Fréttablaðið - 07.10.2007, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 07.10.2007, Blaðsíða 10
Ég hef löngum dáðst að Matt-híasi Johannessen, ritstjóra Morgunblaðsins, fyrir viðtalsbók hans við Þórberg Þórðarson sem hefur fylgt mér alla tíð og sömu- leiðis finnst mér rökstuðningur hans fyrir því að Sturla Þórðarson sé höfundur Njálu ákaflega skyn- samlegur og sannfærandi. Nú er Matthías sestur í helgan stein og farinn að birta dagbækur sínar á netinu. Í þeim er margt athyglisvert að finna. Mér þótti merkilegt að rekast á staðfestingu á því sem ég og margir fleiri viss- um hér í eina tíð – en gátum ekki sannað með skriflegum gögnum – sem sé að miskunnarlaust kalt stríð væri í landinu og samsæri um að berja á fólki fyrir að hafa rangar skoðanir. Það var ljótur leikur. Níðings- verk. Annars vegar samsærismenn og ritstjóri Morgunblaðsins eitil- harðir í því heilaga ætlunarverki sínu að klekkja á andstæðingum Sjálfstæðisflokksins – en þó með snyrtilegri aðferðum en nasistar notuðu við Gyðinga þótt hatrið og hugarfarið væri það sama. Hina ofsóttu átti að svelta með „Berufs- verbot“, atvinnubanni. Hinum megin voru grunlaus og tvístruð fórnarlömbin sem höfðu unnið sér það eitt til óhelgi að játa ekki trú á Morgunblaðið og Sjálfstæðisflokkinn. Gefum Matthíasi Johannessen orðið (engu orði hefur verið vikið við, stafsetning og greinar- merkjasetning er hans): „Maí 1974 – ódagssett Hef fengið dálítið íhug- unarvert bréf frá Hrafni Gunnlaugssyni,kvik- myndastjóra, sem nú er í Stokkhólmi. Hann segir að fóstbróðir sinn, Davíð Oddsson, hafi sagt sér í bréfi nýlega að mér hafi sárnað „fljót- færnisbréf það er ég skrifaði þér í febrúar“ og hefði ég trúlega verið sjálfum mér líkur, skrifað út frá eigin hugrenningum án útskýringa eða samhengis, þannig að mestu spekingar hefðu fengið allt annað út úr bréfinu en til var stofnað, þó þeir hafi verið allir af vilja gerðir að sjá það í réttu ljósi.“ Síðan segist Hrafn nú einu sinni vera „voðalegur egóisti“ og er montinn af því, þó hann viti hvaða hættum slíkt býður heim. Maður eigi að vera egóisti í sköp- uninni, andanum, trúnni. – Eigin- girni er allt annað. Og þá snýr hann sér að ástand- inu hér á Íslandi og segir: „En hvað er þá að gerast á Íslandi spyr maður sjálfan sig. Jú, við áttum útvarpsráðsmeirihluta í áratugi, á meðan varð útvarpið rautt – við erum í minnihluta í dag, þá er útvarpið orðið eld- rautt. Allt virðist stefna í sömu átt og í Svíþjóð. Við leyfum eyðileggingaröfl- unum að vaða uppi til að kaupa okkur smá frið. En höfum við hugfast: þeir vinna stöðugt af okkur land og hafa ekki tapað einum fermetra, frekar en Björninn bak við járntjaldið. Því miður virðist ríkja algjört sinnuleysi í okkar röðum, ef þú og örfáir menn á Mbl. eru undanskildir, okkar menn líta á útvarpsráð sem bitling, Þjóðleik- húsráð sem snobb, en skilja ekki að þeir eru í útvarðsstöðu, þar sem baráttan á að vera hörðust og þar sem úrvalsliðið á að stöðva fjand- manninn. Ég er voðalega hræddur um að við séum aðeins bremsuborðar, kæri pater, sem slitnum þegar hjólið snýst. Kannski tekst okkur að hægja á snúningnum eitt and- artak með ofboðslegu átaki, en það er komið á fleygiferð aftur eftir augnablik. – Við verðum því að safna liði og hefja sókn. Ég hef sjálfur reynt að byggja upp tengsl við góða og hugrakka drengi sem ég veit að vilja berjast og þora. Þú manst eflaust enn þegar ég kom með Davíð Oddsson í fyrsta sinn upp á skrifstofu til þín, og Baldur Hermannsson á eftir að reynast fallbyssupenni þegar fram í sækir. Rúnar (Gunnarsson, á sjónvarp- inu) á einnig eftir að fylgja okkur eftir gegnum þykkt og þunnt, þannig mætti nefna fleiri, en við verðum að byggja upp breiðfylk- ingu og standa saman. Ég lít á þig sem kjörinn foringja til að safna liðinu um, en gleymdu því ekki að berserkir eru oft erfiðir í liðssveitum, þó þeir séu öllum mönnum betri í orustu. Sjálfur er ég þannig skapi farinn að ég rýk upp með offorsi og hleyp á mig, og þegar ég er í ham hættir mér til að tala beint út frá eigin hugrenning- um. Þegar ég skrifaði þér „bréf- ið”“þá var ég í öllum ham og fannst allt á leiðinni norður og niður, og við standa magnlausir gegn hel- reið laumukommanna; árangurinn varð frumhleypt reiðikast. Ég ætla ekki að útskýra þetta nánar, ég veit þú skilur það – svona er ég, ég hef erft þetta og mínir vinir sætta sig við þennan ókost vegna ann- arra kosta (vona ég!) – Ég bið þig að hugleiða þetta og óska að vin- átta okkar sé einlæg sem áður. Ef ég hefði einhvern tíma ástæðu til að efast um sjálfan mig þá væri slíkt löngu orðið, öðrum eins óhróðri um þig hafa blóðhundar kommúnista reynt að ausa á mig. Staðreyndin er að þeir óttast að við stöndum saman, því þeir vita að þar fer herfylking en ekki „the lonesome rider“. Sturlunga segir frá því að Guð- mundur góði missti eitt sinn stjórn á skapi sínu og bannsöng Arnór Tumason í offorsbræði. Arnór var spurður hvað honum þætti um orð biskups. Hann svaraði: „Hygg ek þetta atburð en eigi áhrínisorð.