Fréttablaðið - 28.09.2007, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 28.09.2007, Blaðsíða 22
[Hlutabréf] Stjórnendur tveggja erlendra fjár- málafyrirtækja hafa sýnt áhuga á að kaupa búlgarska bankann EIBank, sem er að stærstum hluta í eigu Björgólfs Thors Björgólfs- sonar. Ásgeir Friðgeirsson, tals- maður Björgólfs, segir marga vera áhugasama um EIBank, meðal ann- ars eftir að Búlgaría gerðist aðili að Evrópusambandinu. Ekki sé um neinar formlegar viðræður að ræða og ekkert söluferli farið af stað. Þetta sé hins vegar í fyrsta skipti sem hlustað sé á hugmyndir hugsanlegra fjárfesta. Fyrirtækin tvö sem hafa sýnt EIBank áhuga eru belgíska fjár- málafyrirtækið KBC og spænski bankinn La Caixa. Búlgarskir fjöl- miðlar hafa haldið því fram að nið- urstaða liggi fyrir um næstu mán- aðamót. Björgólfur Thor jók hlut sinn í EIBank, Economic and Investment Bank, um 14,6 prósent í febrúar á þessu ári. Samtals á félag hans, Novator Finance Bulgaria, 48,6 prósent í bankanum. Markaðs- verðmæti EIBank stóð í rúmum 62 milljörðum króna í gær. Hefur gengi félagsins hækkað í kjölfar sögusagna um yfirtöku. Vilja kaupa EIBank Gjaldeyrismarkaður heldur áfram gífurlegum vexti á komandi árum, segir í nýrri spá Saxo Bank í Dan- mörku. Spáin er gerð í kjölfar útgáfu skýrslu Bank for Inter- national Settlement (BIS) þar sem teknar eru saman upplýsingar um gjaldeyrisviðskipti frá 54 seðla- bönkum víðs vegar um heim, auk annarra fjármálayfirvalda. Skýrsla BIS kemur út þriðja hvert ár. Í skýrslu BIS kemur fram að hefðbundið magn viðskipta hefur aukist úr 1,9 billjónum dala á dag árið 2004 í 3,2 billjónir dala á dag í apríl 2007. Ein billjón jafngildir eitt þúsund milljörðum og því nemur magn gjaldeyrisviðskipta á dag í apríl síðastliðnum um og yfir 195 þúsundum milljarða króna, samanborið við tæplega 116 þús- und milljarða árið 2004. „Aukning- in, sem er upp á 70 prósent, er lík- lega sú mesta síðan mælingar hófust,“ segir Claus Nielsen, fram- kvæmdastjóri á sviði miðlunar og nýmarkaða hjá Saxo Bank. „En við spáum áframhaldandi vexti gjald- eyrisviðskipta og að smásöluvelta á gjaldeyrismarkaði sé jafnframt líkleg til að halda áfram að aukast á jafnvel enn meiri hraða.“ Hann segir að eftir því sem þekking aukist á eðli þessara viðskipta komi áhugi á þeim til með að auk- ast enn meira. Gjaldeyrisviðskipti hafa stóraukist á þremur árum Frá árinu 2004 hefur dagvelta gjaldeyris aukist um 70 prósent. Velta nemur nú 195 þúsund milljörðum króna. Peningaskápurinn ... Hlutur FL Group í AMR er kominn í 9,14 prósent. Í tilkynningu frá félaginu er þrýst á um breytingar til að auka virði AMR. Gengi bréfa AMR hefur lækkað um 47 prósent frá því í jan- úar. FL Group kennir meðal annars um slælegri upplýs- ingagjöf. FL Group hefur sent stjórn flugfé- lagsins AMR í Bandaríkjunum bréf og óskað eftir því að hún leiti nýrra leiða til að auka virði félagsins. FL Group er meðal þriggja stærstu hluthafa AMR, sem er einnig er móðurfélag American Airlines, og á í félaginu 9,14 prósenta hlut. Í bréfi FL Group til stjórnar AMR er raunar tiltekinn 8,3 prósenta hlut- ur, en í gegn gengu kaup eftir send- ingu þess. Gengi bréfa AMR hefur lækkað um 47 prósent frá því um miðjan janúar og kostað hluthafa nálægt fimm milljörðum dala, segir FL Group. Tillögur félagsins fela meðal annars í sér að Vildarklúbbur AMR, AAdvantage, verði aðskilinn frá rekstri félagsins, sem og viðhalds- og viðgerðarþjónusta. Hannes Smárason, forstjóri FL Group, bendir á að FL hafi umfangsmikla reynslu af rekstri flugfélaga og félagið telji að stjórn AMR beri að leita nýrra leiða til að auka verð- mæti félagsins. Með því að aðskilja Vildarklúbb félagsins sé hægt að minnka skuldir og auka virði AMR. Virðisaukning með þeirri breytingu einni er metin á fjóra milljarða dala, eða tæplega 250 milljarða króna. FL Group telur sig ekki hafa fengið miklar undirtektir við fyrri ábendingar til stjórnar og kaus því að gera þær opinberar í gær. Standa vonir félagsins til þess að þrýsting- ur kunni að aukast frá öðrum hlut- höfum um breytingar í framhald- inu. Halldór Kristmannsson, fram- kvæmdastjóri samskiptasviðs FL Group, segir félagið sjá tækifæri til framtíðar í rekstri AMR, sem hafi verið ágætur, þótt hann hafi ekki náð væntingum markaðarins. „Við teljum að um sé að kenna upp- lýsingagjöf félagsins og ekki sé nógu gegnsætt hvaða virði leynist innan þess. Gegnsæi og upplýsinga- gjöf þarf að aukast til að stuðla að eðlilegri verðmyndun á markaði. Við vonumst til að eiga góð sam- skipti við stjórn félagsins í fram- haldinu en ljóst að við viljum sjá skjót viðbrögð við tillögum okkar,“ segir Halldór. Ekki þykir hafa blásið gæfulega fyrir fjárfestingar FL Group núna á þriðja ársfjórðungi. Slegið hefur verið á að gengistap FL Group sé nálægt 20 milljörðum. Þannig hafði í gær gengi bréfa Commerzbank lækkað um 19,8 prósent frá lokum annars ársfjórðungs. Þá var virði 3,24 prósenta eignarhlutar FL Group 63,8 milljarðar króna, en hefur síðan lækkað um rúma 12,6 milljarða króna. FL Group hefur hins vegar litið til tækifæra í lækk- andi gengi og aukið við hlut sinn í bankanum. Í vikunni var frá því greint að félagið væri orðið næststærsti hlut- hafi bankans með 4,25 prósenta hlut. Miðað við gengi AMR í gær nemur svo gengistap af hlut FL frá lokum fyrri ársfjórðungs af þeirri eign um fimm milljörðum króna, Finnair hefur lækkað um sem nemur 10 pró- sentum og gengistap þar nálægt 2,4 milljörðum, og af eign í Glitni um tveir milljarðar. Ef svo er tekinn inn í dæmið fjármagns- og rekstr- arkostnaður á borð við þann sem var á öðrum ársfjórðungi eykst kostnað- ur um rúma fjóra milljarða. Á móti kemur svo hagnaður af Inspired Gaming Group sem hækkað hefur um rúm 20 prósent, en var í hálf- sársuppgjöri metið á um 2,3 millj- arða króna. Þá er talið að töluverð dulin verðmæti liggi í eign FL í hol- lenska drykkjarvörufyrirtækinu Refresco. FL Group þrýstir á breytingar hjá AMR HVERNIG KOM FJÖ ÚT Á SÍÐASTA ÁRSFJ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.