Fréttablaðið - 08.10.2007, Side 8

Fréttablaðið - 08.10.2007, Side 8
Góð ávöxtun Íslenska lífeyrissjóðsins Þegar þú ráðstafar lífeyrissparnaði þínum er mikilvægt að hafa í huga að góð ávöxtun er lykilþáttur í verðmætamyndun hans. Hjá Íslenska lífeyrissjóðnum getur þú verið viss um að sparnaðurinn er í góðum höndum reyndra starfsmanna og nýtur góðrar ávöxtunar hvort sem litið er til lengri eða skemmri tíma. Hafðu samband við ráðgjafa okkar í 410 4040 og fáðu nánari upplýsingar um Íslenska lífeyrissjóðinn. G O TT FÓ LK 20% 18% 16% 14% 12% 10% 8% 6% 4% 2% 0% Líf I 16 - 44 ára Líf II 45 - 54 ára Líf III 56 - 64 ára Líf IV 65 ára og eldri Nafnávöxtun sl. 5 ár Nafnávöxtun sl. 12 mán. Nafnávöxtun á ársgrundvelli miðast við 31. júlí 2007. A ug lý si ng as ím i – Mest lesið Stjórnmál í Pakistan voru í uppnámi í gær, daginn eftir að Pervez Musharraf var endur- kjörinn forseti með yfirgnæfandi meirihluta í atkvæðagreiðslu á þingi, en úrskurðar hæstaréttar landsins er beðið um það hvort Musharraf hafi verið löglega kjörgengur. Atkvæðagreiðsluna á laugar- dag sniðgengu margir þingmenn stjórnarandstöðunnar í mótmæla- skyni við að Musharraf skyldi ekki hafa orðið við kröfum um að segja fyrst af sér sem yfirmaður hersins áður en forsetakjörið færi fram. Minnst tíu dagar eru sagðir í að hæstiréttur kveði upp úrskurð sinn í málinu og annað hvort stað- festi kjör Musharrafs eða lýsi kjör hans ógilt. Margir stjórnmálaskýrendur kveðast efast um að dómararnir muni dirfast að dæma hershöfð- ingjann frá völdum. En í dagblað- inu The Nation, sem gefið er út í Lahore, segir í leiðara að ríkis- stjórnin geti ekki gefið sér að dómstólarnir fari að vilja hennar. Hæstiréttur hafði áður vísað frá ýmsum andmælum gegn kjör- gengi Musharrafs, sem flest byggðu á tilvísun í stjórnarskrár- ákvæði sem útilokar embættis- menn ríkisins frá framboði í opin- ber embætti sem kosið er í. En þótt dómstóllinn hefði nýjar kærur til umfjöllunar úrskurðaði hann á föstudag að kosningunum skyldi ekki frestað. Ekki yrði þó hægt að lýsa niðurstöðuna gilda fyrr en úrskurðað hefði verið í nýjustu kærumálunum. Bandamenn Musharrafs á þingi hugguðu sig þó við að dómstóllinn skyldi hafa heimilað að kosningarn- ar færu fram nú í stað þess að láta þær bíða fram yfir þingkosningar í janúar, en víst þykir að í þeim vinni andstæðingar Musharrafs mikið á. Musharraf hefur reynt að tryggja völd sín eftir þann tíma með samningum við útlæga leið- toga stjórnarandstöðunnar, fyrr- verandi forsætisráðherrana Ben- azir Bhutto og Nawaz Sharif. Musharraf, sem rændi völdum árið 1999, segir það vera hags- muni þjóðarinnar að hann sitji áfram sem forseti til að tryggja friðsamleg skipti yfir í borgara- lega stjórn og til að hvergi verði slegið af í baráttunni gegn öfga- öflum í landinu. Herinn á í stöðug- um erjum við íslamska öfgamenn, stuðningsmenn talibana, einkum í héruðunum næst landamærunum að Afganistan. Uppnám í Pakistan eftir forsetakjör Pervez Musharraf hershöfðingi var endurkjörinn forseti Pakistans í atkvæða- greiðslu á þingi um helgina. Þrátt fyrir það er vald hans í uppnámi uns hæsti- réttur landsins hefur kveðið upp úrskurð um hvort hann hafi verið kjörgengur. Í hvaða flokki gætir sérstakr- ar óánægju með framgöngu Björns Inga Hrafnssonar við samruna REI og Geysis Green Energy? Hvernig ljós kveiktu Húsvík- ingar í rafmagnsleysi í vikunni? Hverjir líkjast Eiríki Hauks- syni söngvara? Bygging bílskúrs við Fífuhvamm í Kópavogi hefur verið stöðvuð af Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála. Hjón sem búa í næsta húsi við manninn sem er að byggja umræddan bílskúr kærðu Kópavogsbæ fyrir að veita byggingarleyfi fyrir bílskúrnum sem á að vera nánast á lóðamörkum milli húsanna. Í viðtali við Fréttablaðið 10. september sögðu hjónin að þeim liði eins og að „keyrt hefði verið yfir þau á trukki“ í málinu. Gagnrýndu þau meðal annars staðsetningu bílskúrsins og stærð hans auk þess sem grafið yrði undan rótarkerfi stórra aspa sem standa í jaðri lóðar þeirra. Í bráðabirgðaúrskurði úrskurðar- nefndarinnar segir að ákvörðun um að veita leyfi fyrir bílskúrnum hafi ekki verið byggð á grenndarkynningu sem gerð hafi verið og að rökstuðn- ingi byggingarnefndar með tilliti til trjánna á lóðamörkunum væri stórlega áfátt. Þá væri ekkert skjalfest um þá staðhæfingu skipu- lagsyfirvalda að komið hefði verið á samkomlag milli nágrannanna. Veruleg óvissa væri um að byggingar- leyfið væri lögmætt og framkvæmdir við skúrinn því stöðvaðar á meðan úrskurðarnefndin taki málið til endanlegrar meðferðar. Ennfremur var lagt fyrir bæjaryfirvöld að tryggja öryggi á staðnum á meðan stöðvunin er í gildi. Nokkur hundruð stjórnarandstæðingar söfnuðust saman í Moskvu í gær, er rétt ár var liðið frá morðinu á blaðakon- unni Önnu Politkovskaju, sem hafði bakað sér óvild Kremlverja með gagnrýnum skrifum. Á sama tíma fylktu 10.000 liðsmenn ungliðahreyfingar stjórnar- flokksins liði til að fagna 55 ára afmæli Vladimírs Pútín forseta. Fólkið sem minntist morðsins á Politkovskaju, umkringt lög- reglu, kom upp minningarskildi og lagði blómsveig við inngang- inn að blokkinni þar sem blaða- konan bjó og var skotin til bana. Ár frá morðinu á Politkovskaju

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.