Fréttablaðið - 28.09.2007, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 28.09.2007, Blaðsíða 78
Þórhallur Gunnarsson, dag- skrárstjóri RÚV, sýndi starfs- mönnum sínum á miðvikudaginn að hann er fær í flestan sjó. Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir, sem er þaulreynd fimleikakona, skoraði á yfirmann sinn um hvort þeirra gæti gengið lengra á höndum um gólfin í Efstaleit- inu. Og taldi fullvíst að hún væri með pálmann í höndunum. Sam- starfsmennirnir horfðu á sjón- varpskonuna ganga um gólf á höndunum og voru handvissir um að Þórhallur gæti engan veg- inn leikið þetta eftir. Og hvað þá slegið Ragnhildi við. En Þórhallur sýndi að hann er síður en svo dauður úr öllum æðum, setti hendurnar í gólfið og gekk ekki eingöngu jafnlangt heldur helmingi lengra en Ragn- hildur, heila sex metra, starfsfólkinu og keppinauti sínum til mikillar undrunar. Enda Þórhallur ekki beint þekkt- ur fyrir að setja sig í fimleika- stellingar. Lengi býr hins vegar að fyrstu gerð því samkvæmt heimildum Fréttablaðsins á Þórhallur sér fortíð úr fimleikum, æfði íþrótt- ina þegar hann var ellefu ára með Gerplu og þótti kattliðugur í leiklistarskólanum á sínum yngri árum. Hann vildi hins vegar ekki tjá sig um málið þegar Fréttablaðið leitaði eftir því. 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 „Það var engin sérstök þörf fyrir skóla eins og HA og ég held að það hafi verið mistök að setja hann á stofn.“ Þórhallur labbar á höndum Ívar Guðmundsson og Arnar Grant tóku upp sjónvarpsauglýsingu fyrir prótínsúkkulaði sitt, Hreysti, á dög- unum. Þeir fetuðu nokkuð bókstaf- lega í fótspor boxhetjunnar Rocky. „Við vildum endurgera hið ódauð- lega æfingaprógramm sem Rocky notaði í myndunum sínum fjórum,“ útskýrði Ívar en þeir félagar þykja með hrikalegri mönnum á velli og pössuðu því vel inn í hlutverkin. Ívar og Arnar hófu leika í Naut- hólsvíkinni í tveggja stiga hita, þar sem þeir endurgerðu hlaupaatriði úr þriðju myndinni um Rocky. „Svo fórum við í gamla skemmu í Skútu- vogi. Þar var settur upp boxhring- ur, aðstaða til að sippa, upphífingar- slá og fleira,“ útskýrði Ívar, sem sagði ýmislegt hafa verið gert til að finna sem Rocky-legust æfingaföt. Næst ná leiðin í kæligeymslu, þar sem Ívar og Arnar gengu í skrokk á nautaskrokki. „Hann var orðinn mjög meyr og góður þegar við vorum búnir, við vorum að spá í að kaupa hann,“ sagði Ívar hlæjandi. Þrettán tíma tökunum lauk svo við Flensborgarskólann í Hafnar- firði, þar sem tökuliðið reyndi að endurskapa hið víðfræga atriði þegar Rocky hleypur upp tröppurn- ar við listasafnið í Philadelphia. „Það verður að viðurkennast að það var farið að síga svolítið í okkur undir lokin. Daginn eftir var eins og það hefði verið gengið yfir mann,“ sagði Ívar og hló við. Auglýsingin fer í sýningar á næstu vikum. Ívar og Arnar Grant munda byssurnar „Við sáum þarna einfaldlega kær- komið tækifæri og vildum taka þátt í því endurreisnarstarfi sem hefur verið í gangi í Þingholtun- um,“ segir bæjarfulltrúinn Eyþór Arnalds en hann og eiginkonan Dagmar Una Ólafsdóttir keyptu í sumar hundrað ára gamalt timbur- hús við Þingholtsstræti 21. Hjónin hafa sótt um leyfi hjá skipu- lagsfulltrúa Reykjavíkurborgar fyrir því sem Eyþór segir vera „gagngerar endurbætur á húsinu í anda upphaflegrar hönnunar þess“ en eignin mun stækka töluvert og verður 420 fermetrar þegar þeim framkvæmdum er lokið. „Sumir kaupa sér sumarbústað í sveitinni en við snúum dæminu við því þetta verður eiginlega okkar „bústaður“ í borginni,“ bætir Eyþór við, sem alla jafna býr í sveitasælunni í Árborg. Að sögn Eyþórs var húsið í hálfgerðri niðurníðslu þegar þau keyptu það en hjónin ætla að bretta upp ermarnar við að koma því aftur í sitt upprunalega horf. „Við ætlum ekki að ráðast í einhverja nútímavæðingu og niður- rifsstarfsemi,“ segir Eyþór. Hjónin hafa fengið arkitektinn Pál Bjarnason til liðs við sig en hann á meðal annars heiðurinn af endur- reisn Iðnó. „Að rífa ný hús virðist vera í tísku og kemur sennilega betur út á Excel-skjali,“ segir Eyþór. Bæjarfulltrúinn í Árborg vildi ekki gefa upp hversu mikið hann hefði borgað fyrir eignina en sam- kvæmt heimildum Fréttablaðsins er fermetraverðið í Þingholtunum með því hæsta í höfuðborginni og getur farið upp í allt að þrjú hundruð þúsund. Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst er venjan að óskað sé eftir tilboðum í eignir á þessu svæði en fastlega má gera ráð fyrir því að verðið hafi ekki verið undir 100 milljónum. Með fyrirhugaðri stækkun verður það hins vegar ríflega 120 milljóna króna virði. Eyþór segist vera lítið smeykur við meintan miðbæjarskríl í 101 enda séu engir veitingastaðir eða ölstofur í næsta nágrenni. „Og svo er fólk náttúrlega svo misjafnt. Við erum til að mynda ekki mikið á ferli eftir kvöldmat,“ segir Eyþór.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.