Fréttablaðið - 04.10.2007, Page 44
Íslenska óperan frumsýnir
í kvöld Ariadne auf Naxos
eftir Richard Strauss. Verk-
ið, sem fyrst var frumsýnt
árið 1912, er nú sýnt í fyrsta
skipti hérlendis.
Alls koma sextán íslenskir ein-
söngvarar fram í sýningunni, auk
þess sem Ingvar E. Sigurðsson fer
með talhlutverk.
Leikstjóri er Þjóðverjinn
Andreas Franz, en þetta er í fyrsta
sinn sem hann starfar við Íslensku
óperuna.
Hann segir áhersluna í þessari
uppfærslu vera á söguna sem á
sér stað í verkinu. „Það skiptir
mig miklu máli að miðla sögunni á
sem skýrastan hátt. Sagan segir
frá samskiptum tónlistarmanna
og hvað þeir læra af því að þurfa
að vinna saman.“
Sem dæmi nefnir leikstjórinn
samskipti tveggja persóna í verk-
inu. „Aðalkvenpersónurnar tvær,
Ariadne og Zerbinetta, eru nánast
eins og dagur og nótt að flestu
leyti. Til að mynda eru viðhorf
þeirra til ástarinnar ólík; Ariadne
vill bara elska þann eina rétta en
Zerbinetta vill elska alla karl-
menn. Þær eru báðar öfgakenndar
í viðhorfum sínum og komast að
því að þær eru betur settar ef þær
nálgast hvor aðra eilítið.“
Andreas hefur ekki áður unnið að
uppsetningu þessa verks. „Ég hef
aldrei komið að þessari óperu áður,
en ég hef séð uppsetningar á henni
og mér þykir hún búa yfir áþreifan-
legri spennu. Verkið er samið og
sett á svið skömmu fyrir heims-
styrjöldina fyrri og það svífur ein-
hver ógn yfir vötnum. Persónur
verksins eru afar uppteknar af að
skemmta sér og lifa hátt; það er
eins og þær viti að bráðlega verði
bundinn endi á gleðskapinn.“
Æfingar á verkinu hafa staðið
yfir síðan í lok sumars og segir
Andreas æfingaferlið hafa verið
ánægjulega reynslu. „Þetta hefur
verið frábær tími. Íslenska óper-
an er lítið óperuhús, en þetta verk
hentar henni afar vel. Það hefur
einnig verið gaman að vinna með
íslensku söngvurunum vegna
þess að þeir eru mjög góðir. Það
kom mér þægilega á óvart hvað
þetta er framúrskarandi teymi
sem vinnur að þessari sýningu;
það er leitun að öðru eins við
stærri óperuhús erlendis.“
Enn fremur lætur leikstjórinn
vel af dvöl sinni hérlendis. „Þetta
hefur verið yndislegur tími. Fólk-
ið er afar vinalegt og náttúran
falleg. Það eina sem ég get sett út
á er veðráttan; ég er frá Ham-
borg þar sem veðrið er eilítið frá-
brugðið því sem gerist hér. Aftur
á móti er líka skemmtilegt að
kynnast svona framandi veður-
fari,“ segir Andreas Franz að
lokum.
Leg fer aftur á svið nú um helg-
ina, en þessi nýi íslenski söngleik-
ur vakti mikla lukku á fjölum
Þjóðleikhussins á liðnum vetri.
Sýningin sópaði að sér áhorfend-
um og hlaut á endanum tólf til-
nefningar til Grímu-verðlauna og
vann verðlaun fyrir tónlist sem
hljómsveitin Flís tók heim með
sér. Nú hafa níu þúsund áhorfend-
ur séð sýninguna og miðað við
athygli ætti sá fjöldi að þrefaldast
á næstu mánuðum.
