Fréttablaðið - 08.10.2007, Qupperneq 36
Í nýjasta tölublaði tónlistartíma-
ritsins Waxpoetics er að finna
grein um básúnuleikarann Samúel
Jón Samúelsson og aðra plötu hans
sem ber nafnið Fnykur. Platan
kom út fyrr á þessu ári en á henni
stjórnar Samúel 18 manna stór-
sveit. Greinarhöfundur er augljós-
lega hrifinn og fer mikinn í lýsing-
um sínum sem birtast undir
fyrirsögninni „Cold Chillin´ – Ice-
land´s Samúel Jón Samúelsson
translates big band into funk“.
Hann hefur greinina á að segja
að tónlist stórsveita sé sjaldan
frumleg heldur einungis endur-
tekning á því sem þegar hefur
verið gert. Hins vegar sé undan-
tekninguna að finna á Íslandi,
landinu sem ól af sér Björk og
Sigur Rós. Hann segir framlag
Íslands til nútímatónlistar vera
talsvert miðað við höfðatölu og að
Samúel hafi sannarlega lagt sitt í
púkkið.
Umfjöllunin endar á þessum
orðum: „Kvenfólkið er heims-
þekkt fyrir útlit sitt og landið
heimsþekkt fyrir náttúrufegurð
sína, fjölda fossa, jökla og virkra
eldfjalla. Stórsveit Samúels er enn
ein ástæða fyrir því að heimsækja
land sem ég er nokkuð viss um að
menn hafi alla tíð ruglað saman
við Grænland.“
Sammi vekur athygli erlendis
Leikarinn George Clooney segist ekki
hafa sagt skilið við akstur mótorhjóla
þótt hann hafi lent í árekstri nýverið
ásamt kærustunni. George, sem brákaði
rifbein þegar slysið varð, segist enn
fara um alla Los Angeles-borg á hjólinu
sínu. „Ég hef lent í þremur slysum á
þeim 30 árum sem ég hef verið á hjóli.
Það er ekki svo slæmt. Ég ætla að halda
áfram,“ segir hann.
Við sama tækifæri sagðist Clooney
ekki vilja vera talsmaður málstaðar
nema hann gæti algjörlega verið honum
trúr. „Annars getur maður hreinlega
skaðað málstaðinn. Ég hef verið beðinn
um að tala fyrir hönd umhverfis-
verndarsinna og er sannarlega hlynntur
því að halda umhverfinu hreinu og
ómenguðu. Ég á tvo bíla sem ganga fyrir
rafmagni en hef líka veikan blett því ég
hef flogið í einkaþotum.“
Clooney sagði auk þess frá því að
Nicole Kidman og Michelle Pfeiffer
hefðu borgað skuld sína við hann, jafn-
gildi rúmlega 600 þúsund íslenskra
króna, en stöllurnar veðjuðu við kapp-
ann að hann yrði genginn út fyrir fer-
tugt. „Ég vann og þær borguðu. Nicole
sendi ávísun. Ég sendi hana til baka og
sagði henni að gefa peningana til
góðgerðamála.“
Clooney ekki hættur að hjóla
Alþjóðlegu kvikmynda-
hátíðinni í Reykjavík var
slitið við formlega athöfn
í aðalhúsi Landsbankans í
Austurstræti á laugardags-
kvöld.
Mikill fjöldi var samankominn
þegar tilkynnt var um verðlaun
hátíðarinnar en það var ungverska
kvikmyndin Ferð Isku eftir Csaba
Bollók sem hlaut aðalverðlaun
hátíðarinnar, Gullna lundann. Hal
Hartley, formaður dómnefndar-
innar, tilkynnti þetta en leikstjór-
inn átti ekki heimangengt og gat
því ekki veitt þeim viðtökum.
Danska kvikmyndin Listin að
gráta í kór var sigursæl á hátíð-
inni en hún fékk sérstök verðlaun
FIPRESCI, alþjóðlegra samtaka
gagnrýnenda, auk þess sem hún
hreppti hin svokölluðu kirkjuverð-
laun sem biskup Íslands, Karl
Sigurbjörnsson, afhenti. Áhorfenda-
verðlaunin féllu í skaut myndar-
innar Stjórn eftir Anton Corbijn en
hún fjallar um ævi söngvara Joy
Division, Ian Curtis, sem stytti sér
aldur aðeins 23 ára. Að lokum fékk
El Ejido eða Lögmál hagnaðarins
sérstök mannréttindaverðlaun
Amnesty International en hún
greinir frá skelfilegum aðbúnaði
innflytjenda á Suður-Spáni sem
vinna við framleiðslu matvæla.