Fréttablaðið - 28.09.2007, Qupperneq 13
rafhlöðutækni fyrir farsíma og far-
tölvur til að sjá að mikil þróun er
fram undan í rafhlöðutækni fyrir
farartæki.
Í erindi sem Gerbrand Ceder, efn-
isfræðingur við MIT-háskólann í
Bandaríkjunum sem unnið hefur að
rannsóknum á rafhlöðutækni, hélt á
ráðstefnunni Driving Sustainability,
kom fram að sú efnasamsetning
sem reynzt hefði bezt í rafhlöður
fyrir farsíma og fartölvur hentaði
miklu síður fyrir farartæki. Hún
væri bæði of dýr og skammhlaups-
hætta of mikil þegar slíkar rafhlöð-
ur væru komnar í þá stærð sem
þyrfti í bíl. Nú væru mestar vonir
bundnar við að þróa megi liþíum-
járn-hýdríð-rafhlöður þannig að
þær leysi vandann. Þær verði bæði
nægilega léttar og fyrirferðarlitlar,
þær geti geymt næga orku og verið
hlaðnar og afhlaðnar á nægilega
skömmum tíma – og verið öruggar
(ekki skammhlaups- eða eldhætta,
ekki efnamengunarhætta). Síðast
en ekki sízt verður hún að vera
nægilega ódýr í framleiðslu.
Reyndar er nú komin á markað
tækni sem gerir ástæðulaust að bíða
eftir því að hin fullkomna rafbíla-
tækni verði fullþróuð. Það er tvinnt-
æknin svokallaða, þar sem sami bíll
er búinn bæði hefðbundnum spreng-
ihreyfli og rafmótor. Toyota í Japan
gerðist frumkvöðull að því að setja
slíka bíla á markað fyrir tíu árum en
fyrirtækið hefur nú selt yfir eina
milljón tvinnbíla. Þar á meðal er
Lexus-bíll forseta Íslands.
Margir aðrir bílaframleiðendur
eru líka farnir að bjóða slíka bíla.
Framan af voru til að mynda bíla-
framleiðendur í Evrópu vantrúaðir
á tvinntæknina, enda er hún dýr og
flókin og skilaði að minnsta kosti í
fyrstu ekki meiri eldsneytissparnaði
en nýjasta kynslóð díselbíla gerði
ein og sér.
Á nýafstaðinni bílasýningu í
Frankfurt í Þýzkalandi, sem er
stærsta sýning sinnar tegundar í
heiminum, kepptust bílaframleið-
endur við að sýna hvað þeir væru að
gera til að bæta „græna“ ímynd
sína. Í næstu grein þessa greina-
flokks verður betur farið út í dæmi
um þær umhverfisvænu tækni-
lausnir sem bílaframleiðendur eru
að vinna að.
Það sem gefur þó fyrirheit um að
skila enn betri árangri, sérstaklega
fyrir íslenzkar aðstæður, er tengil-
tvinntæknin. Það er tækni sem „sam-
einar það bezta úr báðum heimum,“
eins og Felix Kramer, stofnandi Cali-
fornia Cars Initiative, komst að orði í
máli sínu á ráðstefnunni Driving
Sustainability, það er býður upp á
kosti rafbíls (mengunarleysi, orku-
nýtni) en drægi bensínbíls.
Tengil-tvinntæknin felst í því að
setja stærri rafhlöðu í tvinnbíl og
láta hreyfillinn ekki einn um að
hlaða rafhlöðuna heldur er hún hlað-
in (gjarnan á nóttunni) með því að
stinga í samband við venjulega
heimilisinnstungu. Þannig getur
bíllinn gengið að miklu meira leyti á
rafmagni og innlend raforka þar
með komið í stað bensíns (eða ann-
ars innflutts eldsneytis) til að knýja
bílinn, sérstaklega í innanbæjarum-
ferð, og dregið jafnframt stórlega
úr loftmengun.
Þegar er einn slíkur bíll kominn í
umferð hér á landi. Það er Toyota
Prius sem fyrir tilstuðlan Orku-
seturs var breytt í tengilbíl af
sérfræðingum Amberjac Projects í
Bretlandi. Það var gert að fyrirmynd
California Cars Felix Kramers, sem
voru fyrstir til að gera slíka breyt-
ingu á tvinnbíl. Að sögn eiganda
bílsins, Guðmundar Árnasonar,
lofar fyrsta reynslan góðu. Toyota
hefur einnig boðað að fljótlega komi
Priusinn á markað í tengilútgáfu frá
verksmiðjunni. Guðmundur segir
þá útgáfu reyndar verða með mun
minni rafhlöðu en sett hafi verið í
sinn bíl.
Annar kostur við tvinntæknina er
að hún útheimtir engar dýrar breyt-
ingar á eldsneytis- og orkudreifi-
kerfi landsins.
