Fréttablaðið - 04.10.2007, Page 8
„Ég dreg þetta þá
bara frá fasteignagjöldunum,“
segir Sigfús Bergmann Gunnars-
son, aðstoðarframkvæmdastjóri
Kynnisferða, sem sættir sig ekki
við að Kópavogsbær neiti að
greiða 658 þúsund krónur fyrir
hreinsun á húsnæði fyrirtækisins.
Sigfús segir að eftir að Kynnis-
ferðir fluttu inn í nýtt húsnæði í
Vesturvör í byrjun maí hafi nán-
ast ríkt þar umsátursástand næstu
tvo mánuðina vegna mikils ryk-
makkar sem lagði frá vörubílum
sem fluttu efni í landfyllingu þar
hjá.
„Það var ríkjandi norðanátt og
þurrkur í blíðviðrinu á þessum
tíma og rykið stóð alltaf beint yfir
okkur. Svona fínt ryk smýgur um
allt og húsið var fullt af því. Við
teljum að tvær tölvur hjá okkur
hafi orðið fyrir skemmdum og
fólk gat ekki verið hérna vegna
þess að það var allt í ryki og fór
stundum heim um miðjan dag,“
segir Sigfús.
Til viðbótar þessum óþægindum
nefnir Sigfús að til lítils hafi verið
að þrífa rútur í þvottastöð fyrir-
tækisins. „Rúturnar fóru í gegn-
um þvottastöðina til að verða til-
búnar fyrir næsta dag en voru
varla komnar út á plan þegar þær
voru orðnar grútskítugar aftur í
rykmekkinum,“ segir hann.
Að sögn Sigúsar leitaði hann
ítrekað ásjár Kópavogsbæjar. „Ég
margbað bæjaryfirvöld að reyna
að koma í veg fyrir þessa ryk-
mengun með því að vökva uppfyll-
ingarsvæðið með vatni eða ein-
hverju öðru bindiefni. Það eina
sem þeir gerðu var að setja hérna
rétt á malarveginn sem er að upp-
fyllingunni en það dugði lítið,“
segir Sigfús sem kveður ástandið
hafa varað allt þar til bærinn sneri
sér að uppfyllingu á öðrum stað í
Kársnesi.
Sigfús segir að ekki hafi verið
annað hægt en að þrífa öll húsa-
kynni fyrirtækisins hátt og lágt.
Það hafi kostað sitt. Hann hafi
síðan sent Kópavogsbæ reikning
upp á áðurnefndar 658 þúsund
krónur sem sé hógvær krafa miðað
við þann kostnað sem Kynnisferðir
hafi orðið fyrir vegna landfyll-
ingagerðar bæjarins.
Reikningurinn var endursendur
og Sigfús leitaði þá beint til bæjar-
ráðs sem hafnaði því að greiða
upphæðina eins og áður segir. „Þá
borga ég ekki fasteignagjöldin
hérna,“ ítrekaði aðstoðarfram-
kvæmdastjórinn þegar honum
voru færð tíðindin af ákvörðun
bæjarráðs.
Borgar ekki fasteignagjöld
nema fá hreinsun greidda
Kópavogsbær neitar að greiða 658 þúsund króna reikning frá Kynnisferðum vegna hreinsunar á ryki frá
landfyllingu. Aðstoðarframkvæmdastjórinn segist þá munu halda upphæðinni eftir af fasteignagjöldum.
Borgarfulltrúar
Vinstri grænna hafa lagt fram
tillögu í borgarstjórn um teng-
ingu leiðakerfis Strætó við græn
svæði frá og með næsta sumri.
„Hafinn verði undirbúningur að
leiðum á valda staði, svo sem í
Heiðmörk, skógræktarsvæðið í
Úlfarsfelli og á fleiri staði í
Græna treflinum,“ segir í tillögu
Vinstri grænna sem jafnframt
vilja að kannað verði hvort
forsenda sé fyrir samstarfi
Strætó og þeirra sem halda úti
áætlanaferðum til eyja á höfuð-
borgarsvæðinu.
Með strætó út
í náttúruna
Fólk hringir daglega
á skrifstofu seðlabankastjóra og
biður um viðtal.
Oftast gengur greiðlega fyrir
almenning að fá slík viðtöl, að
því gefnu að erindið falli undir
hlutverk Seðlabankans. Viðtöl
eru gjarnan veitt í gegnum síma.
Bankastjórarnir þrír eru ekki
með fastan viðtalstíma og skipta
stundum með sér þessum
erindum þannig að einn svari
fyrir annan. Vilji fólk endilega
tala við ákveðinn bankastjóra er
þó reynt að verða við því.
Biðtími fyrir almenning fer
eftir efni og aðstæðum.
Beðið daglega
um viðtal
Viktor Júsjenko, for-
seti Úkraínu, sagði í gær að fimm
flokkar hefðu fengið nægilegan
atkvæðafjölda til að komast inn á
þing og kallaði eftir því að stjórn-
armyndunarviðræður myndu
hefjast. Yfirlýsingin þykir til
marks um þá miklu óvissu sem
ríkir með útkomu þingkosning-
anna síðastliðinn sunnudag.
Næstum öll atkvæði höfðu verið
talin í gær og sýndu tölur að
nýmyndað bandalag Júsjenko og
Júlíu Tímosjenko var afar nálægt
því að geta myndað meirihluta á
þingi. Bandamenn Júsjenko hafa
lýst yfir að fái bandalag þeirra
meirihluta á þingi muni hann skipa
Tímosjenko forsætisráðherra á
ný, eins og hann gerði eftir sigur
þeirra árið 2004. En yfirlýsingin í
gær virtist gera ráð fyrir þeim
möguleika að hann og Tímosjenko
myndu ekki geta myndað meiri-
hlutastjórn.
Flokkur Tímosjenko var með
30,74 prósent og flokkur Júsjenko
með 14,17 prósent þegar 99,84 pró-
sent atkvæða höfðu verið talin í
gær. Flokkur andstæðings þeirra,
Viktors Janúkóvitsj forsætisráð-
herra, var með 34,33 prósent.
Júsjenko og Tímosjenko vilja
aukið samstarf við Vesturlönd
meðan Janúkóvitsj þykir hliðholl-
ari Rússlandi. Tímosjenko hefur
lýst yfir að hún vilji ekki starfa
með flokki Janúkóvitsj.
Óvissa með útkomu kosninga
Hver er heimsmeistari í skák?
Hvað heitir forseti Kína?
Hver skoraði sigurmark Man.
Utd gegn Roma í Meistaradeild-
inni á þriðjudagskvöld?