Fréttablaðið - 20.09.2007, Síða 20
hagur heimilanna
Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðing-
ur sparar blöð og lithylki þegar hann
prentar.
Flestir kannast líklega við
erfið samskipti í viðskipt-
um með gallaða vöru eða
lélega þjónustu, sem ef til
vill er ekki efni í dómsmál.
Neytendum gefst þó færi á
að leita réttar síns, jafnvel
þegar um lágar upphæðir er
að ræða.
„Kærunefnd lausafjár og þjón-
ustukaupa er leið fyrir þá sem
lenda í brotum á neytendakaup-
um, til dæmis þegar keypt er í
búð, lausafjárkaupum þegar fólk
verslar sín á milli á jafnréttis-
grundvelli og þjónustukaupum,“
segir Hildigunnur Hafsteinsdótt-
ir, stjórnandi leiðbeininga- og
kvörtunarþjónustu Neytendasam-
takanna.
Nefndin virkar ekki sem dóm-
stóll en gefur þess í stað álit sitt á
málum.
„Það sem skilur nefndina frá
dómstól er að engin viðurlög eru
við því að brjóta gegn áliti hennar.
Nefndarmenn eru aftur á móti lög-
fræðingar og formaðurinn er fyrr-
verandi dómari, og því getur talist
líklegt að dómstóll kæmist að
sömu niðurstöðu og nefndin.“
Nefndarmenn eru fulltrúar
Neytendasamtakanna, Samtaka
atvinnulífsins og viðskiptaráðu-
neytisins.
„Það er frekar einfalt að leggja
mál fyrir nefndina. Á heimasíðu
Neytendastofu er að finna eyðu-
blað sem hægt er að prenta út og
senda í pósti ásamt gögnum. Þá er
málsmeðferðin ókeypis og er
hugsuð sem úrlausnarleið ef neyt-
andi sem lendir í þrætum hefur
ekki fjárráð til þess að hefja mál,
eða málið er ekki af þeirri stærð-
argráðu.“
Þegar nefndin hefur ákvarðað
hvort málið heyrir undir hana fær
hinn aðilinn tækifæri til að svara
fyrir sig. Að lokum eru úrslit máls-
ins tilkynnt báðum aðilum og
útdráttur úr álitinu birtur á heima-
síðu Neytendastofu.
„Komið hefur til tals að nafn-
greina aðila málsins líkt og gert er
í dómsmálum en sú ákvörðun
hefur ekki verið tekin. Forsvars-
menn fyrirtækja eru yfirleitt vilj-
ugir til þess að bæta sig. Stundum
kemur það líka í ljós að neytand-
inn hafði ekki alveg rétt fyrir sér í
öllu.“
Kæruleið litla neytandans
Keypti húsið á réttum tíma