Fréttablaðið - 04.10.2007, Síða 18

Fréttablaðið - 04.10.2007, Síða 18
fréttir og fróðleikur Sveitarfélög á höfuðborgar- svæðinu búa við allt annað landslag vegna útboða á framkvæmdum nú en áður þekktist. Fá eða engin tilboð berast, og oft eru lægstu tilboðin yfir kostnaðaráætl- unum. Ástandið á útboðsmarkaði er gjörbreytt frá því sem áður var, og liðin tíð að barist sé um verk með verði langt undir kostnaðar- áætlun, segir Steingrímur Hauks- son, sviðsstjóri framkvæmda- og tæknisviðs hjá Kópavogsbæ. „Það er tregða hjá mönnum að bjóða í verk, við erum hringjandi í þá til að fá þá til að bjóða,“ segir Steingrímur. Hann segir að oft sé hægt að fá þá sem hafa unnið fyrir bæinn til að taka að sér ný verk, en það þurfi að ganga á eftir verktakafyrirtækjunum. Kópavogsbær hefur ekki þurft að hætta við útboð þar sem nægi- lega hagstætt tilboð hafi ekki fengist, segir Steingrímur. Í nokkrum tilvikum hefur verið samið beint við verktaka, til dæmis með því að endurnýja samning vegna fyrsta áfanga í verki til að ná einnig yfir annan áfanga vegna þess að það hafi einungis upp á sig vandamál að bjóða út áfangann. Kostnaður bæjarfélaga við að bjóða út verk er misjafn, en getur hlaupið á milljónum, segir Steingrímur. Önnur áhrif ástandsins eru þau að flest verk eru á eftir áætlun af því að verktakar hafa of mikið að gera og taka að sér of mörg verk- efni. „Menn eru einum til þremur mánuðum á eftir með að skila verkum,“ segir Steingrímur. Fresta hefur þurft einni stórri framkvæmd í Mosfellsbæ, sem boðin var út í júní síðastliðnum. Um var að ræða sameiginlegt verkefni bæjarins og Vegagerð- arinnar um gerð hringtorgs og undirganga undir Hafranesveg. Kostnaðaráætlun var nálægt 100 milljónum króna, en eftir að fallið var frá lægsta tilboðinu voru önnur tilboð allnokkuð yfir áætl- un, segir Jóhanna B. Hansen, bæjarverkfræðingur Mosfells- bæjar. Stefnt er að því að bjóða verkið aftur út í nóvember. „Það er búið að vera ótrúlega mikið að gera á verktakamark- aðnum síðastliðin misseri. Fram- kvæmdir í jarðvinnugeiranum ná oft hámarki yfir björtustu mán- uði ársins, þá er mest að gera og mesta spennan hjá fyrirtækjun- um. En sem betur fer er það ekki mjög algengt að bjóða þurfi út aftur,“ segir Jóhanna. Hún segir nokkur dæmi um smærri verk sem hafi þurft að fresta eða vinna með öðrum hætti en fyrirhugað var vegna þenslu á verktakamarkaði. Framkvæmdin við Hafranesveg sé þó stærsta framkvæmdin sem hafi þurft að fresta. „Þetta er ekkert nýtt í þessum bransa, það koma uppsveiflur og niðursveiflur. Þetta er líka árs- tíðabundið, júlí er alltaf verstur en janúar bestur til að bjóða út,“ segir Jóhanna. „Það koma færri boð og hærri,“ segir Ámundi Brynjólfsson, skrif- stofustjóri mannvirkjaskrifstofu framkvæmdasviðs Reykjavíkur- borgar. Hann segir borgina ekki hafa hætt við útboð í sumar og boðið út aftur vegna þess að nægi- lega hagstæð tilboð hafi ekki bor- ist. Í tveimur tilvikum hafi þó komið fyrir að engin tilboð hafi borist. Þegar síðustu tíu útboð borgar- innar, stór sem smá, eru skoðuð má sjá að í sjö tilvikum hefur til- boðum sem voru yfir kostnaðar- áætlun verið tekið. Í tveimur til- vikum tók borgin tilboðum undir kostnaðarverði og í einu tilviki var öllum tilboðum hafnað, þó ekki vegna verðs. Þróunin í sumar var sú að til- boðin voru hærri en áður. „Það er oftar sem við erum að taka tilboð- um sem eru á kostnaðaráætlun eða fyrir ofan hana,“ segir Ámundi. Þetta sé breyting frá því sem áður var þegar yfirleitt bár- ust tilboð sem voru talsvert undir kostnaðaráætlun. Spurður um skýringar á þessu segir Ámundi að það sé einfald- lega mikið að gera. Ef ekki sé boðið út nógu snemma séu verk- takar búnir að binda sig í önnur verk. Borgin hafi litla möguleika á að hætta við útboð og bjóða út aftur síðar þar sem oft sé um verkefni að ræða sem ekki þoli bið, til dæmis viðhald við skóla- byggingar sem verði að vinna yfir sumartímann. Af síðustu tíu útboðum borgar- innar voru flest rétt yfir kostn- aðarverði. Það sem fór hæst, inn- réttingar og innihurðir í Ölduselsskóla, var 28 prósentum hærra en kostnaðarverð. Gatna- gerð og lagnir í Almannadal feng- ust á hagstæðara verði, á 88,9 prósentum af kostnaðaráætlun. Óhagstæð útboð á þenslutímum ÞAR SEM ALLT SNÝST UM FÓTBOLTA! NÝTT Á GR AS.IS Leikir Skemmtun NÚ FÆRÐU GRAS.IS FÉTTIR Í SÍMANN! Línuveiðar samkvæmt ströngum skilyrðum Tækifæri til kynningar

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.