Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.09.2007, Qupperneq 40

Fréttablaðið - 28.09.2007, Qupperneq 40
 28. SEPTEMBER 2007 FÖSTUDAGUR4 fréttablaðið í skólanum Í lítilli og lauslegri könnun í tveimur framhaldsskólum kom í ljós að meirihluti nemendanna vinnur með náminu. Tuttugu voru spurðir í hvorum skóla og hlutföllin voru eins í báðum. Tólf að vinna en átta ekki. Þótt könnunin væri nafnlaus stakk blaðamaður hjá sér stöku setningu sem nemendurnir létu fylgja með jákvæðu svari sínu eins og: „Það er allt svo dýrt að við verðum að vinna,“ og „Ef maður ætlar að eiga einhvern pening þá er eina ráðið að vinna,“ eða „Ef maður vill vera á bíl þá þýðir ekkert annað en afla tekna á móti.“ Agla Sigríður Björnsdóttir hjá vinna.is hefur lengi starfað við ráðningar. Hún telur að þeim fari fækkandi sem vinna með skólanum frá því sem áður var. „Ég er ekki með haldbærar tölur en það er mín tilfinning að heldur hafi dregið úr vinnu ungmenna með skóla og þau geri æ meiri kröfur um frítíma. Ég held líka að ungt fólk eigi auðveldara með að fá lán hjá bankastofnunum en áður og geti velt skuldum yfir á sumarið. Það hefur sitt að segja.“ Agla segir háskólanemendur taka frekar að sér vinnu við ræstingar og símasölu en í verslunum enda sé vinnutíminn þar yfirleitt styttri. Ægir Már Þórisson er mann- auðsstjóri hjá Capacent. Hann segir úthringistörf í tengslum við kannanir vera lið í starfsemi fyrirtækisins og þau séu að nokkru leyti mönnuð með fram- haldsskólafólki. „Starfsstöðin á Akureyri er mun stærri en á höfuðborgarsvæðinu og þar erum við með öflugan hóp úr Verkmenntaskólanum, og Menntaskólanum á Akureyri í vinnu á kvöldin. Meiri hreyfing er á fólki í þessum störfum á höfuðborgarsvæðinu. Það stoppar yfirleitt styttra við en þó erum við þar með ákveðinn kjarna,“ segir hann. Ingólfur Hlynsson, innkaupa- stjóri hjá 10-11, segir talsvert um vinnu skólafólks á vegum fyrirtækisins. „Við erum með 26 verslanir í öllum hverfum á höfuðborgarsvæðinu og þar eru störf sem henta skólafólki mjög vel vegna hins langa afgreiðslutíma. Miðað við þá umræðu sem verið hefur undanfarið um að erfitt sé að manna vinnustaði getum við ekki kvartað. Þetta er besta haust sem við höfum upplifað í mörg ár hvað það varðar.“ Ingólfur segir 10-11 hafa farið í markvissar aðgerðir til að halda fólki og því hafi starfsmannavelta farið úr áttatíu prósentum niður í undir þrjátíu. „Við erum með gott starfsmannafélag sem sér um uppákomur tvisvar í mánuði, skemmtikvöld, ferðir og fleira þannig að alltaf er eitthvað að hlakka til. Það skiptir miklu máli.“ gun@frettabladid.is Það er allt svo dýrt að við verðum að vinna 10-11 er vinsæll vinnustaður skólafólks. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Agla Sigríður telur að þrátt fyrir mikla vinnu skólafólks nú hafi hún verið enn meiri fyrir nokkrum árum. Í lauslegri könnun Fréttablaðsins í tveimur framhaldsskólum kom í ljós að sextíu prósent nemenda starfa með skóla.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.