Fréttablaðið - 04.10.2007, Side 12

Fréttablaðið - 04.10.2007, Side 12
Embætti ráðuneytis- stjóra sjávarútvegs- og landbún- aðarráðuneytisins hefur verið auglýst laust til umsóknar frá og með 1. janúar næstkomandi. Skipað er í embættið til fimm ára. Um embættið gilda lög um Stjórnarráð Íslands og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Laun og önnur starfs- kjör eru samkvæmt ákvörðun kjararáðs. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf skulu hafa borist sjávarútvegs- ráðuneytinu eigi síðar en 19. október næstkomandi. Ráðuneytis- stjóri óskast Yfir áttatíu kvenna- hreyfingar í Tyrklandi hafa fordæmt drög að nýrri stjórnar- skrá sem þær segja færa jafnréttisbaráttuna í landinu aftur um mörg ár. Konur börðust hart fyrir grein í núverandi stjórnarskrá sem kveður á um að stjórnvöldum beri að tryggja jafnrétti fyrir alla. Í drögunum er þessi grein tekin út og í staðinn sagt að konur séu viðkvæmur hópur sem þarfnist sérstakrar verndar. Einnig hefur verið undanfarið deilt um aðra grein í drögunum þar sem konum er leyft að vera með höfuðklúta í háskólum. - Þörf sögð á að vernda konur Víða skortir hey á Suður- og Norður- landi eftir þurrt sumar. „Þetta fer mikið eftir því hvernig jarðvegur er í túnunum. Verst er þegar jörðin er sendin,“ segir Runólfur Sigursveinsson, ráðunautur hjá Búnaðarmiðstöð Suðurlands. Runólfur segist þó telja að þeir bændur, sem vanti hey, ættu að geta orðið sér út um það hjá nágrönnum sínum. Hann segist ekki eiga von á því að menn þurfi að leita í Bjargráðasjóð vegna uppskerubrests, þó nokkrir hafi orðið fyrir töluverðu tjóni. „Ég hef keypt töluvert mikið af heyi nú þegar, enda sá ég hvert stefndi í sumar. Svo hafa vinir mínir og kunningjar hlaupið undir bagga með mér, í orðsins fyllstu merkingu,“ segir Ómar Helgason, mjólkurframleiðandi í Lambhaga á Rangárvöllum. Guðmundur Steindórsson, ráðunautur hjá Búgarði á Norðausturlandi, segir úrkomu í júní hafa verið 0,1 millimetra. „Það er nú ekki neitt í raun og veru en það hefur þó víst komið einu sinni fyrir að alls engin úrkoma mældist,“ segir Guðmundur. Bændur hlaupa undir bagga Sautján manns lágu í valnum og 24 voru særðir eftir að öryggisverðir á vegum banda- ríska Blackwater-fyrirtækisins hófu skothríð á torgi í Bagdad 16. september síðastliðinn. Þetta hefur bandaríska dagblaðið New York Times eftir íröskum vitnum og embættismönnum í Írak sem unnið hafa að rannsókn á atvik- inu. Áður var talið að ellefu manns hefðu látið lífið, en frásögn írösku vitnanna er töluvert frábrugðin frásögn starfsmanna Blackwater. Bandarískri rannsókn á atvikinu er ekki lokið. Upphaf blóðbaðsins má rekja til þess að sprengja sprakk skammt frá byggingu í vestan- verðri Bagdad. Rétt þar hjá var erindreki bandaríska utanríkis- ráðuneytisins, en hans gættu verðir á vegum Blackwater. Þeir kölluðu strax til liðsauka. Öryggis- verðirnir segja að stuttu síðar hafi verið skotið á bílalest sem fylgdi erindrekanum frá staðn- um. Samkvæmt írösku vitnunum hófst atburðarásin hins vegar þegar Íraki að nafni Ahmed Haithem Ahmed kom akandi með móður sinni en varð skyndilega fyrir skoti og missti stjórn á bíln- um. Svo virðist sem hann hafi stigið fastar á bensíngjöfina og beygt í áttina að bílalestinni með þeim afleiðingum að hinir vopn- uðu Blackwatermenn töldu sér ógnað og hófu þegar stanslausa skothríð í áttina að bílnum. Vegfarendur í næsta nágrenni reyndu í ofboði að flýja en margir urðu fyrir skotum. Atvikið vakti hörð viðbrögð frá Írökum, sem hafa krafist þess að öllum starfsmönnum Blackwater verði vísað úr landi og friðhelgi þeirra í Írak afnumin. Erik Prince, stofnandi Black- water, var kallaður fyrir banda- ríska þingnefnd á þriðjudaginn og sagði hann að ekkert hefði verið athugavert við framferði sinna manna. Skothríðin varð sautján að bana E N N E M M N M 2 9 8 8 3 / s ia .i s Fangelsið Kvíabryggja, sem er skammt frá Grundarfirði, var tekið til notkunar á ný í gær eftir stækkun og endurbætur. Herbergjum fanga hefur verið fjölgað úr fjórtán í 22. Kvíabryggja er nú skilgreind sem „opið fangelsi“. Í því felst að fangarnir njóta frelsis umfram þá sem vistaðir eru í öðrum fang- elsum landsins. Engir rimlar eru fyrir gluggum og herbergjum fanga er ekki læst. Gæsla er í algjöru lágmarki. Föngum á Kvíabryggju mun gefast kostur á fjarnámi, líkleg- ast í samvinnu við Fjölbrauta- skóla Snæfellinga. Lagaheimild er jafnframt til staðar til að fangar geti stundað einhverja atvinnu. Valtýr Sigurðsson, forstjóri Fangelsismálastofnunar, sagði við opnunarhátíð fangelsisins að margir teldu vist á Kvíabryggju varla geta kallast refsingu. „En ég vil minna á að frelsissvipting- in er refsing,“ sagði Valtýr. „Þegar ég tók við þessu starfi fyrir þremur árum voru uppi hugmyndir um að leggja niður fangelsið á Kvíabryggju, þar sem það væri óhagstæð rekstrar- eining,“ sagði Valtýr. „Sem betur fer náði það ekki fram að ganga.“ Björn Bjarnason dómsmála- ráðherra sagði að með endurbót- unum á Kvíabryggju væri fyrsta áfanga af fjórum í áætlun um uppbyggingu fangelsa lokið. Framkvæmdum á Fangelsi Akur- eyrar ljúki um áramót og á Litla- Hrauni verði útbúin heimsóknar- aðstaða, sex rýma kvennadeild og opin deild fyrir fanga. Björn sagði að öfugt við hug- myndir margra ríki jákvætt and- rúmsloft í fangelsum og margir fangar vilji snúa við blaðinu. Nefndi hann góða þátttöku í AA- samtökum á Litla-Hrauni og í Hegningarhúsinu við Skóla- vörðustíg sem dæmi. Kvörtunum vegna fangelsismála hafi jafn- framt fækkað. Opið fangelsi á Kvíabryggju Fangelsið Kvíabryggja var í gær tekið í notkun á ný eftir endurbætur. Fangar eru frjálsir ferða sinna um svæðið og býðst þeim fjarnám og jafnvel atvinna á Grundarfirði. Fyrirkomulagið kallast „opið fangelsi“.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.