Fréttablaðið - 28.09.2007, Blaðsíða 74

Fréttablaðið - 28.09.2007, Blaðsíða 74
 Eftir frekar brösugan fyrri hálfleik þar sem markvörð- urinn Arpad Sterbik hélt Ciudad Real á floti gegn Flensburg setti spænska liðið í gírinn og hreinlega kaffærði þýska liðið. Lokatölur urðu 26-34 í skemmtilegum leik. Aðeins einn Íslendingur hóf leikinn í gær og það var Alexander Petersson. Einar sat á bekknum sem fyrr hjá Flensburg en Ólafur er vanur að spila síðustu 15 mínúturnar af hvorum hálfleik. Einar fékk aftur á móti mjög óvænt tækifæri eftir sjö mínútur þegar Pólverjinn Lijewski fékk að hvíla sig í 2 mínútur. Það mátti sjá á Einari hann ætlaði svo sannar- lega að nýta sér sjaldséð tækifæri því hann var fljótur að láta til sín taka. Fyrsta skotið var þröngvað og auðveldlega varið af hinum frá- bæra Sterbik sem varði 14 skot í fyrri hálfleik. Einar lét það ekki slá sig út af laginu og skoraði tvö mjög góð mörk áður en hann var aftur tekinn af velli. Ólafur skoraði tvö mörk í röð þegar hann kom inn á og við það komst Ciudad yfir í eina skiptið í fyrri hálfleik, 7-8. Annars var Flensburg alltaf skrefi á undan og leiddi með einu marki í leikhléi, 14-13. Síðari hálfleik verður best lýst með einu orði – aftaka. Það var lyginni líkast að fylgjast með stór- kostlegu liði Ciudad Real brjóta hið sterka Flensburgar-lið niður í öreindir. Ciudad skoraði fjögur fyrstu mörk hálfleiksins og leit aldrei til baka eftir það. Um miðj- an hálfleikinn var staðan orðin 17- 26 eða 3 mörk Flensburg gegn 13 mörkum spænska liðsins í seinni hálfleik. Það voru fyrst og fremst frábær varnarleikur og vel útfærð hraða- upphlaup sem skiluðu þessu lygi- lega forskoti. Ólafur var í essinu sínu, lagði upp hvert markið á fætur öðru og spilaði þess utan frábæran varnarleik. Einar kom af bekknum á ný þegar 20 mínútur voru eftir en hann fann sig ekki frekar en aðrir leikmenn Flensburg. Áfallið dundi svo yfir þegar átta mínútur lifðu leiks er Einar féll í gólfið sárkval- inn. Hann var borinn á brott á sjúkrabörum undir dynjandi lófa- klappi áhorfenda sem sýndu stuðn- ing sinn við hann. Vonandi eru meiðsli hans ekki í samræmi við kvalirnar. Alexander náði aldrei að sýna sitt rétta andlit enda var horna- spilið ekkert hjá Flensburg og Alex náði ekki takti frekar en Lars Christiansen. Ciudad Real sýndi mátt sinn í síðari hálfleik gegn Flensburg í gær. Þá litu þýsku leikmennirnir út fyrir að vera áhugamenn við hliðina á gríðarsterku og vel skipulögðu liði Spánverjanna. Meistaradeildin í handbolta Ólafur Stefánsson lék listir sínar á fjölum Campushalle og arftakar hans í landsliðinu – Alexander Petersson og Einar Hólmgeirsson – lærðu vonandi af landsliðsfyrirliðanum. Ólafur var brattur þegar Fréttablaðið hitti á hann eftir leik en hann varð fyrst að hlusta á vænta messu frá Dujshebaev þjálfara áður en hann mátti koma í viðtöl. Spænski þjálfarinn var óvenju hávær miðað við stórsigur síns liðs. „Hann var bara að fara yfir hlutina. Hann vill gera það kallinn,“ sagði Ólafur léttur en hann var sáttur við leik síns liðs í síðari hálfleik. „Vörnin var frábær sem og hraðaupphlaup. Sóknarleikurinn var líka flottur. Það var gott að hanga í þeim í fyrri hálfleik.“ Eins og áður segir var Ólafur að leika vel sem fyrr og hann var nokkuð sáttur við eigið framlag. „Smá varnarmistök í upphafi fyrri hálfleiks en svo kom þetta. Ég þarf að læra að maður þarf að koma strax af bekknum og vera hress,“ sagði Ólafur en hvernig finnst honum að mæta félögum sínum í landsliðinu? „Það er alltaf gaman að hitta strákana og svo skiptir máli hvort þeir spili vörn á móti manni. Þeir voru passlega langt frá mér strákarnir í dag. Þetta er öðruvísi og skárra en þegar Patti var að lemja á manni í gamla daga. Það var alltaf heiður og gaman að mæta Patta,“ sagði Ólafur og glotti í kampinn. Skárra en þegar Patti var að lemja á mér Það var erfitt að horfa upp á Breiðhyltinginn Einar Hólmgeirsson verða fyrir þriðja áfallinu á einu ári þegar hann meiddist í leiknum á móti Ciudad Real í Campushalle í gær. Einar hefur lítið sem ekkert spilað með Flensburg í vetur en hann fékk langþráð tækifæri í gær. Hann náði þó ekki að klára leikinn því hann hneig niður átta mínútum fyrir leikslok og var sárþjáður. „Ég var í loftinu og lendi eitt- hvað illa og svo finn ég þennan svakalega sársauka í innanverðu lærinu og þeir halda að vöðvinn sé rifinn í tvennt,” sagði Einar en hann trúði því vart að hann væri að lenda í enn einu áfallinu. Á þessari stundu er alls óvíst hversu alvarleg meiðslin eru en Einar gæti verið frá í nokkrar vikur eða mánuði. „Þetta kemur betur í ljós í rannsóknum á morgun í [dag] en ég vil helst ekkert spá í hvað ég verð lengi frá. Þetta lítur í það minnsta ekki vel út. Þetta eru þriðju alvarlegu meiðslin á einu ári og ég er alveg búinn að fá nóg af þessu,“ sagði Einar áður en hann fór á hækjum út í bíl. Líklega með rifinn lærvöðva Alexander Petersson var ekki nema skugginn af sjálfum sér í gær og lék langt undir getu. Hann var ekki par sáttur eftir leik. „Ég fann mig aldrei í leiknum og á stundum fannst mér ég hreinlega vera einhvers staðar annars staðar. Þetta var fyrsti leikurinn minn í Meistaradeild- inni og það gegn stóru liði. Þetta var svolítið erfitt og ég var ekki alveg með sjálfum mér,“ sagði Alexander, sem var ekki síður ósáttur við síðari hálfleikinn. „Fyrri hálfleikur var fínn en þeir voru mun ákveðnari en við í seinni og kaffærðu okkur hreinlega á örfáum mínútum. Við svekkjum okkur ekkert á þessu enda verðum við sáttir við annað sætið í riðlinum. Það er mikil- vægari leikur um næstu helgi í deildinni gegn Hamburg og við byrjum að hugsa um hann núna,“ sagði Alex að lokum. Fann mig aldrei
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.