Fréttablaðið - 23.09.2007, Blaðsíða 11
Ishmael Beah, fyrrverandi herdrengur frá Sierra
Leone, mun lesa upp úr bók sinni Um langan
veg: frásögn herdrengs, á opnum hádegisfundi í
Iðnó á morgun, sem haldinn er á vegum Unicef,
Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna.
Mun Ishmael fjalla um reynslu sína af borgara-
styrjöldinni í Síerra Leóne, sem geisaði árin 1991
til 2002, þar sem hann var tekinn í her stjórn-
valda og fengin skotvopn til að berjast gegn
uppreisnarmönnum.
Þá var hann aðeins þrettán ára en ekki leið á löngu
þar til drengurinn var á valdi fíkniefna og búinn að
drepa fleiri en hann gat hent reiður á.
Unicef tókst að bjarga Ishmael þremur árum
seinna og aðstoðaði hann við að aðlagast samfélag-
inu á ný. Hann hefur nú náð að skapa sér nýtt líf og
miðlar af reynslu sinni. Með bók sinni vill Ishmael
vekja almenning til umhugsunar um þá hræðilegu
staðreynd að um 300.00 börn séu látin berjast í tæp-
lega 50 styrjöldum sem geisa í dag.
Hann vill leggja sitt af mörkum til að börn öðlist
frelsi og fái aðstoð til að endurheimta líf sitt.
Bók Ishmael hefur vakið heimsathygli en þess
má geta að hún kom út í íslenskri þýðingu á vegum
JPV í byrjun síðustu viku og fékk heitið Um langan
veg: frásögn herdrengs.
Ishmael mun árita bókina eftir hátíðarfundinn í
Iðnó, sem verður eina tækifæri landsmanna til að
heyra frásögn höfundarins frá fyrstu hendi, þar sem
hann dvelur stutt á landinu.
Breyttist úr prúðum dreng í
vímuefnaháða morðvél
Minnt er á að í fyrri hluta okt ób er
fer fram álagn ing op in berra gjalda
lög að ila vegna rekstr ar árs ins 2006.
Fram tals frest ur er nú lið inn og eru því þau félög
sem enn eiga eftir að skila skatt fram tali 2007 ásamt
árs reikn ingi hvött til að skila hið allra fyrsta.
Bent skal á að skatt fram tali skal allt af skila, jafn vel
þó að engin eig in leg at vinnu starf semi eða rekst ur
hafi verið til stað ar hjá fé lag inu.
Til forráðamanna hlutafélaga, einkahlutafélaga og
annarra skattskyldra lögaðila
Framtalsfrestur
félaga er liðinn
skattur.is
Hægt er að skila skatt fram tali og
árs reikn ingi raf rænt á www.skatt ur. is.