Fréttablaðið - 28.09.2007, Síða 50
BLS. 14 | sirkus | 28. SEPTEMBER 2007
„Ragnhildur Steinunn er talan 7. Eins hress, kát og
frábær og hún er þá er hún töluvert
dul á sín innstu mál,“ segir Sigríður
Klingenberg spákona um sjón-
varpsstjörnuna. „Það hefur alltaf
verið keppnisskap í Ragnhildi og hún
mun nýta sér það í öllu sem hún
tekur sér fyrir hendur. Það er samt
ekki þannig hugsun hjá henni að hún
sé að keppast við aðra heldur er hún
sífellt að keppast við sjálfa sig. Þetta
er lykillinn að því að ná árangri.
Ragnhildur er rétt að byrja að sjá og
sigra. Hún mun halda áfram í
sjónvarpi við góðan orðstír á þessu ári og munu
streyma til hennar peningarnir, alveg hægri vinstri.
Þetta er mikið ár fjárfestinga hjá Ragn-
hildi en hún er einnig á frjósemisári
svo ef það er ekki allt lok lok og læs og
allt í stáli verður opnað fyrir litlum
Páli eða Pálínu. Á frjósemisári marg-
faldast allt sem maður gerir svo ef
Ragnhildur gróðursetur eitt tré mun
koma heill skógur. Erfið ást springur
og þá er ég að tala um vináttu og fjöl-
skyldu en góð ást eflist. Í þessu ári er
mikill kraftur og töluvert miklar breyt-
ingar verða á lífi Ragnhildar upp úr
mars á næsta ári en við lesum um það
þegar þar að kemur. Ragnhildur er ofsalega trygg,
ein af þessum fáu í dag
sem geta þagað yfir
leyndarmálum og þar
af leiðandi á hún gott
með að vinna með
karlkyns samstarfsfé-
lögum. Þeir munu meta
hana og bjóða henni í
póker ef svo ber undir.
Það er heilmikil
strákaorka í
Ragnhildi sem
nýtist henni
vel á vinn-
ustaðnum.“
Ragnhildur Steinunn
á ári frjóseminnar
RAGNHILDUR STEINUNN
„Ragnhildur er rétt að
byrja að sjá og sigra.
Hún mun halda áfram í
sjónvarpi við góðan orstír
á þessu ári og munu
streyma til hennar
peningarnir, alveg hægri
vinstri,“ segir Sigríður
Klingenberg um
sjónvarpsstjörnuna.
Sigríður Klingenberg spáir í Sirkus
www.klingenberg.is
„Meðgangan hefur gengið eins og í
sögu. Ég fann aldrei fyrir ógleði og
hefur liðið mjög vel og ég er enn að
vinna,“ segir Freyja Sigurðardóttir fitn-
esskona, sem er komin 35 vikur á leið
að sínu öðru barni. Samkvæmt sónar á
hún von á öðrum dreng. Freyja býr
ásamt fjölskyldu sinni í Noregi þar sem
hún starfar sem einkaþjálfari. Sonur
Freyju, Jökull Máni, verður 4 ára hinn
27. október svo það er aldrei að vita
nema hann fái lítinn bróður í afmælis-
gjöf. „Jökull Máni er mjög spenntur en
skilur ekki alveg af hverju litla barnið
þarf að vera svona lengi í bumbunni.
Hann vildi eignast litla systur í byrjun
en er alveg búinn að sætta sig við að fá
bróður. Sjálf held ég að ég sé meiri
strákamamma en stelpumamma og er
því voðalega ánægð með þetta allt
saman. Halli kærastinn minn vildi líka
fá strák og er því himinlifandi. En ef
þetta væri stelpa væri eintóm gleði
líka. Við fáum kannski litla fitness-
telpu næst,“ segir Freyja brosandi. Hún
og kærastinn, Haraldur Freyr Guð-
mundsson, ætla að ganga í það heilaga
hinn 14. desember á Íslandi. Athöfnin
verður í Keflavíkurkirkju en veislan í
samkomuhúsinu í Sandgerði. „Halli á
afmæli 14. desember og við ætlum að
skíra litla prinsinn okkar sama dag svo
það verður nóg að gera þegar við
komum á klakann. Þetta verður stórt
brúðkaup en foreldrar okkar ætla að
hjálpa okkur mikið þar sem við búum í
öðru landi. Við erum voðalega spennt
yfir þessu öllu saman og erum bara að
skipuleggja hér í rólegheitunum,“ segir
hún en Freyja er frá Sandgerði en Har-
aldur frá Keflavík.
Freyja á Jökul Mána frá fyrra hjóna-
bandi og er ófæddi drengurinn því
fyrsta barn Haraldar. „Halli er mjög
áhugasamur um þetta allt saman, dug-
legur að taka þátt í þessu og góður við
mig. Við erum að gera allt tilbúið með
hjálp tengdaforeldranna. Ég hef verið
að æfa á meðgöngunni og liðið vel með
það en Halli er alltaf að segja mér að
slaka á og taka því rólega. Hann passar
vel upp á kellu sína,“ segir Freyja bros-
andi að lokum.
indiana@frettabladid.is
FREYJA SIGURÐARDÓTTIR FITNESSKONA Á VON Á SÍNU ÖÐRU BARNI Í BYRJUN
NÓVEMBER. FREYJA BÝR Í NOREGI EN MUN KOMA TIL ÍSLANDS Í DESEMBER TIL AÐ
GANGA Í ÞAÐ HEILAGA.