Verkið sækir sitthvað í örmynda-
sögur höfundarins Hugleiks Dags-
sonar sem vakið hafa athygli. Við-
fangsefni verksins eru ýmsar
meinsemdir íslensks samfélags
sem höfundurinn tekst á við með
sínum einstaka helsvarta húmor. Í
Legi leggja Hugleikur og félagar
til atlögu við söngleikjaformið en
aðalpersónan Kata er óléttur og
ólukkulegur Garðbæingur sem
þarf ekki aðeins að eiga við mögu-
legan skilnað foreldra sinna,
fuglaflensu bróður síns og ístöðu-
lausan kærasta heldur er félags-
ráðgjafinn í skólanum ekki allur
þar sem hann er séður. Hnattvæð-
ing, virkjanaframkvæmdir og
Jesús Kristur koma við sögu.
Leikstjóri sýningarinnar er
Stefán Jónsson, Flís sér um tónlist
og hljóðmynd. Ljósa- og mynd-
bandshönnun annast Freyr
Vilhjálmsson og Gideon Kiers.
Ilmur Stefánsdóttir sér um leik-
mynd, búninga hannar Þórunn
Elísabet Sveinsdóttir en leikgervi
Árdís Bjarnþórsdóttir.
Í leikhópnum eru Atli Rafn Sig-
urðarsson (kvensjúkdómalæknir-
inn Hjörtur), Dóra Jóhannsdóttir
(unglingsstúlkan Kata), Edda
Björg Eyjólfsdóttir (Ingunn vin-
kona), Elma Lísa Gunnarsdóttir
(Gitte hin danska), Friðrik Frið-
riksson (Kalli bróðir með fugla-
flensuna), Halldóra Geirharðs-
dóttir (móðirin Vala), Jóhannes
Haukur Jóhannesson (Sigmar
Snær og fleiri), Katla Margrét
Þorgeirsdóttir (amman og fleiri),
Kjartan Guðjónsson (Ari hinn
söngelski) Stefán Hallur Stefáns-
son (Andri/Andrew) og Valur
Freyr Einarsson (dr. Smith, Þossi
og fleiri).
Tóndæmi úr sýningunni og
myndband má finna á bloggsíðu
Þjóðleikhússins, www.leikhusid.
blog.is
Hugleikur Dagsson er með nýtt
verk í smíðum en verk hans Bað-
stofan verður frumsýnt í vetur í
Kassanum. Sami hópur stendur að
þeirri sýningu og mun Stefán
Jónsson leikstýra henni einnig.
Leg aftur í gang
Hádegistónleikaröðin Von103 fer
af stað á morgun. Tónleikarnir,
sem verða haldnir fyrsta föstudag
hvers mánaðar, fara fram í sam-
nefndum sal SÁÁ í Efstaleiti 7 í
Reykjavík.
Listrænn stjórnandi tónleik-
anna er Nína Margrét Grímsdóttir
píanóleikari og fær hún til liðs við
sig góða gesti úr röðum íslenskra
tónlistarmanna hverju sinni.
Nína kemur fram á morgun
ásamt Guðnýju Guðmundsdóttur,
konsertmeistara Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands. Verkin sem verða
á dagskrá eru Sónata óp. 100 og
Scherzo eftir Brahms.
