Fréttablaðið - 23.09.2007, Blaðsíða 98
Stórleikur FH og Val á
Kaplakrikavelli í dag verður
níundi óopinberi úrslitaleikur
tveggja liða um titilinn í loka-
umferðum mótsins síðan deildin
innihélt fyrst tíu lið sumarið 1977.
Hér er miðað við að aðeins tvö
lið séu að keppa um titilinn á loka-
sprettinum og að þau mætist í
einni af fjórum síðustu umferðum
sumarsins.
Valsmenn eru í þeirri stöðu í
fyrsta sinn í tuttugu ár að spila
óopinberan úrslitaleik um Íslands-
meistaratitilinn í lokaumferðinni.
Valsmenn voru síðast í sömu spor-
um í 16. umferð 1987 þegar þeir
fengu Framara í heimsókn á
Hlíðarenda. Valsmenn voru þá í
mjög góðri stöðu með fimm stiga
forskot á þáverandi Íslands-
meistaralið Fram og nánast
gulltryggðu sér titilinn með því að
gera markalaust jafntefli við
Framliðið í þessum leik.
Willum Þór Þórsson, þjálfari
Valsmanna, getur líka rifjað upp
góðar minningar úr svona kring-
umstæðum en hann fór með KR-
liðið í gegnum tvo svona leiki 2002
og 2003 og fagnað Íslandsmeistara-
titlinum bæði árin. 2002 gerði KR
1-1 jafntefli við Fylki í Árbæ í 17.
umferð og tryggði sér síðan titilinn
í 18. umferð og árið eftir lagði KR
grunninn að meistaratitlinum með
4-0 sigri á Fylki í 15. umferð.
Síðasta útiliðið til að vinna svona
leik var lið ÍBV sem tryggði sér
Íslandsmeistaratitilinn 1998 með
því að vinna 0-2 sigur á KR á KR-
vellinum í 18. umferð. Eyjamenn
léku þá eftir afrek Víkinga sjö
árum áður sem unnu þá 0-2 sigur á
Fram á Laugardalsvelli í 16.
umferð. Úrslit þess móts réðustu
þó ekki fyrr en á lokasekúndunum
í lokaumferðinni. Skagamenn
tryggðu sér einnig titilinn á úti-
velli árið 2001 með því að ná 2-2
jafntefli við ÍBV í Eyjum.
FH-ingar hafa aldrei spilað
svona úrslitaleik en þeir hafa hins
vegar tryggt sér titilinn í Kapla-
krika tvö síðustu ár og geta gert
það þriðja árið í röð í dag. FH-
ingar tryggðu sér titilinn með 2-0
sigri á Val í 15. umferð 2005 og
síðan með 4-0 sigri á Víkingum í
17. umferðinni í fyrra.
Fyrsti úrslitaleikur Valsmanna í 20 ár
Næstsíðasta umferð
Landsbankadeildarinnar fer fram
klukkan 17 í dag. Stórleikur
umferðarinnar er viðureign topp-
liðanna FH og Vals. Valur er tveim
stigum á eftir FH og verður að
sækja til sigurs enda dugir jafn-
tefli skammt og tap þýðir að FH
verður meistari.
Undirbúningur liðanna er óhefð-
bundinn og að mörgu leyti eins og
fyrir bikarúrslitaleik. Bæði lið
gistu á hótelum í gær og þjöppuðu
sér saman.
„Við erum á leið á Hótel Örk,
það verður fínt. Við munum horfa
á fótbolta þar og spila kotru en það
er leikur fyrir hugsandi menn,“
sagði Tryggvi Guðmundsson, fram-
herji FH-inga, léttur og kátur.
Augljós tilhlökkun var í honum
fyrir leikinn.
„Það er ekkert skemmtilegra en
að spila úrslitaleiki. Svona á þetta
að vera. Við mætum til leiks með
sama hugarfar og venjulega og
ætlum að sækja til sigurs. Ég hef
aldrei skilið þá sem segja að það
sé verra að vera með forskot, það
truflar okkur ekkert og verður
ekki þess valdandi að við bökkum
eitthvað. Það er klárlega betra að
vera með tveggja stiga for-
skot,“ sagði Tryggvi en allir
leikmenn FH eru klárir
í slaginn.
Valur flengdi FH
í fyrri leik lið-
anna í deild-
inni, 4-1, en
FH náði
fram
hefndum með sætum sigri í
bikarnum. FH tapaði síðasta leik
sínum gegn Blikum en Valur gerði
jafntefli gegn ÍA.
„Við fórum vel yfir tapleikinn
og vitum hvað fór úrskeiðis þar.
Töp hafa aldrei slegið okkur út af
laginu, þvert á móti mætum við
sterkir í næsta leik og á því verður
engin breyting núna,“ sagði
Tryggvi.
