Fréttablaðið - 28.09.2007, Blaðsíða 25
Hannes Lárusson myndlistarmaður nýtir blóm
og ber til víngerðar, tínir söl og snýr sér fífu-
kveiki í lampa. Þetta heitir að lifa á landsins
gæðum.
„Ég er búinn að fást við það í um það bil þrjátíu ár
að brugga vín úr jurtum. Byrjaði af menningar-
sögulegum áhuga á að kynna mér allt um mjöðinn
sem mikið var drukkið af í fornöld, meðal annars
hér á Íslandi,“ segir Hannes Lárusson og lýsir
víngerðinni nánar. „Mjöður er búinn til úr vatni,
hunangi, geri og bragðbætandi jurtum og það tekur
hann um 3-4 mánuði að verða góðan. Ég prófaði
mismunandi styrkleika og mismunandi jurtir og
niðurstaðan varð sú að mjöðurinn er bestur 6-9%
sterkur. Mjaðurjurtin gefur besta bragðið, einkum
blómin. Það er ekki af engu sem hún heitir
mjaðurjurt. Það er hunangið sem gefur fyllinguna
og því betra sem það er því betri verður mjöðurinn.
Best er að fá hunang frá Rússlandi eða Kanada.
Síðastliðin fimmtán ár hef ég svo búið til bláberja-
og krækiberjavín. Það er best í kringum 10-12
prósenta styrkleikann. Má ekki verða of sterkt. Það
er fjölskylduaðgerð að tína 20-30 kíló af berjum og
ég nota ekkert nema ber, vatn, ger og sykur. Engin
aukaefni. Í seinni tíð hef ég sett mestmegnis hunang
í berjavínið líka í stað sykurs.
Það tekur ár að búa til gott berjavín. Ég legg í á
haustin og tappa á flöskur ári síðar. Svo geymist
vínið í sex til tólf mánuði í sínum mestu gæðum.
Þroskast ekki með aldrinum eins og rauðvín heldur
verður flatt við geymslu.“
Blóm mjaðurjurtarinnar
eru langbest í mjöðinn
NÝJAR OG BETRI JÚMBÓ
HYRNUR Í NÆSTU VERSLUN