Fréttablaðið - 23.09.2007, Blaðsíða 99
Flott ur
Rúmgóður
Örugg ur
Hagstæður
Traust bílaumboð
Góð þjónusta
Flensburg gerði sér
lítið fyrir í gær og skellti
Þýskalands- og Evrópumeisturum
Kiel á heimavelli, 37-32. Flens-
burg skaust með sigrinum á topp
þýsku úrvalsdeildarinnar.
Alexander Petersson átti fínan
leik í liði Flensburg og skoraði 3
mörk en Einar Hólmgeirsson sat
á bekknum allan tímann.
Flensburg lagði
Kiel að velli
Það er ekkert lát á góðu
gengi Arsenal í ensku úrvalsdeild-
inni. Skytturnar skutu Derby auð-
veldlega niður á Emirates-
vellinum í gær en lokatölur urðu
5-0 þar sem Arsenal bauð upp á
stórkostlegan fótbolta. Arsene
Wenger, stjóri Arsenal, segir sitt
lið hafa sent skýr skilaboð til
keppinautanna í gær.
„Þetta lið er alvöru og ætlar sér
stóra hluti. Við erum ekki hér til
þess að monta okkur eða leika
okkar. Við erum hér í alvöru bar-
áttu og liðið ætlar sér að fara
langt. Það var hrein unun að sjá
liðið spila í dag,“ sagði Wenger
kampakátur og mátti vel vera
sáttur. Adebayor átti aftur stórleik
og skoraði þrennu að þessu sinni.
„Adebayor lítur út fyrir að vera
sterkari en áður og það leynir sér
ekki í návigjum. Hann er orðinn
gríðarleg ógn við hvaða vörn sem
er. Hann var sterkur en það munar
mikið um að hann er orðinn mun
rólegri í færunum,“ sagði Wenger.
Hinn tvítugi miðjumaður Cesc
Fabregas skoraði í sínum sjötta
leik í röð og er búinn að skora sjö
mörk á tímabilinu. Stuðningsmenn
Arsenal virðast vera búnir að
finna nýtt átrúnaðargoð í Fabregas
og Thierry Henry gleymist fljótt
spili Spánverjinn ungi svona
áfram.
„Cesc gerir miklar kröfur til
sjálfs síns. Ég tók eftir því þegar
hann var aðeins sextán ára gamall.
Hann er þess utan mjög jarðbund-
inn og ofmetnast ekki þó svo að
honum gangi vel. Þrátt fyrir
þennan sigur og spilamennsku tel
ég liðið enn eiga inni.“
Það var ekki sami sambaboltinn
í boði hjá Liverpool og Birming-
ham en sá leikur endaði með
markalausu jafntefli. Rafa
Benitez, stjóri Liverpool, var
pirraður í leikslok.
„Þetta er mjög pirrandi. Við
reyndum allar aðferðir til þess að
brjóta niður vörn Birmingham en
inn vildi boltinn ekki. Á endanum
urðum við uppiskroppa með hug-
myndir og það var ekkert rými á
vellinum. Ég tek samt ekkert af
Birmingham, sem varðist vel,“
sagði Benitez en það vakti athygli
að hann skyldi geyma Fernando
Torres á bekknum í klukkutíma.
„Ég er með fjóra framherja og
þeir spiluðu allir á endanum. Ég
taldi að Voronin og Kuyt væru
réttu mennirnir í þennan leik og
þess vegna voru þeir þarna,“ sagði
Benitez að lokum.
Arsenal á fleygiferð í ensku úrvalsdeildinniEnska úrvalsdeildin
Ítalska A-deildin
Norska 1. deildin