Helgi Sigurðsson, leikmaður
Vals, er spenntur fyrir leik liðs
síns við Íslandsmeistara FH á
morgun. „Það er frábært að fá að
spila svona úrslitaleik og við erum
vel gíraðir upp í verkefnið,“ sagði
Helgi, sem segir að undirbúningur
liðsins sé þó að mestu leyti með
hefðbundnu sniði. „Við undirbúum
okkur eins fyrir þennan leik og
aðra leiki og menn eru fullir sjálfs-
trausts og stemmningin er góð í
liðinu. Valsliðið gisti reyndar á
Hótel Loftleiðum í gær til þess að
þétta hópinn fyrir átökin.“
Helgi segir pressuna vera alla á
FH-liðinu. „Við höfum allt að vinna
í þessum leik og þeir hafa öllu að
tapa. Þeir eru Íslandsmeistararnir
og hafa verið með besta liðið á
Íslandi síðustu ár, en í ár erum við
búnir að halda í við þá og veita
þeim almennilega keppni, þannig
að pressan er öll á þeim,“ sagði
Helgi, sem er helsti markaskorari
Valsliðsins og er því sjálfur einnig
að keppa um markakóngstitilinn.
„Það skiptir náttúrlega öllu máli
að við vinnum leikinn og verðum
Íslandsmeistarar, en ég reyni
auðvitað mitt besta til að skora
mörk og hef hug á því að taka þann
titil líka.“ Hjá Valsliðinu eru menn
í fínu standi fyrir leikinn, að
frátöldum Baldri Bett sem getur
ekki leikið vegna meiðsla.
FH tekur á móti Val í Kaplakrika í dag. Óhætt er að segja að um sannkallaðan úrslitaleik sé að ræða enda
verður FH Íslandsmeistari með sigri en Valur hrifsar toppsætið af FH með sigri, en þar hefur FH setið síðan
sumarið 2004. Valsmenn segja pressuna vera á FH-ingum, sem ætla ekki að verjast heldur spila sinn leik.
Arsene Wenger, stjóri
Arsenal, sagði að brotthvarf José
Mourinho væri óvænt og óvægið
en bætti þó við að Mourinho væri
ekki ómetanlegur og auðvelt væri
að finna mann í hans stað.
„Það er eitt að vera skemmti-
legur á blaðamannafundum en
það hefur ekki sama gildi og að
vera skemmtilegur á vellinum.
Fólk elskar góðan fótbolta og ég
tel ekki að Chelsea verði í
nokkrum vandræðum með að
finna verðugan arftaka Mour-
inho,“ sagði Wenger sem lenti
margoft í útistöðum við stjórann
portúgalska.
Mourinho ekki
ómetanlegur
Danski markvörðurinn
Kasper Schmeichel, sonur Peters
Schmeichel, mun á næstu dögum
skrifa undir nýjan langtímasamn-
ing við Man. City.
Schmeichel hefur þótt koma
skemmtilega á óvart á milli
stanganna hjá City í vetur og
haldið marki sínu hreinu fjórum
sinnum í sex leikjum.
Á síðustu leiktíð var hann
markvörður númer fjögur hjá
félaginu en aðrir markverðir
félagsins eru annað hvort meiddir
eða horfnir á braut og það hefur
Daninn ungi nýtt sér til fullnustu.
Fær nýjan
samning
Þeir eru ekki margir sem
gera ráð fyrir því að Chelsea muni
bíta frá sér á Old Trafford í dag.
Liðið er búið að missa stjóra sinn
og vin. Þess utan verður Chelsea
meðal annars án Frank Lampard
og Didier Drogba.
Lundúnaliðið hefur aðeins
fengið eitt stig í síðustu tveim
leikjum og Wayne Rooney, fram-
herji Man. Utd, er sannfærður um
að sjálfstraust Chelsea muni
minnka verulega tapi liðið fyrir
United í dag.
„Að fá aðeins eitt stig í þrem
leikjum hlýtur að hafa áhrif á
sjálfstraustið hjá þeim. Við getum
náð þriggja stiga forystu á Chelsea
og það væri mjög ljúft enda lítum
við á Chelsea sem helsta keppinaut
okkar,“ sagði Rooney, sem verður
væntanlega í byrjunarliðinu í dag.
Hinn nýi stjóri Chelsea, Avram
Grant, er hvergi banginn og hefur
trú á sjálfum sér. „Ef ég hefði ekki
trú á því að ég hefði eitthvað fram
að færa hefði ég ekki tekið starfið
að mér. Ég tel mig vel ráða við
leikmennina og geta farið lengra
með þetta lið.“
Avram Grant fer með
Chelsea á Old Trafford