Fréttablaðið - 20.09.2007, Qupperneq 34
20. SEPTEMBER 2007 FIMMTUDAGUR4 fréttablaðið nýir bílar
Jóhannes Jakobsson, um-
sjónarmaður aukahluta
hjá B&L, segir nýjustu
tískuna vera litaðar felg-
ur. Þá segir hann mikil-
vægt að bóna felgurnar
með sérstöku felgubóni.
„Það er í raun aðallega
útlitið á felgunum sem
breytist á milli ára,“ segir
Jóhannes. Nú séu dökkir
litir með póleraðri fram-
hlið allsráðandi. „Það sem
er vinsælast í dag eru
dökkir litir eins og svart-
ur og dökkgrár í stað silf-
urlituðu háglans felganna
sem hafa verið ríkjandi í
mjög langan tíma,“ segir
hann og nefnir einnig að
rauðar, gular og bleikar
felgur séu fáanlegar. „Nú
er þetta orðið þannig að
það er mikil fjölbreytni í
felgunum og takmarkað
upplag af hverri tegund,“
segir Jóhannes.
Um viðhald á felgum
segir Jóhannes að for-
vörnin skipti miklu máli.
„Felgubónið sem við erum
með er hannað til að halda
frá bremsuryki og auð-
veldar þrifin töluvert,“
segir hann og bendir á að
ekki sé æskilegt að nota
sterk efni og uppþvotta-
bursta á felgurnar því
slíkt eyði lakkinu sem er
yfir póleringunni. „Í raun
á maður ekki að nota neitt
á felgurnar sem maður
myndi ekki nota á lakk-
ið á bílnum,“ segir hann
og nefnir svampa og sér-
staka bursta sem hannað-
ir eru fyrir felgur. „Þess-
ir sérhönnuðu burstar eru með bursta allan hringinn til þess að
felgurnar rispist ekki. Síðan eru notuð sömu efni á felgurnar og
bílinn eins og tjöruhreinsir og slíkt,“ segir Jóhannes.
sigridurh@frettabladid.is
Litskrúðug felgutíska
Mikilvægt er að forverja felgurnar með
bóni, sem gerir það að verkum að þær
hrinda frá sér óhreinindum og gera þrif
og viðhald auðveldari. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Felgur er nú hægt að fá í hinum ýmsu
litum og nefnir Jóhannes Jakobsson liti
eins og svartan, rauðan og bleikan sem
séu nú fáanlegir á þær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Jepparnir frá BMW framleið-
endunum voru þeir einu sem
voru með xDrive er aldrifskerf-
ið. Nú fá sport-og fólksbílar frá
BMW einnig að njóta sín til fulls.
„X-Jeppalínan frá BMW, var sú
fyrsta sem fékk að njóta xDrive
kerfisins. Núna er það hinsveg-
ar einnig fáanlegt fyrir sport- og
fólksbíla frá BMW framleiðend-
unum,“ segir Helga Guðrún Jón-
asdóttir, kynningarstjóri hjá B &
L, Bifreiða og landbúnaðarvélum.
Helga Guðrún segir xDrive kerf-
ið tryggi hámarksveggrip öllum
stundum og henti því gríðarlega
vel fyrir íslenskar aðstæður.
„BMW framleiðendur fóru
mjög sérstaka leið í þróun á aldr-
ifskerfinu og í staðinn fyrir hið
hefðbundna 4x4 nafn er það xDri-
ve sem varð fyrir valinu,“ segir
Helga Guðrún og bætir við: „Drif-
kerfið nánast hugsar fyrir öku-
manninn öllum stundum á ferð.
Þetta er algjörlega skynvætt aldr-
ifskerf sem er mjög þróað og
hefur gríðarlega virkan skynbún-
að. Það fer eftir aðstæðum hverju
sinni hvort og í hvað miklu magni
bíllinn grípur til aldrifsins,“ segir
Helga Guðrún, hún segir jafn-
framt ekkert drifkerfi vinna
hraðar en xDrive og það sé fyrst
og fremst hraðinn í vinnslunni
sem geri kerfið jafn fullkomið og
raun ber vitni.
„Kerfið er rosalega fljótt að átta
sig á aðstæðum á vegum úti. Síðan
miðlar það afli á milli hjólanna
þannig að hámarksveggrip nýtist
alltaf. Um leið og einhver viðbót-
arhreyfing kemur á hjólið byrjar
bíllinn að miðla afli milli þeirra
hjóla sem ná bestu viðspyrnunni,“
útskýrir Helga Guðrún og segir að
þetta gerist á sekúndubroti.
„Þetta er að mínu mati mjög at-
hyglisverð þróun hjá BMW fram-
leiðendum enda eru þeir smá
saman að festa xDrive-kerfið inn
í sport- og fólksbílalínuna líka,“
segir Helga Guðrún og nefnir sem
dæmi að nýja Coupé-sporttýpan
af þristinum frá BMW framleið-
endunum sem nú er fáanleg með
xDrive kerfinu.
sigridurh@frettabladid.is
Háþróað aldrif fyrir
BMW bíla frá B&L
Helga Guðrún Jónas-
dóttir, kynningarstjóri
hjá B&L, segir xDrive,
aldrifskerfið frá BMW,
nú fást í sport- og
fólksbílum frá BMW.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Aðalljós allra bifreiða eða sérstök
dagljós eiga vera kveikt á ferð.
Margir nýir bílar koma ekki með
dagljósabúnaði og því er nauðsyn-
legt að vera á varðbergi. Að sögn
umferðardeildar Lögreglunnar í
Reykjavík dugir ekki að nota stöðu-
ljós eða þokuljós í stað aðalljósa.
Þau á aðeins og nota við sérstakar
aðstæður.
Sekt fyrir ljósleysi nemur 5 þús-
undum kr og þegar aðalljósin eru
ekki kveikt. Þá gildir sama hvort
önnur ljós eru til staðar eða ekki.
Langflestir bílar keyptir á Ís-
landi eru með þennan dagljósabún-
að. Fyrir ökumenn bíla sem eru án
hans getur þetta hinsvegar gleymst,
til dæmis hjá þeim sem eiga sérinn-
flutta bíla.
Í staðinn fyrir að lenda í sekt
og jafnvel valda slysi í komandi
skammdegi getur þessvegna borg-
að sig að láta setja dagljósabúnað
í bílinn. Þetta tekur aðeins nokkra
tíma og kostar á bilinu tíu til fimmt-
án þúsund á næsta bílaverkstæði.
-rh
Dagljósabúnaðinn
í lag fyrir veturinn
WWW.N1.ISN1 VERSLUN BÍLDSHÖFÐA 9 · SÍMI 440 1200
ÞURRKUBLÖÐ
Er bíllinn klár fyrir veturinn?
Við erum með mesta úrvalið af aukahlutum fyrir bílinn.Fí
t
o
n
/
S
Í
A