Fréttablaðið - 04.10.2007, Blaðsíða 62
„Framhaldið lítur mjög vel út enda
hafa margir sýnt Astrópíu áhuga.
Nokkur fyrirtæki í Hollywood
hafa meðal annars skoðað mynd-
ina með þann möguleika fyrir
augum að gera einhvers konar
endurgerð en maður veit aldrei
hvað verður úr slíkum pælingum,“
segir Gunnar Björn Guðmunds-
son, leikstjóri kvikmyndarinnar
Astrópíu. Fréttablaðið hefur heim-
ildir fyrir því að kvikmyndarisar
á borð við Warner Brothers hafi
sýnt áhuga og að helstu aðstand-
endur myndarinnar muni halda
utan hinn 19. október til funda-
halda. Myndin hefur fengið góða
dóma hérlendis og yfir 40 þúsund
Íslendingar hafa lagt leið sína í
kvikmyndahús landsins til að sjá
hana. „Það er auðvitað frábært og
enn er mjög mikil aðsókn í alla sal-
ina. Þessa dagana er verið að stilla
upp plani fyrir kvikmyndahátíðir
sem myndin fer á og fleira í þeim
dúr. Fókusinn var upphaflega bara
á að hafa hana í bíó og sinna því
vel.“
Frumburður Gunnars og kær-
ustu hans Láru Hafberg fæddist
sem kunnugt er á sömu mínútu og
frumsýning Astrópíu hófst. Stelp-
an er því orðin um eins og hálfs
mánaðar gömul en Gunnar hefur
unnið heima við frá því hún fædd-
ist. „Ég hef mestmegnis unnið
heima sem er mjög hentugt. Ég er
bæði að skrifa kvikmyndahandrit
að Gauragangi ásamt Ottó Geir
Borg og að semja einleik með
Önnu Svövu Knútsdóttur. Þetta er
grínleikrit sem við vinnum saman
og við erum um það bil hálfnuð.“
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Oftast fæ ég mér Weetabix
með rúsínum en ef það er lúxus
fæ ég mér egg og beikon, bý til
tómatmauk og hef grænmeti
með. Ég lærði þetta í Dan-
mörku að leggja svolítið upp úr
morgunmatnum. Síðan finnst
mér kertaljós alveg ómissandi á
morgnana.“
Hollywood sýnir Astrópíu áhuga
„Þetta er eina málið af þessu tagi
sem hefur komið upp hjá okkur,“
segir Þröstur Sveinsson, fram-
kvæmdastjóri Just-Eat keðjunn-
ar, en síðasta sumar komst upp
um mann sem hafði svikið út mat-
arúttektir hjá fyrirtækinu fyrir
tæplega hundrað og þrjátíu þús-
und krónur. Svikarinn notaði til
þess stolið kreditkort og kynnti
sig sem Auðun Blöndal í viðskipt-
unum. „Þetta er auðvitað mjög
leiðinlegt mál því stúlkan sem
átti kreditkortið hefur verið í
miklum viðskiptum við okkur. En
sem betur fer komst þetta upp,“
bætir Þröstur við og segir að þau
eigi eflaust eftir að fá í magann ef
einhver hringir og kynnir sig sem
Auðun Blöndal.
Auðunn, sem stjórnar sjón-
varpsþættinum Tekinn, þótti auð-
vitað mjög leiðinlegt að nafn hans
skyldi vera dregið inn í þetta mál
en um leið hálf grátbroslegt, sér-
staklega í ljósi þáttarins þar sem
fólk er hrekkt úti um borg og bí.
Hann tók jafnframt fram að fórn-
arlambið væri í raun ekki hann
heldur afi hans og alnafni sem
skemmtikrafturinn er skírður í
höfuðið á. „Ég hélt fyrst að þetta
væri einhver gömul bakarísskuld
af Króknum,“ segir Auðunn og
hlær og bætir því síðan við að
hann hafi nú reyndar pantað mat
frá Just-Eat nokkrum sinnum.
„En ætli ég muni ekki hugsa mig
tvisvar um núna,“ segir Auðunn.
Auðunn Blöndal fórnarlamb svikara
„Við eigum enn eftir að ganga frá
nokkrum lausum endum en ef þetta
gengur allt saman upp þá verð ég
Trölli á Broadway á næsta ári,“
upplýsir Stefán Karl Stefánsson en
hann er nú kominn með annan fót-
inn á stóra sviðið í New York. Um
er að ræða söngleik sem byggður
er á bókinni Þegar Trölli stal jólun-
um eftir Dr. Seuss. Eftir því sem
Fréttablaðið kemst næst verður
Stefán fyrsti íslenski leikarinn sem
tekur að sér svo stóra rullu í hinum
fræga leikhúsheimi sem Broadway
er.
Stefáni var boðið að taka þátt í
svokölluðum vinnubúðum fyrir
nokkru með leikstjóranum Jack
O‘Brian en hann er eitt af stóru
nöfnunum í leikhúsheiminum þar
vestra og hefur meðal annars feng-
ið þrenn Tony-verðlaun sem eru
Óskarsverðlaun leikhússins í
Bandaríkjunum. Stefán eyddi
þremur vikum með leikstjóranum
við að þróa þessa furðuveru rithöf-
undarins Dr. Seuss og leist fram-
leiðendum verksins svo vel á hug-
myndir Stefáns að þeir buðu honum
að velja sér borg til að leika per-
sónuna en reiknað er með að sýn-
ingin verði mikið fyrirtæki. „Og að
sjálfsögðu valdi ég New York og
Broadway,“ segir Stefán og hlær.
„Þessi O‘Brian er slík stjarna í
leikhúsheiminum að mér skilst að
leikarar myndu gefa aleiguna bara
fyrir að hitta hann. Þannig að þetta
er náttúrulega fyrst og fremst
heiður fyrir mig að vera boðið
þetta hlutverk,“ segir Stefán sem
telur að þetta eigi eftir að henta sér
vel. „Ég er náttúrulega fyrst og
fremst leikari en ekki einhver fyr-
irsæta og það hjálpaði mér vissu-
lega að ég hef sviðsreynslu frá
Íslandi.“
En Stefán gleymir ekki Latabæ
og þakkar því fyrirtæki ekki síst
þessa góðu kynningu á sér í Banda-
ríkjunum. Hann er til að mynda
nýkominn frá Fíladelfíu þar sem
Latibær setti á svið mikla sýningu
fyrir tæplega tólf þúsund manns í
skemmtigarði sjónvarpsþáttarins
Sesam Street. „Maður gerði sér þá
kannski grein fyrir hversu mikið
æði þetta er orðið. Þarna mættu
krakkar klæddir eins og Glanni
glæpur og Íþróttaálfurinn og öskr-
uðu á okkur eins og að við værum
rokkstjörnur,“ segir Stefán sem
jafnframt er kominn með nýjan
umboðsmann en hún ku vera gömul
í hettunni og hefur verið að í fjöru-
tíu ár. Að sögn Stefáns hafa umbjóð-
endur hennar verið allt frá Matt
Damon og Ben Affleck til sjálfrar
Britney Spears áður en sú ágæta
söngkona féll í freistni. „Hlutirnir
hér gerast ekki á einni nóttu en
vissulega hef ég verið að taka stór
skref,“ segir Stefán. „Þetta snýst
líka mikið um heppni. Að vera rétt-
ur maður á réttum stað og gefast
ekki upp. Þetta er helvítis púl en
um leið ákaflega skemmtilegt.“