Fréttablaðið - 28.09.2007, Blaðsíða 57

Fréttablaðið - 28.09.2007, Blaðsíða 57
Mannauður er af mörgum talinn ein verðmætasta auðlind fyrirtækis. Þegar hlúð er að starfsfólki hefur það áhrif á líðan og ánægju og getur aukið afköst og trúnað og minnkað starfs- mannaveltu fyrirtækja. Vaxandi áhersla er hér á landi og víða erlendis á að nýta náms- og starfsráðgjöf í aðgerðum til að auka menntun og þjálfun starfs- fólks og þar með auka samkeppnis- hæfi fyrirtækja og þjóðar. Í tengslum við verkefnið Náms- og starfsráðgjöf á vinnustað (sjá mimir.is) býðst fyrir- tækjum og stofnunum að fá ráðgjafa í heim- sókn, þeim að kostnaðar- lausu. Markmiðið er að hvetja fólk til virkrar símenntunar og efla færni sína, veita upplýs- ingar um námsframboð og aðstoða það við að finna nám við hæfi. Mörg fyrirtæki sinna fræðslu- málum mjög vel og bjóða starfs- mönnum upp á ýmiss konar fræðslu á vinnutíma og utan hans. Til hvers þá að fá náms- og starfsráðgjafa í heimsókn? Með því að ræða við náms- og starfs- ráðgjafa gefst einstaklingum tæki- færi til að skoða og ræða eigin stöðu til dæmis áhuga og hæfni, átta sig á hvaða möguleikar eru í boði varðandi nám og gera áætlun um hvert skal stefna. Þannig má auðvelda fólki að taka ákvörðun um nám og/eða frekari þróun í starfi eða sækja nám og námskeið sem veita hverjum og einum aukna ánægju í frístundum. Vandi margra sem vilja auka menntun sína er að átta sig á þeim möguleikum sem eru í boði og finna nám við hæfi. Framboð skóla, stéttarfélaga, símenntunar- miðstöðva og ýmissa fræðslufyrir- tækja á námi hefur aldrei verið meira en nú. Sem dæmi má nefna að hægt er að stunda nám á ýmsum starfstengdum náms- brautum framhaldsskóla í kvöld- og fjarnámi. Þá eru í boði ýmsar lengri óformlegar námsleiðir á símenntunarmiðstöðvum, til dæmis verslunarfagnám fyrir starfsfólk í verslun og þjónustu og Landnemaskólinn fyrir innflytj- endur. Margir skólar og fyrirtæki bjóða að auki upp á styttri nám- skeið svo sem tölvu- og tungumála- nám. Fleiri þættir s.s. tímaskortur eða vandi tengdur lestri eða ritun getur verið hindrun fyrir einstakl- inga í að taka ákvörðun um nám. Í því sambandi má nefna námsleiðir eins og Aftur í nám sem er ætluð fólki sem komið er af unglingsaldri sem glímir við lestrar- og skriftar- örðugleika. Tilgangur námsins er að þjálfa nemendur í lestri og skrift, auka hæfni til náms og starfa og stuðla að jákvæðu við- horfi til frekara náms. Með því að veita starfsmönnum svigrúm til að taka þátt í verk- efninu Náms- og starfsráðgjöf á vinnustað eru fyrirtæki að bjóða upp á þjónustu sem hingað til hefur ekki verið í boði fyrir fólk á vinnumarkaði. Ávinningur fyrir- tækis ætti meðal annars að felast í aukinni færni, starfsánægju og almennri lífsánægju starfsmanna. Styrkur starfsmanna er styrkur fyrirtækis. Höfundur er náms- og starfsráðgjafi hjá Mími – símenntun. Styrkur starfsmanna er styrkur fyrirtækis Au ka bú na ðu r á m yn d: Ál fe lg ur www.peugeot.is Vatnagörðum 24 - 26 Sími 520 1100 www.bernhard.is Umboðsaðilar: Bernhard, Reykjanesbæ, sími 421 7800 Bílver, Akranesi, sími 431 1985 Höldur, Akureyri, sími 461 6020 Bragginn,Vestmannaeyjum, sími 481 1535 Það er lúxus að geta fengið allt sem Peugeot 407 býður sem staðalbúnað á kr. 2.470.000. Það er ennþá meiri lúxus að njóta þess að aka Peugeot á götum borgarinnar. Láttu lúxus- inn leika við þig – veldu Peugeot 407. og spólvörn 2.470.000 PEUGEOT 407
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.