Fréttablaðið - 04.10.2007, Qupperneq 40
Klukkan 13.15 í dag hefst hátíðarsam-
koma verkfræðideildar Háskóla Ís-
lands í tilefni af 70 ára afmæli Júlíusar
Sólnes prófessors fyrr á árinu.
Veislan er haldin í hátíðarsal háskól-
ans og allir eru velkomnir á meðan hús-
rúm leyfir. Þrír erlendir prófessorar
og fyrrverandi samstarfsmenn Júlíus-
ar heiðra samkomuna og flytja erindi
um jarðskjálftaverkfræði og önnur við-
fangsefni. Einnig verða íslenskir sér-
fræðingar með áhugaverð erindi um
verkfræðitengd efni. Kristín Ingólfs-
dóttir rektor ávarpar afmælisbarn-
ið auk Ebbu Þóru Hvannberg, forseta
verkfræðideildar.
Júlíus var beðinn að rifja upp nokk-
ur atriði úr sínum starfsferli í tilefni af
þessum tímamótum.
Hann er í byrjun spurður hvort hann
hafi haldið upp á afmælið í mars. „Já,
ég hélt upp á afmælið á Kanaríeyjum
með stórfjölskyldunni. Við fórum tólf á
aldrinum eins árs upp í sjötugt,“ svar-
ar hann glaðlega og bætir við: „Fyrst
var haldinn fundur um hvort halda
ætti stóra veislu í bænum en meiri-
hlutinn greiddi atkvæði með hugmynd-
inni um að fara til Kanarí. Það var mjög
ánægjulegt og einstakt tækifæri til að
fara öll saman því nú eru allir komnir
út um hvippinn og hvappinn.“
Júlíus á í raun fleiri stórafmæli því nú
eru 35 ár síðan hann tók við stöðu próf-
essors í verkfræðideild HÍ. Hann byrj-
aði með látum eins og hann lýsir. „Ég
var starfandi í Danmörku en kom heim
um jólin 1972 til að taka við embætt-
inu hér, fór svo út aftur en kom þegar
misserið í deildinni byrjaði, um 20. jan-
úar. Mitt fyrsta verkefni var að fara út
í Vestmannaeyjar og reyna að koma í
veg fyrir að þök hryndu undan ösku í
Heimaeyjargosinu sem þá var nýhafið.
Það var eiginlega ótrúlegt að lenda í því
í fyrstu vikunni og mjög lærdómsríkt.“
Þegar haft er orð á því að hann hafi
komið víða við á ferlinum, meðal annars
sem sveitarstjórnarmaður á Seltjarn-
arnesi, einn af stofnendum Borgara-
flokksins og fyrsti umhverfisráðherra
Íslands, segir hann: „Þetta hefur verið
skemmtilegur og litríkur tími. Maður
asnaðist inn í stjórnmál og það var
skemmtileg lífsreynsla. Þegar ég lít til
baka var gaman að kynnast þeim þætti
þjóðlífsins en ég er samt óskaplega feg-
inn að hafa ekki eytt allri ævinni í að
vera stjórnmálamaður. Mér hefur líka
þótt alveg óskaplega gaman að setja
mig inn í umhverfismál. Ég varð mik-
ill náttúruverndarsinni af því að vera í
umhverfisráðuneytinu og er lítt hrifinn
af álverum. Ég tel að Íslendingar eigi
marga aðra kosti og betri en að hrúga
þeim hér upp.“
AFMÆLI
„Áður en börnin okkar koma
heim í líkkistum frá Írak
og konur og börn láta lífið í
Bagdad, verð ég að vita hvað
Írak hefur gert okkur?“
Rafrænt skráningarkerfi
fyrir Læknavaktina á höf-
uðborgarsvæðinu var
tekið í notkun fyrir helg-
ina. Markmiðið er þátt-
taka í rafrænni framþróun
heilbrigðiskerfisins. Með
nýja kerfinu verður hægt
að setja margar greining-
ar á sama samskiptaseð-
il, læknabréf kemur sjálf-
krafa með upplýsingar um
lyfjagjöf ásamt öðrum upp-
lýsingum.
Á móttökuna koma ár-
lega um 60 þúsund manns
eða um 170 manns á dag.
Það var Guðlaugur Þór
Þórðarson heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra
sem vígði nýja kerfið.
Nýtt tölvukerfi á
læknavaktina
Elskuleg eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir og amma,
Rósa Björg Sveinsdóttir
Sæból 16, Grundarfirði,
lést á St. Franciskuspítalanum í Stykkishólmi,
fimmtudaginn 27. sept sl. Jarðarförin fer fram í
Grundarfjarðarkirkju laugardaginn 6. okt. kl. 13.30.
Ragnar Ingi Haraldsson
Jóna Björk Ragnarsdóttir Guðmundur Smári Guðmundsson
Auður Hanna Ragnarsdóttir Reynir Ragnarsson
Ásgeir Ragnarsson Þórey Jónsdóttir
Sveinn Ingi Ragnarsson Hjördís Pálsdóttir
barnabörn.
MOSAIK
Þökkum af alhug öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og
útför
Þórunnar Andrésdóttur
Stóra-Ási, Hálsasveit.
Andrés Magnússon Martha Eiríksdóttir
Kolbeinn Magnússon Lára Kristín Gísladóttir
Jón Magnússon
Halla Magnúsdóttir Hreiðar Gunnarsson
Okkar ástkæra eiginkona, móðir, tengda-
móðir, dóttir, amma og systir,
Hreindís Guðmundsdóttir
hjúkrunarfræðingur,
andaðist á Landspítalanum hinn 1. október. Útförin
fer fram frá Bústaðarkirkju mánudaginn 8. október kl.
13.00.
Einar Sigurgeirsson
Sigríður Einarsdóttir Sindri Sveinsson
Geirmundur Einarsson Arna Jóhannsdóttir
Elísabet H. Einarsdóttir Ólafur Á. Haraldsson
Ragna Kemp
barnabörn og systkini hinnar látnu.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Friðrikka Bjarnadóttir
Hjúkrunarheimilinu Sóltúni, áður til
heimilis að Hæðargarði 35,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 4.
október kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er
bent á minningarsjóð Sóltúns, Hjúkrunarheimilinu
Sóltúni.
Bjarni Ólafsson Rannveig Guðmundsdóttir
Bjarney Ólafsdóttir Richard A. Hansen
Ólafur E. Ólafsson Guðrún Gunnarsdóttir
Jón S. Ólafsson Caroline Nicholson
Dómhildur I. Ólafsdóttir Jón Hilmar Friðriksson
Þóra S. Ólafsdóttir Páll M. Pálsson
barnabörn og langömmubörn.
BSRB-verkfallið hefst