Fréttablaðið - 08.10.2007, Blaðsíða 1
Bæjarbúar tóku fúsir þátt í flutningum þegar
Frúin í Hamborg flutti sig um set á Akureyri.„Við fluttum í nýtt húsnæði á Akureyrarvöku síðast-
liðið sumar eftir fjögur ár á Ráðhústorgi. Af því til-
efni vorum við með sérstakan gjörning sem við
nefndum Flutningar frúarinnar þar sem uppáklædd
frúin var fremst í flokki. Síðan var hún með þjón-
ustufólkið sitt sem hélt á hinu og þessu úr búðin i
Eftir það var arkað frá gamluna o ð
með hönnun Jóns Sæmundar og Nakta apans. Eins
eru krakkar sem eru að byrja í hönnun að koma með
eina og eina flík,“ segir Guðrún og heldur áfram:
„Síðan höfum við verið að gera línu sjálfar undir
nafninu Frúin í ham. Þá er bæði verið að breyta
gömlum kjólum og gera nýja hluti eins og töskur
púða og póstkort.“Að sögn Guðrú
Flutti í nýtt húsnæði
með hjálp Akureyringa
Útsýni til Esju
og Úlfarsfells
®
fasteignir8. OKTÓBER 2007
Fallegt endaraðhús að Brekku-tanga 26 í Mosfellsbæ er til sölu hjá fasteignasölunni Kletti.
H úsið er byggt 1977. Það erá tveimur hæðum ásamt kjallara sem í er sérstökíbúð. Bílskúr fylgir, byggður 1979.Alls er stærð eignar 254,1 fm og þar af er bílskúrinn 26 fl
eldhús og á efri hæðinni fjög-ur góð svefnherbergi og baðher-bergi. Í kjallara er hol, eldhús ogbúr. Einnig stofa og stórt svefn-herbergi sem hægt er að skipta í tvö. Undir bílskúrnum er glugga-laus geymsla þar sem gert var ráðfyrir gryfju. Í dag er hún lokuð.Svo innviðum og útliti sé lýst þáeru stofa og borðstofa með park-eti á gólfum
skápar úr hnotu. Tvö þeirra eru parketlögð og tvö með dúk á gólf-um. Úr hjónaherbergi er gengið útá svalir. Baðherbergi er með inn-réttingu, baðkari og sturtuklefa.Dúkur er á gólfi og veggjum.Frá holinu á neðri hæð er geng-ið í þvottahús og einnig út á sval-ir yfir bílskúrnum sem að hltil
Útsýni til Esju og Úlfarsfells
Stórt hellulagt bílaplan er við Brekkutanga 26.
HRINGDU NÚNA699 6165
Bóas
Sölufulltrúi
699 6165
boas@rem i
Gunnar
Sölufulltrúi
899 0800
Stefán Páll
Löggiltur
ATH VIÐ SELJUM ALLA DAGA !
Þjónusta ofar öllu
Undrandi á endur-
komu Péturs Þórs
Kennarar horfa
upp á nemendur sína fara út á
vinnumarkaðinn og fá um 200 þús-
und krónur á mánuði fyrir vinnu á
skyndibitastöðum. Það eru svipuð
laun og byrjunarlaun háskóla-
menntaðra kennara. Á almennum
vinnumarkaði eru algeng byrjunar-
laun 300 þúsund krónur.
Þetta segir Eiríkur Jónsson, for-
maður Kennarasambands Íslands,
og kveður valda óánægju meðal
kennara.
„Maður heyrir af fólki sem er
ekki með háskólapróf og fær 300
þúsund krónur í byrjunarlaun á
einkamarkaði. Ég gæti ímyndað
mér að það þurfi að fara hátt í þá
tölu til að kennarar verði ánægðir,“
segir Eiríkur.
Kjarasamningar kennara renna
út á næsta ári. Eiríkur segir að
grunnlaun verði að hækka, öðru vísi
fáist fólk ekki til starfa í skólunum.
Þá verði að auka sveigjanleika og
gera sveitarfélögum kleift að greiða
hærri laun en kjarasamningar segja
til um.
