Fréttablaðið - 28.09.2007, Side 1
Hannes Lárusson myndlistarmaður nýtir blóm
og ber til víngerðar, tínir söl og snýr sér fífu-
kveiki í lampa. Þetta heitir að lifa á landsins
gæðum.
É
blómin. Það er ekki af engu sem hún heitir
mjaðurjurt. Það er hunangið sem gefur fyllingun
og því betra sem það er því b t iBest er ð f
í skólanumFÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2007 Tungumál auka málvitund
Börnin í Ísaksskóla læra ensku frá unga aldri. BLS. 6
Efnalaugin BjörgGæðahreinsunGóð þjónustaÞekking Opið: mán-fim 8:00 - 18:00föst 8:00 - 19:00laugardaga 10:00 - 13:00
Auglýsing
www.tengi.is • tengi@tengi.is
MORA INXX
BLÖNDUNARTÆKI
Smiðjuvegi 76 • 200 Kópavogur • Sími 414 1000
Baldursnes 6 • 603 Akureyri • Sími 414 1050
Eskja á Eskifirði og
Humarvinnslan í Þorlákshöfn
sögðu í gær upp samtals 98 starfs-
mönnum í landvinnslu.
Forsvarsmenn beggja fyrir-
tækjanna segja uppsagnirnar
mega rekja til þess mikla sam-
dráttar í aflaheimildum sem
ákveðinn var í sumar.
Í Eskju var 39 starfsmönunum
sagt upp. Þar er jafnvel búist við
að öll starfsemi leggist af í frysti-
húsinu um áramót.
„Þegar viðamikil endurskipu-
lagning liggur fyrir þótti rétt að
segja upp öllu starfsfólki til að
skapa svigrúm til nauðsynlegra
breytinga,“ segir Hjörleifur
Brynjólfsson, framkvæmdastjóri
Humarvinnslunnar, þar sem 59
starfsmönnum var sagt upp.
„Þetta sýnir okkur hve tæpur
rekstrargrundvöllur margra fyrir-
tækja er þegar svo mikill kvóta-
samdráttur verður. Við höfum
gengið út frá því að fimm til sex
hundruð störf muni tapast í fisk-
vinnslu en 4.500 einstaklingar
vinna slík störf í dag,“ segir Arnar
Sigurmundsson, formaður Sam-
taka fiskvinnslustöðva.
Arnar segist telja að flest fyrir-
tæki reyni að halda óbreyttum
rekstri áfram en hann óttist að
uppsagnir hefjist af fullum þunga
á næsta ári.
Einar K. Guðfinnsson sjávar-
útvegsráðherra segir þessar
fréttir ekki koma sér á óvart.
„Ég óttast það hins vegar að við
séum ekki farin að sjá það síðasta
í þessum efnum,“ segir ráðherrann,
sem jafnframt bendir á að í
landinu í heild vanti fólk til starfa.
Af þeim ástæðum hafi ríkistjórnin
verið gagnrýnd fyrir of miklar
mótvægisaðgerðir. Sjálfur sé hann
algerlega ósammála þeirri gagn-
rýni. „Þrátt fyrir að þensla sé til
staðar sums staðar í landinu er
hún aldeilis ekki alls staðar
veruleikinn.“
Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir,
formaður Afls starfsgreinafélags
á Austurlandi, segir uppsagnirnar
„afleiðingar kvótakerfisins í sinni
verstu mynd“.
Hjördís segir forsvarsmenn
fiskvinnslufyrirtækja á Austur-
landi nú ígrunda stöðuna sem upp
er komin. „Niðurskurðurinn hefur
mikil áhrif hér og fyrirséð að þetta
verður erfitt víða,“ segir Hjördís
Þóra.
Búist við að sex hundruð
störf tapist í fiskvinnslu
Tvö fiskvinnslufyrirtæki í Þorlákshöfn og á Eskifirði sögðu upp samtals 98 starfsmönnum í gær. Formaður
Samtaka fiskvinnslufyrirtækja býst við að sex hundruð störf tapist í greininni. Fyrirsjáanlegt segir ráðherra.
Sparisjóði Reykja-
víkur og nágrennis, SPRON, hefur
verið gefinn tíu daga frestur til
þess að endurgreiða viðskiptavini
sparisjóðsins 33.442 krónur sem
hann hefur þurft að greiða vegna
svonefnds FIT-kostnaðar. Það er
gjald sem nemur 750 krónum fyrir
hverja færslu umfram heimild á
debetkortareikningi.
Oddgeir Einarsson, héraðs-
dómslögmaður og einn þriggja
eigenda lögmannsstofunnar Opus,
sendi SPRON í gær bréf þar sem
segir að innheimta FIT-kostnaðar-
ins sé ólögmæt. Í bréfinu segir að
viðskiptavinurinn sem eigi í hlut
hafi ekki samið um að greiða það
gjald sem tekið var af honum við
hverja „færslu yfir heimild [...]
umfram það sem farið var yfir um
auk dráttavaxta. Til þess að slík
heimild hefði getað talist hluti af
samningi aðila hefði það þurft að
koma fram berum orðum eða skjal
fylgja með sem hluti samnings.“
Það hafi ekki verið svo.
Þá er einnig tekið fram í bréf-
inu, að jafnvel þótt gjaldskráin
sem SPRON innheimtir FIT-kostn-
aðinn samkvæmt væri hluti samn-
ings, og um heimild væri að ræða
til að taka af viðskiptavini „fjár-
hæðir sem nema tvöföldum eða
margföldum þeim úttektum sem
ekki var innistæða fyrir“, þá væri
slíkt ákvæði ekki skuldbindandi
fyrir viðskiptavini, þar sem þau
væru andstæð ógildingarákvæð-
um samningarlaga. „Ég tel inn-
heimtu á FIT-kostnaðinum ekki
standast lög og ef til þarf munu
dómstólar skera úr um hvort svo
sé.“
Ekki náðist í Ásdísi Bragadótt-
ur, innheimtustjóra SPRON, í gær-
kvöld.
Hefur tíu daga til að borga
Danskur nítján ára
piltur var í gær dæmdur í sextíu
daga fangelsi fyrir að hafa hótað
Anders Fogh Rasmussen
forsætisráð-
herra í tölvu-
pósti.
Pilturinn
sendi Rasm-
ussen tölvupóst
í mars í fyrra
þar sem sagði
að forsætisráð-
herrann „yrði
dauður innan
níu daga“.
Tveimur
vikum síðar var hann dæmdur í
sextíu daga skilorðsbundið
fangelsi en þeim dómi var í gær
breytt í óskilorðsbundið fangelsi.
Pilturinn, sem er virkur meðlim-
ur vinstrisinnaðrar ungliðahreyf-
ingar, sagðist hafa sent póstinn
vegna þess að honum leiddist.
Sagði Rasmussen
deyja brátt
Andstæðingar í boltan-
um, samherjar í námi
Bruggar vín og býr
til kveiki úr fífum
Brjálæðingur
á pinnahælum!