Fréttablaðið - 28.09.2007, Page 32
BLS. 4 | sirkus | 28. SEPTEMBER 2007
„Við hættum með rekstur fyrir um
tveimur árum og höfum verið að
skoða ýmsa möguleika síðan þá,“ segir
Guðrún Möller, flugfreyja og fyrrum
fyrirsæta, sem rak verslunina Thyme
Maternity, en hún og eiginmaður
hennar keyptu nýlega meirihlutann í
Snyrtiakademíunni og heildverslun-
ina Hjöl. „Ég er rosalega spennt fyrir
þessu. Þetta er lifandi fyrirtæki og
húsnæðið ávallt fullt af fólki. Þetta er
svona eins og að vera komin aftur í
menntaskóla,“ segir Guðrún, sem
þekkir þennan heim vel í gegnum
starf sitt sem fyrirsæta. „Ég hef unnið
við tískusýningar og hin ýmsu módel-
störf frá því ég var unglingsskvísa. Ég
er ekki menntuð sem snyrtifræðingur
en kem af hliðarlínunni og þekki
bransann þá leiðina.“ Guðrún stundar
nám í mannauðsstjórnun við Endur-
menntun Háskóla Íslands og rekur
stórt heimili en þau hjónin eiga fjögur
börn svo það er í nógu að snúast.
Aðspurð segir hún lítið mál að sam-
eina móðurhlutverkið og bisnessinn.
„Það hjálpast allir að og við pössum
hvert annað. Við eigum líka góða að
og fjölskyldurnar okkar og vinir eru
duglegir að hjálpa okkur.“ Hægt er að
lesa meira um Snyrtiakademíuna á
heimasíðunni www.snyrtiakademian.
is indiana@frettabladid.is
Guðrún Möller, flugfreyja og fyrrum fyrirsæta,
hefur keypt meirihlutann í Snyrtiakademíunni.
Þekkir bransann
af hliðarlínunni
GUÐRÚN MÖLLER „Ég hef unnið við
tískusýningar og hin ýmsu módelstörf
frá því ég var unglingssvísa. Ég er ekki
menntuð sem snyrtifræðingur en kem af
hliðarlínunni og þekki bransann þá
leiðina.“ MYND/EYÞÓR
N ú er ég farin að birtast annars staðar og varð því að hætta á
RÚV,“ segir Ellý Ármanns, ein þekkt-
asta sjónvarpsþula landsins, sem
kvatt hefur áhorfendur eftir sjö ára
starf sem þula.
Ellý er þó ekki alfarin af skjánum
því í dag hefst afþreyingarþáttur
hennar á vefvarpi mbl.is.
„Ég mun fara á frumsýningar, í leik-
hús og tala við tónlistarfólk og þá sem
eru að gera eitthvað spennandi. Hægt
verður að fylgjast með þessu öllu
saman á netinu. Ég ætla að taka púls-
inn á Íslendingum því ég hef engan
áhuga á París Hilton,“ segir Ellý, sem
var á árinu valin vinsælasti bloggari
landsins. Nú er hún hætt að blogga og
aðspurð segist hún ekki ætla að taka
upp þráðinn þótt hún sé farin yfir á
mbl. „Það var komið nóg af bloggi en
hins vegar mun ég kannski komast
upp með meira vegna bloggsins. Fólk
tekur mér með meiri fyrirvara, veit að
ég er með húmor, svo ég get látið allt
flakka,“ segir Ellý, sem mun sakna
þulustarfsins.
„Ég mun sakna fólksins í Efstaleiti,
þetta var mjög góður tími, hins vegar
eru spennandi tímar fram undan og
það er skemmtilegast að fá að taka
þátt í sjónvarpsævintýrinu á mbl.is
frá byrjun.“ indiana@frettabladid.is
NÝTT UPPHAF HJÁ ELLÝ ÁRMANNS
Verður vefsjón-
varpsstjarna!
HÆTT VIÐ BÓKAÚTGÁFU Í sumar birtust fregnir af því að Ellý væri að skrifa skáldsögu sem ætti að koma út fyrir jólin. Nú hefur hún
hætt við það því hún segir að það séu engir peningar í bókaútgáfu.
Tónlistarmaðurinn og pólitíkusinn
Eyþór Arnalds og eiginkona
hans, Dagmar Una Ólafs-
dóttir, eiga von á sínu fyrsta barni
saman í lok ársins. Dagmar Una, sem
er 26 ára, er komin rúmar 26 vikur á
leið en hún er sett á 27. desember svo
um jólabarn verður að ræða.
Hjónakornin vita kynið en ætla að
halda því fyrir sig fram að fæðingu.
Human Child Eivör
Forever Pavarotti
All The Last Souls James Blunt
Íslandslög 1-6 (6CD) Ýmsir
Pottþétt 44 Ýmsir
Frágangur Megas og Senuþjófarnir
Kill to get crimson Mark Knopfler
Íslandslög 7 Ýmsir
Cortes 2007 Garðar Thor Cortes
Curtis 50 Cent
Life in Cartoon Motion MIKA
Graduation Kanye West
From the heart Katherine Jenkins
Snákar í garðinum Rúnar Júl
Back To Black Amy Winehouse
Very Best Of D.Krall Diana Krall CD+DVD
Midnight circus Vilhelm Anton
Astropía Ýmsir
Bláir skuggar Sigurður Flosason - kvartett
Alltaf að græða Millarnir
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
Það er kóngurinn sem er í 2.sætinu Pavarotti
sjálfur og er nú megnið af hans diskum komið í
Skífuna sem unnendur Pavarotti ættu ekki að láta
framhjá sér fara.
Pavarotti
Nældu þér í eintak
Li
st
in
n
g
ild
ir
v
ik
un
a
28
.
se
p
te
m
b
er
-
4.
o
kt
ób
er
2
00
7
A N Lækkar frá síðustu viku Hækkar frá síðustu viku Stendur í staðNýtt á listaAftur á lista
Skífulistinn er samantekt af mest seldu plötunum í
Skífunni og verslunum BT út um allt land.
N
N
N
N
N
N
Astropía
N
Astrópia kemur ný inn á listann í þessari viku og
kannski ekki skrítið. Hörku góð tónlist í þessari
mynd og nú tæplega 50 þúsund manns búin að
sjá myndina.