“ Látum bréf mitt hljóta sama dóm, það var atburður.“ Svo mörg voru þau orð,heit og einörð. Og áminnandi,auðvitað (!) Ég hef svo sannarlega fengið verra bréf en þetta! Þegar berserkurinn Hrafn Gunn- laugsson sækir sér „atburði“ í nýjar kvikmyndir, þá verður gaman að fara í bíó og hlusta á ylhýra málið í nýjum búningi; von- andi verður það jafnáhrifamikið fyrir arfleifð okkar og þýðing Odds Gottskálskssonar á Nýja testa- mentinu sællar minningar.“ Við lestur þessarar dagbókar- færslu ritstjóra Morgunblaðsins frá árinu 1974 verður það skiljan- legt sem fólki var ætlað að halda að væri samfelld röð yfirnáttúru- legra kraftaverka, sem sé sá góði aðgangur sem Hrafn Gunnlaugs- son og hans nótar áttu að opinberu fjármagni frá ríkisstofnunum eins og Kvikmyndasjóði og Ríkissjón- varpinu. Þar var „herfylking“ á ferð en ekki „the lonesome rider“. Fleiri en þeir vesalings einstakl- ingar sem Hrafn telur upp í bréfi sínu komu að góðu gagni í kross- ferð herfylkingarinnar gegn and- stæðingum Flokksins. Mála sinn hafa þeir/þær vonandi fengið greiddan og nöfnin koma í ljós þegar fræðimenn fara að róta í sorpinu sem þeir skilja eftir sig. Nú verða íslenskir kvikmynda- gerðarmenn sem ekki sóru Sjálf- stæðisflokknum trúnað og sættu fyrir það miskunnarlausum ofsóknum varla lengur vændir um ofsóknarbrjálæði. Sjónvarpsverkefni hjá Ríkis- sjónvarpinu – það er að segja hjá fyrrnefndum Rúnari Gunnarssyni hvers tryggð og fylgispekt „gegn- um þykkt og þunnt“ Hrafn rómaði í bréfinu til síns „kæra patris“ (föður) á Morgunblaðinu) – hafa ekki boðist mér síðan ég fram- leiddi sjónvarpsþáttaröðina SIGLA HIMINFLEY sem fékk 68% áhorf á sínum tíma og frá- bærar viðtökur. Að setja fólk í atvinnubann vegna stjórnmálaskoðana heitir á alþjóðamáli „Berufsverbot“ og er stjórntæki sem fasistar og fjand- menn lýðræðis nota á andstæð- inga sína. Sama gildir um meðferð Kvikmyndasjóðs á fjölmörgum umsóknum mínum. Árangurinn af „Berufsverbot“ var að lokum sá að ég hrökklaðist úr kvikmynda- gerð – að sjálfsögðu án þess að menntamálaráðuneytið keypti af mér rétt til að sýna myndir mínar í skólum landsins en þær eru þrátt fyrir vinsældir, verðlaun og viður- kenningar sennilega ekki eins hollar ungu fólki og myndir inn- vígðra berserkja. Ég skal ekki neita því að meðan samsærisberserkirnir voru hér ásum og upsum og manían var mest hvarflaði stundum að mér að leita að réttlæti og vinnufriði í öðrum löndum. Þeim tókst þó aðeins að flæma mig úr kvik- myndagerðinni en ekki af landinu – nema í tæp þrjú ár. Að sjálfsögðu standa þeir „kæri pater“ á Morgunblaðinu og ber- serkir hans og Hrafn Gunnlaugs- son og fóstbróðir hans uppi sem sigurvegarar í þessu boðaða stríði lítilmennskunnar sem með myrku og miskunnarlausa hugarfari skyldi háð gegn þeim listamönn- um sem ekki vildu þylja trúarjátn- ingu Moggans og Sjálfstæðis- flokksins eða láðist að lýsa yfir skriflegum stuðningi við Davíð Oddsson þegar hann bauð sig fram til þess að verða borgarstjóri í Reykjavík. Þeirra var mátturinn og dýrðin, Mogginn og hið pólit- íska heiftarvald Bláu handarinnar. Það eru fleiri íslenskir listamenn en ég sem líður eins og þolendum kerfisbundinna nauðgana af hálfu berserkja kalda stríðsins. Að endingu þetta: Kalda stríð- inu er lokið víðast hvar nema á Íslandi þar sem enn er bannað að ræða um fyrirlitningu voldugra manna á leikreglum lýðræðis. Það hlægir mig að þetta lítil- mannlega samsæri sem var á margra vitorði en enginn þorði að afhjúpa – skuli nú vera skjalfest – með þessum hætti! Þótt náttúran sé lamin með lurk leitar hún út um síðir. Heimild: www.matthias.is Þráinn Bertelsson rithöfundur og fyrrverandi kvikmyndagerðarmaður. Kæri pater og berserkirnir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.