Fréttablaðið - 04.10.2007, Side 30

Fréttablaðið - 04.10.2007, Side 30
Lykill að lífi er kjörorð lands- söfnunar Kiwanis til stuðnings geðsjúkum og aðstandendum þeirra. Það á líka vel við starf- semi meðferðarheimilis Land- spítalans við Laugarásveg. Ungir menn með geðraskanir öðlast þar trú á sjálfa sig og framtíðina. Það er kaffitími á Laugarásvegi 71 þegar blaðamann ber að garði og flest heimilisfólk að gæða sér á kaffi og vöfflum. Fáeinir ungir menn eru þó enn í ræktinni en koma fljótlega endurnærðir. Magnús Ólafsson deildarstjóri lýsir samningi sem gerður var í vor við Björn Leifsson í World Class um að heimilismenn fengju fría líkamsrækt þar. „Menn fara þrisvar til fjórum sinnum í viku í Laugar. Það skilar ótvíræðum árangri,“ segir hann. Um leið og við göngum um vist- leg húsakynnin lýsir Magnús starfseminni í stórum dráttum. „Við tökum við ungum mönnum með geðraskanir sem ekki eru í neyslu og hér er markviss endur- hæfing fyrir hvern og einn. Áhersla er lögð á að gera einstakl- ingana meðvitaða um eigin styrk- leika og að rækta hann. Tíminn vinnur með okkur. Hér fer ekki fram lækning í líkingu við skurð- aðgerð heldur má alveg gera ráð fyrir tveggja til þriggja ára dvöl. Allir eru í vinnu eða skóla utan hússins hluta úr degi og svo hafa menn skyldur á heimilinu. Taka þátt í eldamennsku, vali á upp- skriftum, innkaupum og frágangi. Hér verða menn listakokkar.“ Sú sem einkum stjórnar matar- menningu heimilisins heitir því sjaldgæfa nafni Stígrún og er Ásmundsdóttir. Hún segir alltaf helgarmat á miðvikudagskvöld- um. Dúkað borð og sextán manns í mat því fólkið á endurhæfingar- heimilinu á Reynimel 55 komi líka og leggi til eftirrétt. „Allt hefur sinn tilgang og svona veisluhald er gott fyrir sjálfsmynd fólks og samskipti enda myndast oft skemmtileg stemning,“ segir hún. Hafþór Reynisson er nýútskrif- aður eftir þriggja ára dvöl að Laugarásvegi 71. Hann kveðst byrjaður að vinna með föður sínum við dúka- og teppalagnir og vera í þann veginn að fá íbúð til að byggja upp eigið heimili. „Fyrst þegar ég kom hingað á meðferðar- heimilið átti ég erfitt með að fara á fætur á morgnana og var þrek- laus og þungur. Svo færðist í mig líf og nú líður mér vel,“ lýsir hann brosandi og bætir við: „Það er góður stuðningur hér og rosalega skilningsríkt fólk.“ Helgarmatur í miðri viku Mikið spinning-æði ríkir í Keflavík og í líkamsræktarstöðinni Perlunni verður plötusnúður í spinning-tíma á laugardaginn. „Við verðum með spinning-tíma á laugardaginn klukkan ellefu og hann Atli Rúnar Hermannsson ætlar að vera plötusnúður hjá okkur,“ segir Sigríður Kristjánsdóttir, eigandi Perlunnar. „Hann ræður algjörlega tónlistinni og diskó- stemningunni,“ bætir hún við en verið er að setja diskókúlu og ljós í spinning-salinn. „Það verður diskóþema í tímanum og starfsfólkið á stöðinni hefur verið hvatt til að vera í einhverju frá diskótímabil- inu. Það verður gaman að sjá hvað fólk grefur upp til að mæta í.“ Sigríður segir svakalegan spinning-áhuga ríkja í Keflavík. „Meðan allt gengur út á dans á höfuðborgarsvæðinu er algjört spinning-æði í Keflavík. Ég er til dæmis búin að bæta við hjólum í salinn, úr 20 upp í 45,“ segir Sigríður og bætir við: „Við fengum Atla hingað í spinning-tíma í vor til að prófa þetta og það var alveg frá- bært. Við stefnum því á að fá hann til að koma og sjá um tónlist í tíma að minnsta kosti tvisvar á ári og við hlökkum öll alveg rosalega til laugardagsins.“ Allir í diskófötin Lækjartorgi. NÝTT Fáðu fæturna mjúka og fína á 2 vikum með Flextiol Útsölustaðir: Fótaaðgerðastofurnar og Snyrtistofurnar Eygló, Paradís, Líf, Jóna og Aníta Vestmannaeyjum, Ásdísar í GB. Spar, Þín verslun Kópavogi, Fjarðarkaup HFJ og Lipurtá, Lyfja, Fótaaðgerðastofa Reykjavíkur. Augnháralitur og augnbrúnalitur Tana® Cosmetics SÖLUSTAÐIR: APÓTEK OG SNYRTIVÖRUVERSLANIR NÝTT!! Plokkari með ljósi Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.