Fréttablaðið - 07.10.2007, Side 75

Fréttablaðið - 07.10.2007, Side 75
urnar voru krassandi og fjölmiðl- ar nærðust á skandölum og gróu- sögum. Á tímabili minnti líf Britney frekar á hressilegan Jerry Sprin- ger en tilveru stærstu popp- stjörnu veraldar. Fjölmiðlar og þá ekki síst svo- kallaðar slúður-bloggsíður gripu tækifærið enda ekki á hverjum degi sem stórstjarna riðar til falls í beinni útsendingu. Á hverj- um degi, hverri klukkustund mátti sjá Britney á leið út í búð, Britney úti að borða og Britney að reykja. Að ekki sé talað um Britney á næturlífinu og Britney á heimleið. Allir biðu með öndina í hálsinum hverju hún tæki upp á næst og hvort hún myndi missa stjórn á lífinu fyrir allra augum. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir fjölskyldu Britney og nánustu samstarfsmanna til að koma fyrir hana vitinu virtist söngkonan ekki hlusta. Endalausar sögur um villt og taumlaust líferni fylltu dagblöðin og þegar sönkonan hugðist reyna að redda ferlinum á MTV-verð- laununum fyrir stuttu varð flest- um ljóst að á sviðinu stóð stjarna í bæði andlegu og líkamlegu rusli. Í vikunni var tilkynnt að Britney Spears hefði misst forræðið yfir strákunum sínum tveim, þeim Sean Preston og Jayden James. Hvorki lögfræðingar, umboðs- menn né útgáfufyrirtæki treysta sér til að vinna með henni. Dóm- ari í málinu úrskurðaði síðar að söngkonan unga mætti hitta syn- ina undir eftirliti en henni var gert að fara í meðferð, læra að tala við börn og taka áfengis- og lyfjapróf að minnsta kosti tvisvar í viku auk þess að hætta að aka bíl án tilskilinna leyfa. Stjarna Britney Spears er horf- in af himnafestingunni um stund- arsakir og á meðan það er trú sumra að henni takist fyrr eða síðar að byggja upp veldi sitt að nýju eru aðrir sem óttast að örlög hennar liggi í endanlega glötun. Þvert á allar hrakspár komst nýjasta smáskífan hennar Gimme More á topp bandaríska listans og myndbandið við lagið lýsir kannski best þeim tveim persón- um sem berjast um yfirhöndina í lífi hennar. Annars vegar er það ljóshærð stúlka sem situr við bar- inn, pen og prúð með kokteil í hendi. Og hins vegar dökkhærður strippari sem er til alls vís.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.