Fjölda fólks vantar til starfa í
leik- og grunnskólum og segir
Eiríkur að haldi fram sem horfi
endi allt með ósköpum. Hann býst
ekki við að kennarar fari í verkfall
á næstu misserum heldur segi þeir
upp störfum og hverfi úr skólunum
verði ekkert að gert. Hann bendir
líka á tifandi tímasprengju sem
geti sprungið innan fárra ára
þegar stórir hópar kennara öðlast
rétt til fullra eftirlauna vegna 95
ára reglunnar (samanlagður
starfs- og lífaldur), láti þá af
kennslu og finni sér önnur störf.
„Þá mun þessi vandi magnast,“
segir Eiríkur.
Kennurum svíður há
laun nemenda sinna
Byrjunarlaun kennara eru þau sömu og unglingar geta unnið sér inn á skyndi-
bitastöðum. Kennarar vilja að byrjunarlaun hækki í tæpar 300 þúsund krónur.
Fjörutíu og þriggja
ára karlmaður fannst lífshættu-
lega slasaður í íbúð sinni hjá
Félagsbústöðum á Hringbraut í
Reykjavík um klukkan hálf tvö í
gær.
Félagi mannsins, á fertugsaldri,
tilkynnti lögreglu um hinn
slasaða og kvaðst hafa komið að
honum.
Lögregla handtók hann stuttu
síðar grunaðan um að hafa valdið
áverkunum.
Friðrik Smári Björgvinsson
yfirlögregluþjónn sagði óvíst
hvenær yfirheyrsla yfir honum
gæti hafist vegna ástands hins
grunaða. Hann sagði ekki hægt að
greina nánar frá rannsókn
málsins.
Hinn slasaði er með högg-
áverka á höfði en ekki var unnt að
greina nánar frá meiðslum hans.
Þegar Fréttablaðið fór í prentun
var hann meðvitundarlaus í
öndunarvél á gjörgæsludeild
Landspítalans.
Í lífshættu eftir
alvarlega árás
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
reyna í dag að ná sátt um framtíð Orkuveitu
Reykjavíkur og Reykjavík Energy Invest (REI) og
þar með lægja öldur síðustu daga.
Borgarfulltrúar, sem Fréttablaðið ræddi við í
gærkvöldi, töldu miklar líkur á að samkomulag
næðist um að hlutur Orkuveitunnar í REI yrði seldur
einkaaðilum. Jafnframt að borgarfulltrúi tæki sæti í
stjórn Orkuveitunnar í stað Hauks Leóssonar
stjórnarformanns.
Innan borgarstjórnarflokks sjálfstæðismanna
hafa komið upp efasemdir um að rétt sé að efna
samkomulag um að Björn Ingi taki við stjórnarfor-
mennsku í Orkuveitunni um mitt næsta ár.
Náist ekki samstaða á fundi borgarstjórnarflokks-
ins í dag kunni að koma til þess að því samkomulagi
verði rift. Jafnframt geti grundvöllur samstarfs
flokkanna í meirihluta borgarstjórnar þá brostið.
Þing- og sveitarstjórnarmenn Framsóknarflokks-
ins hyggjast ræða málið í sínum hópi í dag. Innan
flokksins hefur kraumað óánægja með framgöngu
Björns Inga.
Bandarískur
lögreglumaður skaut til bana
fimm eða sex unglinga sem voru
í samkvæmi í smábænum
Crandon við kanadísku landa-
mærin í gær, að sögn fréttavefj-
ar BBC.
Maðurinn flúði af hólmi en
varð fyrir skoti lögreglunnar og
beið bana nokkru síðar.
Um tíu unglingar á aldrinum
sautján til tuttugu ára voru með
samkvæmi í húsinu, að sögn
sjónvarpsstöðvarinnar WJFW,
þegar lögreglumaðurinn Tyler
Peterson byrjaði að skjóta.
Ekki er vitað um ástæðurnar
fyrir skothríðinni en ljóst er að
minnst fimm létust.
Lögreglumaður
skaut fimm eða
sex manns