Fréttablaðið - 04.10.2007, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 04.10.2007, Blaðsíða 48
Kvikmyndin The Last Winter var frumsýnd í vik- unni hér á landi en hún er einstök að því leyti að þetta er ein örfárra erlendra mynda sem tekin er upp hér á landi með íslensku töku- liði eingöngu. Myndin gerist í óbyggðum Alaska þegar Bandaríkjamenn eru farnir að bora eftir olíu í auðninni. Eitt- hvað fer úrskeiðis þegar kemur í ljós að það er meira en bara svarta gullið sem leynist undir íshellunni. Með aðalhlutverkin í myndinni fara hinn góðkunni og margverð- launaði leikari Ron Perlman og James LeGros sem áhorfendur Skjás eins gætu kannast við úr sjónvarpsþáttununum Sleeper Cell. Leikstjórinn Larry Fessenden seg- ist aðallega gera hryllingsmyndir en hann hefur einnig verið töluvert fyrir framan myndavélarnar sem leikari. „Ég er yfirleitt ráðinn út á útlitið,“ segir Larry. „Oftast fæ ég hlutverk eiturlyfjasjúklinga, glæpamanna eða geðsjúklinga af því að það vantar í mig eina tönn,“ heldur Larry áfram en meðal mynda þar sem hann hefur sést í má nefna Bringing Out the Dead eftir Martin Scorsese þar sem hann lék kókaínsjúkling. Larry og félagar ætl- uðu í fyrstu ekkert að koma til Íslands heldur fóru og skoðuðu aðstæð- ur í Alaska en komust að því að þar var engin leið að gera kvikmynd í fullri lengd. Þaðan var haldið til Kanada en Larry leist ekkert á útlitið þar. „Framleið- andinn minn þekkti til Sigurjóns Sighvats- sonar og stakk upp á því að halda til Íslands og sjá hvað landið hefði upp á að bjóða,“ útskýrir Larry sem segist lítið hafa þekkt til Íslands, annað en það sem hann kallar klisjur, „að hér væru bara víkingar sem drykkju bjór“. En leikstjórinn má vart vatni halda yfir dvöl sinni hér á landi. Segir það hafa verið stórkostlega upplifun og að starfsfólkið hafi verið ótrúlega samvinnuþýtt. „Myndin krafðist líkamlegs erfiðis við harðneskjulegar aðstæður en það heyrðist aldrei múkk frá Íslendingunum,“ segir Larry. „Í Bandaríkjunum hefði verið kvart- að og kveinað en hér voru hlutirnir bara gerðir. Auk þess skildi ég aldrei hvað Íslendingarnir voru að segja. Mér skilst reyndar að allir Ameríkanarnir hafi verið upp- nefndir en uppnefnin eru flest óprenthæf,“ bætir leikstjórinn við og skelli- hlær. Larry segist iðulega fá til- boð frá Hollywood eftir hverja kvikmynd en áhug- inn fjari fljótlega út, endist ekki nema í eina viku. En það virðist ekki koma að sök, hann hefur nóg fyrir stafni og stundum jafnvel meira en það. „Og þá getur það bitnað all svakalega á bankabók- inni,“ segir Larry og hlær. Og eins og kvikmyndagerð sé ekki yfirdrifið nóg þá segist Larry hafa mikla þörf til að bjarga heim- inum. Leikstjórinn hefur nefnilega haldið úti vefsíðu sem berst gegn hlýnun jarðar en þeirri baráttu hefur hann sinnt síðastliðin sextán ár. Aðspurður hvort hann væri ekki hræddur um að þetta væri allt saman bara plat, eins og marg- ir vísindamenn vilja halda fram, sagði hann svo ekki vera. „En ef það væri svo yrði það mjög gott fyrir okkur öll og það yrði ekki erfitt að kyngja þeirri staðreynd,“ segir Larry og talið berst þaðan yfir í hið pólitíska hlutverk hryll- ingsmyndanna sem leikstjórinn segir alls ekki vera nýtt af nálinni. „Hryllingsmyndir hafa alltaf end- urspeglað mestu hræðslu áhorf- enda. Invasion of the Body Snatchers fjallaði um hræðsluna við kommúnista og það er kannski kaldhæðni örlaganna að flestar bandarískar hryllingsmyndir fjalla um pyntingar í ljósi umræð- unnar um pyntingar bandaríska hersins í Írak og Guantanamo.“ Leikstjórinn Peter Morgan hefur mikinn hug á því að klára þríleik- inn um fyrrverandi forsætisráð- herra Bretlands, Tony Blair. Fyrsta myndin, The Deal, var sýnd á Channel 4 árið 2003 en önnur myndin, The Queen, sló eftirminnilega í gegn í fyrra og hlaut Helen Mirren meðal annars Óskarsverðlaunin sem besta leik- konan í aðalhlutverki. Samkvæmt Variety vill Morgan nú gera þriðju og síðustu myndina um valdatíð Blairs og á hún að fjalla um það hvernig samskipti Bandaríkjanna og Bretlands breyttust eftir að Bill Clinton lét af embætti og George W. Bush tók við. „Morgan sér þarna mjög mikilvægan þátt í breskri sögu og langar til að klára þennan þríleik sinn,“ sagði framleiðandinn Andy Harries en þeir unnu saman að gerð The Queen. Talið er líklegt að Martin Sheen endurtaki leikinn sem Blair en óvíst er hvort Helen Mirren birtist aftur í hlutverki Elísabetar. Þríleikur um Blair Vill leika á móti Vigdísi Finnbogadóttur V in n in g ar v er ð a af h en d ir h já B T Sm ár al in d. K ó p av o g i. M eð þ ví a ð t ak a þ át t er tu k o m in n í SM S kl ú b b. 9 9 kr /s ke yt ið .
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.