Nína segir verkin vera skemmti-
lega ólík þótt bæði séu eftir sama
höfund. „Fyrra verkið sem við
leikum á tónleikunum kallast
Scherzo og er sónötukafli. Brahms
og nokkrir vinir hans sameinuðust
um að semja sónötu handa sam-
eiginlegum vini sínum í afmælis-
gjöf, og samdi hver þeirra sónötu-
kafla. Í dag er kafli Brahms vel
þekktur, en sónatan sjálf er minna
leikin, enda verkið í heild sinni
frekar sundurleitt. Kaflinn er
áleitinn og spennandi og ber þess
merki að það er ungur Brahms
sem samdi hann. Síðan flytjum við
ópus eftir sama höfund sem er
yfirvegað og þroskað stykki og er
það ljóst að höfundurinn hefur elst
og þroskast.“
Tónleikarnir eru haldnir í sam-
starfi við SÁÁ, Ríkisútvarpið og
Te og kaffi. „Tónleikaröðin er liður
í forvarnastarfi ungmennadeildar
SÁÁ í formi tónlistarfræðslu og
því leggja samtökin til þennan
fína kammertónlistarsal fyrir tón-
leikana. Ríkisútvarpið sér um að
hljóðrita alla tónleikana í röðinni
og verða þeir sendir út einhvern
tíma síðar. Svo stendur fyrirtækið
Te og kaffi fyrir veitingasölu á
tónleikunum svo að fólk getur
notið hressingar á meðan það hlýð-
ir á klassíska tóna í hádeginu,“
segir Nína.
Tónleikarnir verða um fjörtíu
mínútna langir án hlés og hefjast
þeir klukkan 12.15. Miðaverð er
2.000 krónur.
Tvær hliðar Brahms
Hundrað og eitt tækifæri er yfir-
skrift þings sem Torfusamtökin
efna til á laugardag í gamla Iðnó.
Samtökin hafa starfað af nokkrum
krafti undir nýrri forystu eftir að
hafa legið í dvala um árabil. Enda
er nú tekist á um framtíð byggðar
með ströndinni við Reykjavík og
margt til umræðu í þeim áætlun-
um.
Á fundinum í Iðnó á laugardag
verður rætt um Laugaveginn sér-
staklega en eins og lesendur
Fréttablaðsins hafa tekið eftir eru
miklar áætlanir í uppsiglingu um
breytingar á þessari fornu versl-
unargötu borgarinnar, leiðinni inn
að laugunum í Laugardal þar sem
formæður borgarinnar gengu með
þvott sinn á fyrri tíð.
Hvert ætti gildi og hlutverk
byggingararfsins að vera í upp-
byggingu Laugavegar og Kvosar-
innar, spyrja menn og svörin koma
úr ýmsum áttum: Meðal frummæl-
anda eru Eva María Jónsdóttir
dagskrárgerðarkona sem hefur
látið til sín taka í opinberri umræðu
um framtíð Þingholta og Skugga-
hverfis, Guja Dögg Hauksdóttir,
forstöðumaður Byggingarlistar-
deildar Kjarvalstaða, Margrét
Harðardóttir og Steve Christer,
arkitektar Studio Granda, en þau
áttu sigurtillögu um breytingar á
Lækjartorgi nýlega, og Sigmund-
ur Davíð Gunnlaugsson, hagfræð-
ingur og fréttamaður, sem hefur
unnið rannsókn á möguleikum í
endurbyggingu á svæðinu.
Að loknum ræðum frummæl-
enda verður efnt til opinna
umræðna og eru allir velkomnir.
Er við hæfi að hafa fundinn í hinu
forna félagsheimili iðnaðarmanna
sem fyrir mörgum árum var end-
urbyggt og er nú sönn borgar-
prýði. -
Torfusamtökin þinga
Sinfóníuhljómsveitin í heimsókn til Keflavíkur kl. 22.15
Í kvöld verður fyrsti hluti af þremur í
leikþáttaröð eftir Kristínu Ómarsdóttur
fluttur á Rás 1.
Leikstjóri er Guðmundur Ingi Þor-
valdsson en í helstu hlutverkum eru
Sóley Elíasdóttir, Þórdís Elva Þorvalds-
dóttir Bachmann, Sveinn Þórir Geirsson
og Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir.
Hljóðvinnslu annast Hjörtur Svavars-
son.
Í leikverki sínu, Smá sögum, skoðar
Kristín Ómarsdóttir tengslin innan
fjölskyldunnar á sinn ísmeygilega hátt.
Verkið samanstendur af tíu sjálfstæðum
leikþáttum sem saman mynda eina
heild.