Himinlifandi með annan strák
STÓRI BRÓÐIR „Jökull Máni er mjög
spenntur en skilur ekki alveg af hverju litla
barnið þarf að vera svona lengi í
bumbunni,“ segir Freyja, sem er komin 32
vikur á leið á myndinni. MYND/ÚR EINKASAFNI
FJÖLGUN Í FJÖLSKYLDUNNI Freyja og Haraldur ætla að ganga í það heilaga sama dag
og þau skíra ófædda soninn. MYND/ÚR EINKASAFNI
SPURNINGAKEPPNI Sirkus
Andri F. Viðarsson
1. Sverrir.
2. Avram Grant.
3. Stefán Máni.
4. Jógvan.
5. Höfn í Hornafirði.
1. Hvað heitir karakterinn
sem Pétur Jóhann Sigfússon
leikur í Astrópíu?
2. Hver er nýráðinn knatt-
spyrnustjóri Chelsea?
3. Hver skrifaði bókina
Skipið sem kom út í fyrra?
4. Hver syngur lagið
Rooftop?
5. Hvar á landinu er Ung-
mannafélagið Sindri?
6. Hvað heitir skólastjórinn í
Simpson?
7. Hver er ritstjóri tímarits-
ins Sagan öll?
8. Hver er Brian Griffin?
9. Hver stjórnar sunnudags-
morgunþættinum á Bylgj-
unni?
10. Hvaða ár fæddist
tónlistarmaðurinn Mika?
6. Veit ekki.
7. Illugi Jökulsson.
8. Veit ekki.
9. Valdís Gunnarsdóttir.
10. 1977.
TROMMULEIKARANUM HANNESI HEIMI FRIÐBJARNARSYNI TÓKST AÐ SLÁ FJÖLMIÐLAMANNINN
HELGA SELJAN ÚT ÚR SPURNINGAKEPPNINNI Í SÍÐUSTU VIKU EN HELGI HAFÐI VERIÐ ÓSIGR-
ANDI Í MARGAR VIKUR. HÉR MÆTIR HANNES ÚTVARPSMANNINUM ANDRA FREY VIÐARSSYNI.
6. Skinner.
7. Pass.
8. Sonurinn í Family Guy.
9. Hemmi Gunn.
10. 1978.
Hannes Heimir sigrar með sex stigum gegn þremur. Andri Freyr skorar á bloggarann Jens Guð. Fylgist
með í næstu viku.
Hannes H. Friðbjörnsson 6 RÉTT SVÖR
1. Sæþór Hoffman.
2. Egill Helgason.
3. Stefán Máni.
4. Four tops.
5. Höfn í Hornafirði.
3 RÉTT SVÖR
1.
Pé
si
.2
.A
vr
am
Gr
an
t.3
. S
te
fá
n
M
án
i.4
.J
óg
va
n
Ha
ns
en
.5
.H
öf
n
í H
or
na
fir
ði
.6
. S
ey
m
ou
r S
ki
nn
er
.7
. I
llu
gi
Jö
ku
ls
so
n.
8.
Hu
nd
ur
in
n
í F
am
ily
Gu
y.
9.
V
al
dí
s
Gu
nn
ar
s-
dó
tti
r.1
0.
1
98
3
„Ávallt sú sem er að líða. Allar æðislegar,
hver með sinn sjarma.“
Björn Leifsson í World Class.
Hver er uppáhalds-
árstíðin þín?
„Uppáhaldsárstíðin mín er síðsumarið því
þá er veðrið yfirleitt gott og gróðurinn svo
fallegur. Þá er einnig góður veiðitími í
mörgum ám og berjatími en við
fjölskyldan förum saman í veiðiferðir,
tínum ber og tökum rabarbara til að frysta
og sulta.“
Siv Friðleifsdóttir alþingiskona.
„Ég er svo heppin að þykja hver árstíð
yndisleg og spennandi. Nú er haust og því
fylgja klikkaðir litir og ilmur fallinna laufa
sem um leið veit á byrjun á einhverju nýju.
Veturinn hefur jól og kósíheit sem ég
elska, logn og kuldi, dimma og hlý föt
sem halda utan um mann. Svo kemur
vorið með fjölbreytileikann í náttúrunni,
lyktina af moldinni og allt er svo mikið í
fyrsta sinn á ævinni, þú ert endalaust að
uppgötva umhverfið.“
Ragnhildur Gísladóttir tónlistarkona.
„Uppáhalds árstíðirnar eru reyndar tvær.
Haustið er svo rómantískt og ég nýt þess
að kveikja á kertum. Haustið kallar líka á
hreingerningar og skipulag, því það er svo
kósí að kúra inni og þá þarf allt að vera
fínt og flott. Hins vegar elska ég líka vorið
því það ber með sér von og tilhlökkun.“
Guðlaug Halldórsdóttir verslunarkona.
SIV FRIÐLEIFSDÓTTIR