragðið betra ef í sumum atriðum hefði verið dregið aðeins úr tali þeirra og þau látin tjá sig fremur með hreyfingum í stað þess að þylja langar setning- ar sem komust ekki alveg til skila, enda virtust þau ekki skilja alveg sjálf hvað þau voru að segja. Gói átti salinn. Guðjón Davíð Karlsson kann listina að fetta sig og bretta, snúa upp á sig og detta þannig að ungviðið tístir og orgar og vill fá meira að sjá og heyra. Nýliðinn Hallgrímur Ólafsson, sem fór með hlutverk gleraugna- gámsins Finns sem lét sig hverfa vegna leiðindanna heima fyrir, skilaði einnig hlutverki sínu vel. Einkum voru geiflurnar góðar þegar hann var að verða blindur vegna þess að gleraugun voru svo skítug. Pabbi Finns var trúverðug- ur leiðindaskarfur, Magnús Ingi Birkisson hvíldi einstaklega vel í hlutverki sínu. Kristín Þóra Har- aldsdóttir lék gelgjusysturina Dagnýju og má segja að hún hafi verið best sniðin að nútímanum hvað hreyfingar og talsmáta varð- ar, með sterka og góða nærveru án þess að yfirleika. Búningar Maríu Ólafsdóttur sögðu vel sína sögu inni í sakleys- islegum gervum Rögnu Fossberg þar sem bæði langafi og litla peysufatakonan báru náttúrlega af sem svona uppáhaldsmyndir í litlu dúkkuhúsi. Að deyja úr hungri er hollt og gott Hljómsveitin Sigur Rós frumsýnir heimildar- mynd sína, Heima, hinn 27. september á Alþjóð- legu kvikmyndahátíðinni. Freyr Bjarnason ræddi við trommarann Orra Pál Dýrason um gerð myndar- innar. Heimildarmyndin var tekin upp á tónleikaferð Sigur Rósar um Ísland síðasta sumar, þar sem þeir spiluðu á tíu stöðum á tveimur vikum. Á meðal viðkomustaða voru Ásbyrgi, Kárahnjúkar, Djúpavík og Klambr- atún í Reykjavík, þar sem um þrjá- tíu þúsund manns horfðu á. Heima hlaut frábærar viðtökur á forsýningu fyrir blaðamenn sem var haldin á Akureyri. Ritstjóri breska tímaritsins Q sagði mynd- ina eina af fimm bestu tónlistar- myndum sögunnar og eru það ekki slæm meðmæli svona rétt fyrir frumsýningu. „Þegar maður er búinn að vinna að henni svona lengi, og þá sérstaklega síðasta mánuðinn, þá var maður alveg búinn að missa sjónar á því hvort hún væri góð eða slæm. Það er rosalega gott að fá góð viðbrögð. Það er góður bónus því maður var orðinn svolítið stressaður,“ segir Orri Páll Dýrason. Að sögn Orra hafði þá félaga í Sigur Rós alltaf langað að endur- taka leikinn síðan þeir fóru í tón- leikaferð um Ísland árið 1999. Ákváðu þeir því að slá tvær flugur í einu höggi með því að halda ókeypis tónleika og gera mynd í leiðinni. „Það er gott að við gerð- um það því annars hefði þetta orðið hefðbundin tónlistarmynd, sem við vildum ekki því okkur finnst flestar tónlistarmyndir frekar leiðinlegar. Við höfum verið að byggja upp þetta form á tónleikum í mörg, mörg ár með Amiinu-stelpunum og brassband- inu og sjónræna þættinum. Við vildum skrásetja það á filmu og eftir það gætum við farið að gera eitthvað alveg nýtt.“ Orri segir að eftirminnilegustu tón- leikarnir hafi verið í Djúpavík þar sem þeir spiluðu í gamalli verk- smiðju fyrir framan þrjú hundruð manns. „Það var alveg frábært því það búa bara fimm þar allt árið,“ segir hann og hlær. „Þarna var bara fólk í sumarfríi sem vissi að eitt- hvað væri að gerast þarna. Það var fullt af fornbílum þarna inni, svolít- ið illa förnum, og alls konar gamlar vélar og drasl. Þetta var mjög „ind- ustrial“ umhverfi í algjörri niður- níðslu. Það var mikið líf þarna á Djúpavík einu sinni en það hefur örugglega ekkert verið um að vera þarna síðan verksmiðjan hætti.“ Sigur Rós var nýkomin úr fjórtán mánaða tónleikaferð um heiminn til að fylgja eftir plötu sinni Takk þegar hún ákvað að spila hér heima. Orri segist ekkert hafa verið minna stressaður fyrir tón- leikana hér heldur en fyrir fram- an þúsundir manna erlendis. „Ég er alltaf jafnstressaður fyrir tón- leika en ætli ég sé ekki aðeins meira stressaður þegar fólk er alveg svona ofan í manni. Þegar ég hef verið að spila fyrir framan 5.000 manns eða fleiri er alltaf einhver fjarlægð því maður sér ekki nein andlit. Hérna heima sá maður svipbrigði fólks og allt. Það var gaman að hafa svona nálægð.“ Eftir að Heima verður frumsýnd í Háskólabíói verður hún sýnd á kvikmyndahátíðum víða um heim í næsta mánuði. Orri og félagar verða þá á faraldsfæti til að kynna myndina en eftir það ætla þeir að halda áfram með næstu plötu sína. Upptökur eru þegar hafnar og vonast þeir til að ljúka verkinu á skemmri tíma en nokkru sinni fyrr, eða í byrjun næsta árs. Almennar sýningar á Heima hefjast í Háskólabíói 5. október og hefst forsala 25. september. Með- fram myndinni verður gefin út tvöfalda platan Hvarf-Heim sem hefur að geyma áður óútgefið og órafmagnað efni frá Sigur Rós.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.