Fréttablaðið - 08.10.2007, Page 4
Starfsgreinasam-
bandið ætlar að lýsa kröfum sínum
og væntingum í kjaramálum í lýs-
ingarorðum, ekki í tölustöfum.
„Við ákváðum að nota lýsingarorð
eins og „verulegt“ og „mikið“ og
festa okkur ekki við hundrað þús-
und kalla,“ segir Kristján Gunn-
arsson, formaður Starfsgreina-
sambandsins, og viðurkennir að
það sé afstætt hvað sé mikið.
Þing sambandsins var haldið
fyrir helgi.
„Tilfinningaþrungnar og heitar
umræður urðu um kjaramálin en
menn komu standandi niður,“ segir
Kristján. „Þetta fer í frekari mótun
hjá samninganefndunum. Strax
eftir helgina ætlum við að ganga
frá viðræðuáætlunum með dag-
setningum um hvenær við ætlum
að birta kröfur. Það er heilmikil
vinna framundan,“ segir hann.
Þingið samþykkti ályktanir í
atvinnumálum, um húsaleigu-
markað og um að kanna aðild að
ESB og upptöku evru auk ályktun-
ar um að fullgilda lágmarksrétt-
indi við uppsögn úr starfi og nýjan
áfallatryggingasjóð.
„Við fögnum þeim hugmyndum
og hvetjum aðildarfélögin til að
styðja nánari útfærslu. Niður-
staðan er sú að miklu fleiri vilja
skoða þetta áfram en auðvitað er
nokkrum spurningum enn ósvarað.
Stærsti fyrirvarinn er um það
hver aðkoma stjórnvalda verður,“
segir Kristján.
Stjórn Starfsgreinasambands-
ins var einróma endurkjörin.
Kröfum lýst í lýsingarorðum
Megn óánægja er meðal
áhugaljósmyndara með að toll-
verðir á Keflavíkurflugvelli
krefjist kvittana eða ábyrgðar-
skírteina fyrir tölvum og mynda-
vélum sem komið er með til lands-
ins. Margir áhugaljósmyndarar
telja að tollurinn sé að „glæpa-
kenna alla farþega sem koma til
landsins og teljast þeir smyglarar
nema þeir geti sannað að þeir séu
ekki að smygla,“ segir Sigurður
Geirsson áhugaljósmyndari.
Heit umræða hefur verið um
starfsaðferðir tollsins á vefnum
ljósmyndakeppni.is. Sigurður
telur að sönnunarbyrðinni hafi
verið snúið við; menn séu taldir
sekir nema þeir geti sannað sak-
leysi sitt. Mörgum finnist þetta
nálgast valdníðslu, segir hann.
Sigurður spyr meðal annars
hvernig einstaklingur, sem hefur
fengið ljósmyndabúnað að gjöf,
eigi að framvísa kvittun, hvort
starfsmaður fyrirtækis eigi að fá
kvittun úr bókhaldi fyrirtækisins
til að sýna fram á í tollinum,
hvernig sýna eigi fram á greiðslu
aðflutningsgjalda þegar búnaður
hafi verið keyptur notaður og
hvort kvittun geti verið sönnun
um viðskipti þegar ekkert rað-
númer sé skráð á hana og auðvelt
að breyta henni í tölvu.
Hann spyr einnig hvort tollur-
inn geti krafið fólk um kvittanir
þegar einstaklingar séu ekki bók-
haldsskyldir og hvort menn geti
ekki átt á hættu að vera vændir
um skjalafals þar sem margir geti
notað sömu kvittanir og auðvelt sé
að breyta þeim í tölvu.
„Í tilfellum þar sem tollurinn
tekur búnað af saklausu fólki má
það hafa fyrir því að finna þessar
kvittanir og koma þeim til Kefla-
víkur með tilheyrandi vinnutapi
og kostnaði sem tollurinn tekur
ekki þátt í, hvað þá að endur-
greiða,“ segir Sigurður og telur að
tollurinn eigi að hafa upplýsingar
um allar vörur sem keyptar hafi
verið hér á landi og fluttar löglega
inn.