Á áðurnefndri ráðstefnu um fram-
tíðarorkulausnir í samgöngum var
hart sótt að vetninu og því haldið
fram að það gæti aldrei orðið slík
lausn. Ulf Bossel, talsmaður Europ-
ean Fuel Cell Forum sem hefur höf-
uðstöðvar í Sviss, gekk svo langt að
lýsa því yfir að vetnissamfélagið
ætti sér enga framtíð. Aðalrök Boss-
els fyrir þessu eru þau, að fram-
leiðsla vetnis og dreifing verði af
eðlisfræðilegum ástæðum ávallt of
orkufrek og verði því þrisvar til
fjórum sinnum dýrari kostur til að
knýja farartæki en rafmagn. Að
nota vetni til að knýja efnarafal til
að knýja rafmagnsbíl eigi þannig
enga framtíð fyrir sér í samanburði
við hreinræktaðan rafmagnsbíl.
Þessu andmæltu Þorsteinn I. Sig-
fússon, forstöðumaður Nýsköpun-
armiðstöðvar, og Jón Björn Skúla-
son, framkvæmdastjóri Íslenskrar
nýorku. Sakaði Þorsteinn Bossel um
að taka ekki tillit til aðstæðna. Á
Íslandi væru aðstæður til vetnis-
framleiðslu miklu hagstæðari en til
að mynda á meginlandi Evrópu. Jón
Björn benti á, að stórfyrirtækin í
bílaiðnaðinum og aðrir aðilar væru
ekki að fjárfesta þær upphæðir sem
raun ber vitni í vetnistækninni ef
þau tryðu því ekki að hún ætti fram-
tíð fyrir sér.
Á ráðstefnunni talaði líka Baldur
Elíasson, sem lengi starfaði hjá ABB
í Sviss, fyrir því að vetni væri frekar
nýtt til að framleiða metanól (tré-
spíra). Slík framleiðsla gæti tekið
mikinn koltvísýring frá iðnaði úr
umferð, þar sem aðalhráefnið í
metanól er vetni og koltvísýringur.
Metanól er fljótandi eldsneyti sem
hægt er að flytja og nýta með sama
hætti og bensín eða etanól. En gegn
því mælir hve mikil orka tapast í
ferlinu, auk þess sem það skiptir
máli að tréspíri er eitraður. Eins og
Jón Björn Skúlason benti á í and-
svari hafa olíufyrirtækið Shell og
Daimler-Chrysler (sem nú hefur
verið skipt aftur upp í Daimler og
Chrysler) hætt tilraunum með met-
anól sem eldsneyti en fjárfesta hins
vegar enn í þróun vetnistækninnar,
meðal annars hér á landi.
Í samantekt má segja, að engin ein
lausn muni taka við af olíu-
grundvallaða samgöngukerfinu.
Framtíðin liggur öllu heldur í
fjölorkukerfi, þar sem allir fáanlegir
orkugjafar eru nýttir í blöndu sem
fer eftir aðstæðum á hverjum stað.
Á Íslandi mun rafmagn tvímælalaust
verða langmikilvægasti orkugjafinn
í samgöngum framtíðarinnar.
Öllum seldum vélum fylgir títuprjónasegull og geymsluhringur fyrir spólur.
25% afsláttur af öllum fylgihlutum fyrir saumavélar,
s.s. forritum, quiltborðum, útsaumsdiskum, nálum, fótum, tvinna o.fl.
FÖSTUD. KL. 15-17 OG LAUGARD. KL.13-16
ÁSDÍS ERLA GUÐJÓNSDÓTTIR FRÁ FÖNDUR.IS
VERÐUR MEÐ SÝNIKENNSLU OG KYNNIR NÝJUSTU
BÚTASAUMSSNIÐIN SEM HÚN HANNAR.
LAUGARD. KL.13-16 ÞÓRUNN SÍMONARDÓT-
TIR FRÁ TEXTÍL GALLERÝ SÝNIR Á GRAND QUILTER
SAUMAVÉLINA.
BÚTASAUMSDAGAR Föstudag 11:00-18:00Laugardag 11:00-16:00
PFAFF 2048 QUILT EXPRESSION
KR. 119.900.-
PFAFF 2056 KR. 159.900.-
NÝ ÞÆFINGARVÉL KR. 29.900.-
PFAFF EXPRESSION 2028 KR. 84.900.-
QUILTERS CUT AÐ UPPHÆÐ KR. 8.000 FYLGIR MEÐ
BÚTASAUMSSETT AÐ UPPHÆÐ KR. 19.700.- FYLGIR MEÐ
5 NÁLA VÉL, SEM NÁLAR EFNI SAMAN, TILVALIÐ Í ULLARVINNSLUU HÆGT
AÐ VINNA MEÐ ULLARVOÐ, ULLARKEMBU, LOPA OG MARGT FLEIRA.
QUILTERS CUT AÐ UPPHÆÐ KR. 8.000 FYLGIR MEÐ
Sérfræðingar kynna vinsælustu bútasaumsvélarnar frá Pfaff og Husqvarna