Fréttablaðið - 04.10.2007, Qupperneq 52
Sögur um að aðþrengda eiginkonan Eva
Longoria og eiginmaður hennar, Tony
Parker, hefðu tekið upp kynlífsmyndband
sem væri í þann veginn að leka á netið
reyndust ekki á rökum reistar. Þó var
sannleikskorn í sögunni enda lék Eva í
nokkurs konar eftirlíkingu af kynlífs-
myndbandi Paris Hilton fyrir vefsíðuna
Funny or Die sem var sett á vefinn í
fyrradag.
Í myndbandinu sést hvar Eva situr á
rúmi ásamt ljóshærðum manni og efast í
fyrstu um að upptakan sé góð hugmynd.
En eftir að meðleikarinn lofar að setja
myndbandið á öruggan stað, það er í
hanskahólfið í bílnum sínum, samþykkir
hún að vera með. Í framhaldinu sjást þau
fáklædd í koddaslag auk þess sem þau
hnoðast um í rúminu og hringja í
afgreiðslu hótelsins til þess að láta vita að
öskrin úr herberginu séu „betri gerðin“.
Svo tekur maðurinn Evu í „flugvél“ og
gerir armbeygjur með hana sitjandi á
bakinu. Ekki eru allir sammála um hversu
fyndið myndbandið er, sérstaklega í ljósi
þess að þrjú ár eru síðan myndbandið með
Paris lak á netið og „brandarinn“ því
orðinn heldur gamall. Hægt er að sjá
myndbandið og mynda sér skoðun á því á
slóðinni www.funnyordie.com.
Kynlífsmyndbandið var gabb
Pálmi Gestsson fagnaði
fimmtugu ásamt vinum og
velunnurum á Nasa á þriðju-
dagskvöldinu. Veislan var að
sögn eiginkonunnar hugljúf og
falleg.
„Ég gaf honum korselett, bleikt og
appelsínugult. Ég hef aldrei verið
með manni á sextugsaldri og vissi
því ekkert hvað ég átti að gefa
honum,“ segir Sigurlaug Halldórs-
dóttir, eiginkona Pálma, þegar hún er
spurð hvað hún hafi gefið manninum
sínum. „Ég lét það reyndar fylgja
með að við yrðum bara að máta þetta
bæði til að sjá hvort það passaði,“
heldur hún áfram.
Að sögn Sigurlaugar var veislan fyrst
og fremst falleg og ekki var nokkur
skortur á góðum ræðumönnum, eins
og gefur að skilja í slíku samkvæmi.
Meðal þeirra sem tóku til máls voru
Stefán Baldursson, fyrrverandi þjóð-
leikhússtjóri og núverandi óperu-
stjóri, sem fór yfir feril leikarans og
þá flutti sonur Pálma, Gestur, einnig
ræðu. Veislustjóri var Hjálmar Jóns-
son dómkirkjuprestur og að sögn
Sigurlaugar fór hann alveg á kostum.
Núverandi Spaugstofumenn létu sitt
ekki eftir liggja og sungu fyrir hann
brag þar sem óspart grín var gert að
nafninu Pálmi. „Pálmi var alveg
alsæll með þetta og við erum eigin-
lega bara enn að jafna okkur og ná
okkur niður á jörðina,“ segir Sigur-
laug.
„Loksins kemur framsýnn og gáfaður
maður eins og Þórhallur Gunnarsson
sem dagskrárstjóri. Maður sem tekur
eitthvað stórkostlegt á borð við Tví-
höfða og kemur því í sjónvarp. Mér
hefði aldrei dottið þetta í hug,“ segir
Jón Gnarr en hann og Sigurjón Kjart-
ansson eru meðal þeirra sem koma fram
í þættinum Laugardagslögin sem verð-
ur frumsýndur í Sjónvarpinu á laugar-
dag. Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir er
kynnir í þættinum en fjölmargir aðrir
koma að honum á einn eða annan hátt.
Jón segir að þeir Tvíhöfðamenn muni
bæði koma fram í beinni útsendingu og
í fyrirfram unnum innslögum. Hins
vegar hefur mesta vinnan legið í því að
útbúa gervi fyrir hvern og einn karakt-
er sem hefur unnið hug og hjörtu lands-
manna í útvarpsþáttum Tvíhöfða. „Það
liggur gífurleg vinna að baki þessu enda
þurftum við t.d. að ákveða hvernig
Umferðar-Einar lítur út. Ég hafði aldrei
pælt í því. En hann lítur stórkostlega út,
ég get fullyrt það. Útlitið svíkur ekki.“
Jón segist þó ánægðastur með gervi
yfirkennarans. „Við munum hitta yfir-
kennarann og kærustuna
hans. Hann er 43 ára og býr
með einum af nemendum
sínum úr grunnskóla. Það
er karakter sem er elskað-
ur og dáður af mörgum.“
Jón segir að í raun hafi
Tvíhöfði upphaflega verið
hugmynd fyrir sjónvarp.
„TV-í-höfði, eitthvað sem
hentar vel fyrir sjónvarp.
Eiginlega sjónvarp í heila.“
- sók
Umferðar-Einar í sjónvarp
Hljómsveitirnar Motion Boys,
Jan Mayen, Ultra Mega Techno-
bandið Stefán, Bloodgroup og
Foreign Monkeys koma fram á
upphitunartónleikum fyrir
Airwaves-hátíðina á Nasa á
föstudag.
Tilefnið er útkoma dagskrár-
bæklings um Airwaves og þá
verða aðeins rétt rúmlega tíu
dagar í að hátíðin hefjist.
Dagskrá Airwaves hefur verið
birt á heimasíðu hátíðarinnar,
www.icelandairwaves.com.
Miðaverð á upphitunartónleikana
er 500 krónur.
Airwaves
upphitun