Sigurður veit dæmi þess að
tveggja ára myndavél hafi verið
tekin af atvinnuljósmyndara því
að hann hafi ekki haft kvittanir
meðferðis. Lárus Karl Ingason,
formaður Ljósmyndarafélags
Íslands, kannast ekki við að þetta
sé vandamál. Hann segir að ekkert
muni um að vera með tækjatrygg-
ingu og tækjalista í vasanum en
þetta mál verði rætt á næsta
stjórnarfundi. Tollverðir hafa
samkvæmt lögum ríkar heimildir
til að fylgjast með því sem komið
er með inn í landið.
...má það hafa fyrir því að
finna þessar kvittanir og
koma þeim til Keflavíkur með til-
heyrandi vinnutapi og kostnaði.
Stöðvaðir í tollinum
með myndavélarnar
Áhugaljósmyndarar eru æfir vegna þess að tollverðir taka myndavélar af sak-
lausum komufarþegum og krefjast kvittana. Einstaklingar verða fyrir vinnu-
tapi og kostnaði meðan búnaður þeirra er í vörslu tollsins á Keflavíkurflugvelli.
Anna Pála Sverrisdóttir
tók við formennsku Ungra
jafnaðarmanna á landsþingi þeirra
í gær. Fráfarandi formaður er
Einar Már Guðmundsson.
Á þinginu tóku ungir jafnaðar-
menn skýra stefnu í umhverfis-
málum og var hún samþykkt með
öllum greiddum atkvæðum nema
einu. Í henni var áframhaldandi
byggingu stóriðju hafnað og hvatt
til þess að fyrirhugaðar álvers-
framkvæmdir í Helguvík og
Bakka yrðu stöðvaðar. Áherslu
ætti að leggja á örvun nýsköpunar
og bættar aðstæður sprotafyrir-
tækja og hátækniiðnaðar.
Samkvæmt Önnu Pálu var rík
áhersla lögð á að stórhækka laun
kvennastétta í opinberri þjónustu.
Auk þess var hvatt til inngöngu í
Evrópusambandið og að almanna-
tryggingakerfi yrði bætt.
Samstaða um
umhverfismál
Guðlaug Þorsteinsdóttir
sigraði í þriðju skák einvígis síns
og Hallgerðar Helgu Þorsteins-
dóttur sem fram
fór í gær. Með
því tryggði hún
sér sinn sjötta
Íslandsmeistara-
titil í skák.
Guðlaug varð
fyrst Íslands-
meistari 1975
þegar mótið var
haldið í fyrsta
sinn.
Hallgerður,
sem er aðeins 14
ára, verður því að bíða eitthvað
lengur eftir sínum fyrsta titli en í
tilkynningu frá Skáksambandi
Íslands segir að frammistaða
hennar á Íslandsmótinu hafi
vakið mikla athygli þar sem hún
hafi slegið mörgum þrautreynd-
um landsliðskonum við. Þrátt
fyrir mikla leikni náði hún þó
ekki að skáka Guðlaugu í þetta
skipti.
Íslandsmeistari
í sjötta sinn
Súdanskar hersveitir
hafa jafnað bæinn Haskanita í
Darfúrhéraði við jörðu til að
jafna sakirnar við uppreisnar-
menn sem ráðist höfðu á herstöð
skammt frá bænum. Bærinn var
brenndur til grunna að undan-
skildum nokkrum húsum, að því
er fram kemur í tilkynningu frá
Sameinuðu þjóðunum.
Ekki liggur fyrir hvort
mannfall varð. Hjálparstarfs-
menn efast um fullyrðingar
uppreisnarleiðtoga þess efnis að
hundrað manns hafi farist.
Friðargæsluliði sem kannaði
svæðið sagði um fimmtán þúsund
manns á flótta á svæðinu.
Brenndu heilan
bæ til grunna
Ólafur Ragnar Gríms-
son, forseti Íslands, var í gær
viðstaddur undirritun samninga
milli líftæknifyrirtækisins ORF
og stærsta lyfjafyrirtækis Kína,
Sinopharm. Kínverska fyrirtækið
mun nýta sér prótín sem ORF
framleiðir úr byggi en sú aðferð
opnar nýja möguleika í lyfjafram-
leiðslu og þróun lyfja.
Forsetinn sagði samninginn
fela í sér mikla viðurkenningu
fyrir vísindasamfélagið á Íslandi,
rannsóknir íslenskra háskóla-
manna og árangursríkt samstarf
íslenskra sérfræðinga við
alþjóðleg rannsóknarsetur.
Nýtir prótín
úr byggi í lyf