Fréttablaðið - 04.10.2007, Side 20
hagur heimilanna
Ferðamenn kaupa fartölvur
og myndavélar í auknum
mæli erlendis og sleppa því
að greiða gjöld í rauða hlið-
inu á Keflavíkurflugvelli.
Hald er lagt á slíka hluti ef
ferðamenn framvísa ekki
kvittun eða ábyrgðarskír-
teini.
Nokkrir tugir mála hafa komið upp
á þessu ári hjá Tollgæslunni á Suð-
urnesjum þar sem fólk hefur keypt
myndavélar, fartölvur eða vídeó-
myndavélar erlendis og flutt til
landsins án þess að gefa það upp
við komuna. Kári Gunnlaugsson,
aðaldeildarstjóri Tollgæslunnar á
Suðurnesjum, segir að ferðamenn
þurfi að hafa meðferðis kvittanir
eða ábyrgðarskírteini til að sýna
fram á að hlutirnir hafi verið keypt-
ir áður en haldið var utan.
„Margir eiga fartölvur og fínar
myndavélar og ekkert að því að
fólk taki þennan búnað með sér. Við
erum bara að framfylgja reglum
um að fólk greiði keisaranum það
sem honum ber og förum fram á að
fólk hafi með sér pappíra sem sýni
að þetta hafi verið keypt á Íslandi
og þau gjöld greidd sem fólki ber
að greiða,“ segir hann.
Ferðamenn mega flytja inn varn-
ing að verðmæti 46 þúsund krónur
hver, þar af má einn hlutur kosta
helminginn af þessari upphæð. Ef
verðmætið er meira ber að fara í
rauða hliðið og greiða 24,5 prósenta
virðisaukaskatt af því sem er
umfram. Kári segir að ferðamenn
séu fljótt komnir upp í þessa upp-
hæð.
Sú þróun hefur farið vaxandi á
þessu ári að ferðamenn á leið til
Bandaríkjanna og annarra Evrópu-
landa hafi keypt tölvur og mynda-
vélar og flutt til landsins. Kári segir
að fartölvueign landsmanna hafi
aukist gífurlega á síðustu þremur
til fjórum árum og nú þyki fartölv-
an nauðsynleg í ferðalagið. Ef grun-
ur leiki hins vegar á ólöglegum inn-
flutningi og viðkomandi ekki með
kvittanir eða ábyrgðarskírteini sé
lagt hald á hlutinn í nokkra daga
meðan viðkomandi skilar nauðsyn-
legum gögnum. Ef gögnin skila sér
ekki sé gerð skýrsla um málið og
sektum beitt.
Kári segir að tollgæslan sé nán-
ast hætt að skrá tæki fyrir brottför
eins og stundum áður. „Við lentum í
því að þeir sem vildu skrá tæki
voru oftast þeir sem höfðu komið
með vélarnar ólöglega inn í landið
og höfðu þá ekki neina pappíra. Við
skráum aðeins hluti sem fólk getur
sýnt fram á að það hafi keypt á
Íslandi og þá þurfa menn hvort
sem er að koma með kvittanir,
ábyrgðarskírteini eða aðra pappíra
sem sanna þetta,“ segir hann.
Ábyrgðarskírteini og
kvittanir með til útlanda
Árni Helgason, framkvæmdastjóri
þingflokks Sjálfstæðisflokksins, bjarg-
aði sér fyrir horn á leið í samkvæmi.
Þúsundkallarnir þramma á haugana
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki