Fréttablaðið - 07.10.2007, Page 75
urnar voru krassandi og fjölmiðl-
ar nærðust á skandölum og gróu-
sögum.
Á tímabili minnti líf Britney
frekar á hressilegan Jerry Sprin-
ger en tilveru stærstu popp-
stjörnu veraldar.
Fjölmiðlar og þá ekki síst svo-
kallaðar slúður-bloggsíður gripu
tækifærið enda ekki á hverjum
degi sem stórstjarna riðar til
falls í beinni útsendingu. Á hverj-
um degi, hverri klukkustund
mátti sjá Britney á leið út í búð,
Britney úti að borða og Britney
að reykja. Að ekki sé talað um
Britney á næturlífinu og Britney
á heimleið. Allir biðu með öndina
í hálsinum hverju hún tæki upp á
næst og hvort hún myndi missa
stjórn á lífinu fyrir allra augum.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
fjölskyldu Britney og nánustu
samstarfsmanna til að koma fyrir
hana vitinu virtist söngkonan
ekki hlusta.
Endalausar sögur um villt og
taumlaust líferni fylltu dagblöðin
og þegar sönkonan hugðist reyna
að redda ferlinum á MTV-verð-
laununum fyrir stuttu varð flest-
um ljóst að á sviðinu stóð stjarna
í bæði andlegu og líkamlegu
rusli.
Í vikunni var tilkynnt að Britney
Spears hefði misst forræðið yfir
strákunum sínum tveim, þeim
Sean Preston og Jayden James.
Hvorki lögfræðingar, umboðs-
menn né útgáfufyrirtæki treysta
sér til að vinna með henni. Dóm-
ari í málinu úrskurðaði síðar að
söngkonan unga mætti hitta syn-
ina undir eftirliti en henni var
gert að fara í meðferð, læra að
tala við börn og taka áfengis- og
lyfjapróf að minnsta kosti tvisvar
í viku auk þess að hætta að aka bíl
án tilskilinna leyfa.
Stjarna Britney Spears er horf-
in af himnafestingunni um stund-
arsakir og á meðan það er trú
sumra að henni takist fyrr eða
síðar að byggja upp veldi sitt að
nýju eru aðrir sem óttast að örlög
hennar liggi í endanlega glötun.
Þvert á allar hrakspár komst
nýjasta smáskífan hennar Gimme
More á topp bandaríska listans og
myndbandið við lagið lýsir
kannski best þeim tveim persón-
um sem berjast um yfirhöndina í
lífi hennar. Annars vegar er það
ljóshærð stúlka sem situr við bar-
inn, pen og prúð með kokteil í
hendi. Og hins vegar dökkhærður
strippari sem er til alls vís.