Fréttablaðið - 28.09.2007, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 28.09.2007, Blaðsíða 16
fréttir og fróðleikur Undarlegur þjófnaður Loftslagsmál í brennidepli á 62. þingi Herforingjastjórnin í Búrma hefur látið til skarar skríða gegn öldu mótmæla, sem hófst í ágúst síðastliðnum og hefur vaxið dag frá degi. Allt bendir til að sagan frá 1988 ætli að endurtaka sig. Munkarnir í Búrma hafa áður gegnt lykilhlutverki í mótmælum og andspyrnu gegn ógnarstjórnum í landinu, bæði gegn bresku nýlendustjórninni á fjórða og fimmta áratug síðustu aldar, og síðar gegn herforingjastjórninni. Þeir áttu meðal annars stóran hlut að andófshreyfingunni árið 1988, sem var barin niður af mikilli hörku. Tímaritið Economist upplýsir að búddamunkar í Búrma séu líklega um það bil 400 þúsund talsins, eða álíka margir og hermennirnir sem stjórnin hefur yfir að ráða. Munk- arnir njóta stuðnings almennings, en hermennirnir hafa vopnavaldið. Herforingjastjórn hefur verið við völd í Búrma allar götur frá árinu 1962. Búrma var nýlenda Breta í rúmlega 60 ár, eða frá 1886 til 1948. Eftir að sjálfstæði fékkst ríkti þar lýðræði í nærri hálfan annan ára- tug, en þá framdi herinn valdarán undir forystu hershöfðingjans Ne Win. Allar götur síðan hefur herinn jafnan barið allar andófstilraunir lýðræðissinna niður af fullri hörku. Fyrst urðu almenn mótmæli árið 1974 þegar gerð var útför U Thant, Búrmamannsins sem um áratug var framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. Næst fór fjöldahreyfing af stað árið 1988 og krafðist lýð- ræðis en herinn braut þá hreyfingu á bak aftur með vopnavaldi. Meira en þrjú þúsund manns týndu þá lífinu. Herstjórnin lofaði þó að efna til kosninga, og stóð við það loforð árið 1990. Lýðræðishreyfing undir forystu andófskonunnar Aung San Suu Kyi vann þá yfirburðasigur, hlaut 392 þingsæti af 489, en herinn tók ekki mark á þeim úrslitum og setti Suu Kyi í stofufangelsi frekar en að sætta sig við að hún yrði for- sætisráðherra. Mótmælaaldan nú í haust hófst upp úr miðjum ágúst eftir að herforingjastjórnin hækkaði verð á eldsneyti skyndilega upp úr öllu valdi. Herinn beitti strax vopnum gegn mótmælendum, en ekki létu allir það stöðva sig og mótmælin héldu áfram, smá í sniðum fyrst í stað en síðan jafnt og þétt vaxandi. Upp úr sauð síðan þegar herinn réðst til atlögu gegn munkum sem efndu til mótmæla í bænum Pakkoko. Nokkrir munkanna urðu fyrir barsmíðum og skotið var úr byssum yfir höfuð þeirra. Eftir þetta fóru munkar landsins af alvöru að mótmæla, kröfðust afsökunarbeiðni frá stjórninni og héldu síðan daglega út á götur helstu borga landsins eftir að sú afsökunarbeiðni barst ekki. Herinn lét mótmælagöngur munkanna afskiptalausar að mestu til að byrja með og smám saman bættist í hópinn. Æ fleiri munkar tóku þátt og æ fleiri íbúar landsins gengu til liðs við þá. Á mánudaginn er talið að hundrað þúsund manns hafi krafist lýðræðis á götum Rangún, og voru mótmælin þá orðin stærri og fjölmennari en þekkst hefur í sögu landsins allt frá árinu 1988. Daginn eftir lét herforingja- stjórnin þau boð út ganga að herlög væru gengin í gildi. Sam- komur eru bannaðar og algert útgöngubann er að næturlagi. Á miðvikudag mætti herinn og skaut aðvörunarskotum að mann- fjöldanum og í gær réðust her- menn inn í fjölda klaustra, brutu þar og brömluðu, börðu munka og handtóku hundruð þeirra. Á annan tug manna hefur misst lífið. Ekki er annað að sjá en að her- foringjastjórnin ætli nú að berja niður mótmælin af fullri hörku, rétt eins og gert var árið 1988. Spurningin snýst um það hvort andstaða almennings við stjórnina sé orðin það sterk að valdbeiting hersins nægi ekki til að stöðva öldu mótmælanna. Væntanlega kemur það smám saman í ljós næstu vikur og mánuði. Vopnavaldi beitt gegn munkum Avant hf., kt. 561205-1750, hefur gefi› út l‡singar vegna skráningar víxla sem OMX Nordic Exchange Iceland hf. hefur samflykkt og gert a›gengilega almenningi frá og me› 28. september 2007. Eftirfarandi víxlaflokkar hafa veri› gefnir út: • Víxlaflokkur a› fjárhæ› kr. 2.000.000.000 var gefinn út flann 27. júní sl. og er au›kenni flokksins í OMX Nordic Exchange Iceland hf. AVAN 07 1002. Víxlarnir eru vaxtalaus eingrei›slubréf sem skulu endurgrei›ast flann 2. október 2007. Víxlarnir ver›a skrá›ir í OMX Nordic Exchange Iceland hf. flann 28. september 2007. • Víxlaflokkur a› fjárhæ› kr. 660.000.000 var gefinn út flann 14. ágúst sl. og er au›kenni flokksins í OMX Nordic Exchange Iceland hf. AVAN 08 0814. Víxlarnir eru vaxtalaus eingrei›slubréf sem skulu endurgrei›ast flann 14. ágúst 2008. Víxlarnir ver›a skrá›ir í OMX Nordic Exchange Iceland hf. flann 28. september 2007. L‡singar flessar er hægt a› nálgast hjá útgefanda Avant hf., Su›urlandsbraut 12, 108 Reykjavík í eitt ár frá birtingu l‡singanna. L‡singarnar er einnig hægt a› nálgast vefsetri útgefanda Avant, www.avant.is. Umsjónara›ili skráningarinnar er Kaupfling banki hf. Reykjavík 28 september 2007
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.