Fréttablaðið - 28.09.2007, Qupperneq 68
„Ég er alltaf spurður hvort
við ætlum okkur að eignast
fimmta barnið. Ég segi já
og það sjötta og sjöunda
og áttunda og níunda.
Það er mitt svar við
þessari spurningu.“
„Ég ætla að
borga lausnar-
gjaldið fyrir OJ
og fá hann til
þess að keyra
Britney Spears
í partíið mitt í
kvöld. Þau eru bæði í ruglinu.“
„Í augnablikinu er það hvorugkyns.
Það hljómar samt eitthvað svo rangt.
Við köllum það „barnið“. Þegar við
tölum við það segjum við „þú“.“
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykja-
vík er farin af stað og verður dag-
skráin í kvöld afar þétt. Hápunktur-
inn er vafalítið heimsfrumsýning á
spænsku heimildarmyndinni
„Campillo, já“ í Regnboganum
klukkan 20 að viðstöddum
leikstjóranum Andrés Rubio og
bæjarstjóranum Francisco Martoto
sem er áberandi í myndinni.
Myndin segir frá þorpinu Camp-
illo de Ranas þar sem fjöldi
samkynhneigðra hefur látið gefa
sig saman eftir að samþykkt voru
lög á Spáni fyrir tveimur árum um
að veita samkynhneigðum pörum
sömu réttindi og gagnkynhneigð-
um. Ákveðin hægrisinnuð borgar-
yfirvöld neituðu að fylgja lögunum
eftir en bæjarstjórinn Francisco
Maroto sá tækifæri til að auðga
mannlífið í afskekkta þorpinu
Campillo de Ranas. Árangurinn lét
ekki á sér standa: Íbúum hefur
stöðugt verið að fækka þar síðast-
liðin ár en nú er þorpið komið aftur
á kortið. Fjöldi samkynhneigðra
para mætir í sveitasæluna til að
gifta sig og Maroto er orðinn nokk-
urs konar hetja á svæðinu.
Að sýningu lokinni verður opnað
fyrir spurningar úr sal. Kolbrún
Halldórsdóttir þingmaður, Hrafn-
hildur Gunnarsdóttir, formaður
Samtakanna 78, og fulltrúar dóms-
málaráðuneytis og kirkju munu
sækja sýninguna og taka þátt í
umræðunum.
Myndin „Heimsókn hljómsveitar-
innar“ verður sýnd klukkan 18 í
Tjarnarbíói að viðstöddum leik-
stjóranum Eran Kolirin frá Ísrael
og á sama tíma verður sýnd mynd-
in „Stelpur rokka!“ í Regnboganum
að viðstöddum leikstjóranum Arne
Johnsson frá Bandaríkjunum.
Nánari upplýsingar um hátíðina má
sjá á www.riff.is.
Mannlífið auðgað í Campillo
Orðrómur er
uppi um að
fyrrverandi
konungur
poppsins,
Michael
Jackson, hafi
kvænst
fertugri
barnfóstru
sinni, Grace
Rwaramba, í
Las Vegas
fyrr á árinu.
Nýleg
fasteigna-
skjöl þykja
staðfesta
giftinguna. „Grace er einn af bestu
vinum hans. Hún var ein af fáum
sem stóðu með honum allan tímann
í vandræðum hans, þar á meðal í
réttarhöldunum þegar hann var
ákærður fyrir kynferðisbrot,“
sagði kunningi Jacksons. Eigi
orðrómurinn við rök að styðjast er
þetta þriðja hjónaband Jacksons.
Áður var hann kvæntur Debbie
Rowe og Lisu Marie Presley.
Jackson í
hjónaband?
Söngkonan
Madonna
ætlar að fagna
fimmtugsaf-
mæli sínu á
næsta ári með
því að fara í
umfangsmikla
tónleikaferð
undir yfir-
skriftinni
Madonna at
50. Madonna
verður
fimmtug í
ágúst og vill halda upp á áfang-
ann með þessum hætti. Síðasta
tónleikaferð hennar, Confessions,
var farin á síðasta ári við mjög
góðar undirtektir.
Fimmtug í
tónleikaferð
Ekkert verður af fyrirhuguðum tökum á Hollywood-kvik-
myndinni Agenda 1 á Vestfjörðum í vetur. Eins og Frétta-
blaðið greindi frá í apríl var búið að ráða stórleikkonuna
Söndru Bullock í aðalhlutverkið. Handritið var fremur
óvænt selt til annars kvikmyndavers en þetta kom fram
á símafundi sem Jón Bjarni Guðmundsson sat á miðviku-
dagskvöld ásamt öðrum framleiðendum myndarinnar.
„Við höfðum fengið að vita að það væru góðar fréttir og að það væru
slæmar fréttir,“ segir Jón Bjarni í samtali við Fréttablaðið en góðu
fréttirnar voru þær að handritið hefur vakið mikla athygli hjá stóru
kvikmyndaverunum og að ágætis upphæð fékkst fyrir verkið.
Um var að ræða gríðarlega stórt verkefni
á íslenskan mælikvarða en breska fyrir-
tækið Focus Films og Dead Crow Prod-
uctions áttu að koma að því ásamt Saga
Film. Tökulið myndarinnar átti að vera
nánast alíslenskt og fastlega var gert
ráð fyrir því að íslenskir leikarar gætu
látið ljós sitt skína á hvíta tjaldinu
ásamt Bullock.
Jón Bjarni segir þessa niðurstöðu
ekki koma sér á óvart, þeir hjá Saga
Film hafi allt eins búist við þessu en
áréttar engu að síður að þeir gangi
fullkomlega sáttir frá borði. „Hand-
rit í Hollywood ganga kaup-
um og sölum fyrir stóran
pening og verkefnið held-
ur áfram en í breyttri
mynd,“ útskýrir hann
en vildi hvorki segja af
eða á hvort Saga Film
myndi kynna Ísland
sem hentugan töku-
stað fyrir nýjum eig-
endum myndarinn-
ar.