Fréttablaðið - 28.09.2007, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 28.09.2007, Blaðsíða 60
„Ég vildi að ég væri sú sem fann upp kynlífið. Kynlíf er númer eitt.“ Um þessar mundir halda Vestmanna- eyingar upp á hundrað ára afmæli Bæjarbryggjunnar sem var tekin í notkun árið 1907. Frá náttúrunnar hendi hefur þó verið höfn í Eyjum frá landnámstíma. „Eins og frægt er orðið var fyrsta kirkjan á Íslandi reist við höfnina í Vestmannaeyjum þegar kristnitakan átti sér stað árið 1000. Svo liðu ald- irnar og árin og alltaf var útgerð frá Eyjum, enda er þar ein af elstu ver- stöðvum Norður-Atlantshafs,“ segir Arnar Sigurmundsson, formaður framkvæmda- og hafnarráðs Vest- mannaeyja. „Fyrsta bryggjan var svo reist þegar vélbátar hófu að koma til landsins og til að sinna þeim betur réðist þetta litla sveitarfélag í að byggja hana. Fljótlega fékk hún nafnið Bæjarbryggjan og í ár minnumst við Vestmannaeyingar þessara tímamóta,“ segir Arnar. Nokkrum árum síðar, eða árið 1911, var bryggjan stækkuð og endanlega mynd fékk hún árið 1925. Nú er hins vegar verið að vinna í að endurgera þessa aldargömlu bryggju og er stefnt að því að hún fái eins upprunalegt útlit og kostur er enda höfðar slíkt bæði til heima- og ferðamanna. „Höfnin í Vestmannaeyjum hefur alltaf verið talin mjög góð og eftir gosið varð hún enn betri því við það þrengdist innsiglingin. Við höfum um tvo kílómetra af bryggjuplássi en það er svo mikil vegalengd að allir eyjarskeggjar gætu raðað sér upp á bryggjunni og myndað óslitna röð á bryggjukantinum,“ segir Arnar svolítið stoltur og bætir því við að íbúar eyjarinnar séu rúmlega fjögur þúsund í dag. „Skipum hefur fækkað með árunum, en á móti hafa þau stækkað svo við höfum virkilega þörf fyrir allt þetta pláss og jafnframt góða þjónustu við skipin. Bæði skemmtiferða- og farskip. Menningartengd ferða- þjónusta er líka stöðugt að sækja í sig veðrið og í okkar tilfelli er þetta einstakt því það er svo margt við menninguna í Eyjum sem tengist höfninni. Stafkirkjan er til dæmis hérna við höfnina og húsið Landlyst, sem er fyrsta fæðingarstofnunin sem reist var á landinu og svo er náttúrlega umhverfið við höfnina, sem er stórskorið og einstaklega fallegt,“ segir Arnar og tekur um leið fram að daglega sé mikið líf við þessa höfn. „Herjólfur siglir til og frá landi tvisvar sinnum á dag og þá eru ónefnd fiski-, flutninga- og skemmti- ferðaskipin. Því er um að gera að búa svo um að hér séu allar aðstæður til fyrirmyndar svo að hafnarlífið haldi áfram að blómstra eins og það hefur gert undanfarnar aldir,“ segir Vest- mannaeyingurinn Arnar Sigurmunds- son. AFMÆLI Bítlarnir slá nýtt met Útgerðarfélagið Hjallasandur á Rifi keypti nýlega bátinn Arneyju HU 136 frá Blönduósi sem heitir nú Bára SH 27. Bára er rúmlega 29 brúttótonn sem er nokkuð minni en sá sem útgerðin seldi nýlega. Að sögn Arnar Arnarsonar, útgerðarmanns og skipstjóra, er það bein afleiðing af niður- skurði aflaheimilda. Nýi báturinn sé betur til þess fallinn að ná afla upp í þær heimildir sem útgerðin hefur yfir að ráða. www.skessuhorn.is Bára á Rifi Elskulega eiginkona mín Kristrún Eiríksdóttir Álfatúni 17, Kópavogi, er látin. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Árni Stefánsson Við þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför Páls Sigurðssonar fyrrverandi skrifstofumanns, Hæðargarði 35, Reykjavík. Þorsteinn Pálsson Ingibjörg Rafnar Valgeir Pálsson Margrét Magnúsdóttir 70 ára afmæli Ása Sigríður Ólafsdóttir Dvalarheimilinu Höfða á Akranesi er 70 ára í dag. Ása, Valur og börn bjóða frændfólki og vinum að gleðjast með sér í tilefni afmælisins laugardaginn 29. september nk. í félagsheimilinu Miðgarði, Innri Akraneshreppi, kl. 15.00. 60 ára afmæli Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri Kópavogs mun halda upp á sextugsafmæli sitt laugardaginn 29. september næstkomandi klukkan 20.00 í Glaðheimum, reiðhöll Gusts í Kópavogi að Álalind 3 í Kópavogi. Vinir og vandamenn eru hjartanlega velkomnir til að samgleðjast Gunnari á þessum tímamótum. Blóm og g jafir eru vinsamlega afþökkuð. Að öðrum kosti þætti Gunnari vænt um að r andvirði g jafar myndi renna til Dvalar, athvarf fyrir fólk með geðraskanir. Reikningsnúmer er 0132-26-00098, kennitala 601098-3269 Ástkær dóttir, eiginkona, móðir og amma, Lísa Björk Steingrímsdóttir Raftahlíð 28, 550 Sauðárkróki, sem andaðist á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki 21. september síðastliðinn, verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 29. september kl. 14.00. Kári Gunnarsson Steingrímur Garðarsson Baldvina Þorvaldsdóttir Atli Kárason Sif Káradóttir Ámundi Rúnar Sveinsson systkini og barnabörn. Seglagerðar - SESSA - sæta Ég ELSKA þig! Gæinn á svarta Benzanum Ps. Feiti rostungurinn sem og ljóti ítalski nef-apinn biðja að heilsa!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.