Fréttablaðið - 04.10.2007, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 04.10.2007, Blaðsíða 27
Hólmfríður Anna Baldursdóttir lét hanna Mischu Barton-kjól á sig í Víetnam. Hólmfríður Anna Baldursdóttir, upplýsingafulltrúi Unicef á Íslandi, skellti sér í sumarfrí til Víetnams í fyrra. Þar kom hún meðal annars við í bænum Hoi An og gerði kostakaup þegar hún lét sauma á sig silkikjól í anda leikkonunnar Mischu Barton. „Þessi bær er svolítið sérstakur þar sem maður getur ekki keypt neitt nema sérsniðin föt, skó eða skartgripi,“ útskýrir Hólmfríður, eða Anna eins og hún er kölluð. „Þú getur til dæmis ekki bent á eitt- hvað í búðarglugga og fengið það, heldur verður maður fyrst að láta taka málin af sér og láta svo sér- gera hlutinn.“ Anna var síðan einhverju sinni stödd í verslun einni þar sem hún blaðaði í tískutímaritum á meðan hún beið eftir fatnaði, þegar hún rak augun í silkikjól sem hún bara varð að eignast. „Mischa Barton var í kjólnum á einni forsíðunni og hann var í einu orði sagt fullkominn, hvort sem það var litasamsetningin á silkinu, dúkkulegt sniðið, mittisborðinn eða v-laga hálsmálið. Þetta var ást við fyrstu sýn. Ég spurði klæðskerann í hvelli hvort hægt væri að gera svona kjól og það reyndist ekkert mál. Svo var allt til í hann, meira að segja silki í sama lit. Hann varð alveg eins og fyrirmyndin og smellpassaði á mig.“ Anna hafði kjólinn með sér heim til Íslands og hefur klæðst honum við fjölmörg tækifæri og vekur hann jafnan athygli þótt hingað til hafi enginn ruglað henni saman við Mischu Barton. Enda vill Anna fyrir enga muni líkjast leikkonunni og segir aðdáun sína á henni ekki ná lengra en til fatasmekksins, þótt vissu- lega sé hún snoppufríð snót. Ást við fyrstu sýn Kynnig í dag í Ou tlett Faxafeni 10 Auglýsingasími – Mest lesið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.