Fréttablaðið - 08.10.2007, Qupperneq 46
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Ég hækka alltaf í útvarpinu
þegar það kemur Led Zeppelin
eða Pixies. Þess á milli er það
bara Villi Vill og Hemmi Gunn.
Maður kemst alltaf í gott skap
að hlusta á Einn dans við mig.“
Akureyringurinn Baldvin Esra
Einarsson hefur stofnað fyrirtækið
Afkimi ehf. sem annast útgáfu og
dreifingu á tónlist, auk tónleika-
halds og ráðgjafar fyrir íslenskan
tónlistariðnað.
Útgáfufyrirtæki sem er rekið
undir hatti Afkima nefnist Kimi
Records. „Þetta er óháð útgáfa og
það er engin sérstök tónlistarstefna
sem er í gangi. Eina markmiðið er
að gefa út tónlist sem mér finnst
góð,“ segir Baldvin Esra, sem er 28
ára. Á meðal væntanlegra platna frá
Kimi Records er fyrsta breiðskífa
Borko sem er gefin út í samvinnu
við þýska útgáfufélagið Morr Music
og önnur plata Morðingjanna.
Baldvin hefur starfað við tón-
leikahald undanfarin ár en vildi
víkka starfsemina út með stofnun
fyrirtækisins. Á næstunni heldur
hann tónleika með Jakobínarínu og
20. október verður haldið Airwaves-
kvöld á Akureyri. Þar munu Buck
65 og Plants and Animals troða
upp.
Baldvin býst við því að vera í tón-
listarbransanum um ókomin ár. „Í
minni nálgun er þetta meira út frá
áhuga heldur en að fara að græða
peninga. Varðandi framtíðina þá
reynir maður bara að taka eitt skref
í einu. Maður sér fram á að geta
unnið við þetta hvaðan sem er, bæði
hér, í Reykjavík eða erlendis. Ég er
með ágætis samstarfsaðila sem
hugsa svipað og ég og ætla að hjálpa
mér að koma þessu á framfæri.“
Ungur athafnamaður á Akureyri
„Ég er mjög ánægður með endur-
komu Péturs Þórs Gunnarssonar.
Aðallega fyrir hönd þeirra sem
voru plataðir, þeir geta þá farið
með sínar fölsuðu myndir og látið
hann selja þær aftur,“ segir Tryggvi
Friðriksson í Gallerí Fold. Frétta-
blaðið greindi frá því í vikunni að
Pétur Þór Gunnarsson hygðist síðar
í þessum mánuði opna nýtt gallerí í
Skipholti.
Pétur Þór var sýknaður í Hæsta-
rétti í stóra málverkafölsunarmál-
inu ásamt Jónasi Freydal Þorsteins-
syni en rannsókn þess máls er með
þeim umfangsmestu í sögu Íslands
og varð mikið fjölmiðlamál. Margir
telja að sá dómur hafi verið klúður
og rangur og að Pétur og Jónas
hefðu átt að vera fundnir sekir.
„Það er enginn titringur í þessum
bransa í ljósi þessara tíðinda en
mér þykir þetta náttúrlega með
ólíkindum. Ef maðurinn hefði verið
með byssuverslun en síðan gerst
brotlegur við byssulög efast ég um
að hann fengi að
opna slíka versl-
un aftur,“ bætir
Tryggvi við og
segir að menn
séu síður en svo
búnir að gleyma
málverkafölsun-
armálinu mikla og
þeim mála-
rekstri
öllum.
Fréttablaðið hafði samband við
nokkra aðila í málverkaheiminum
og það er ljóst að menn skiptast í
tvo hópa hvað endurkomu Péturs
varðar. Kristinn Ágúst Halldórsson
hjá Listamenn Innrömmun segir að
auðvitað séu menn að ræða þetta á
kaffistofum. „Einhverjir úti í þjóð-
félaginu eru eflaust brjálaðir út í
Pétur en frá mínum bæjardyrum
séð er þetta allt í lagi enda eru
menn búnir að taka út sína refsingu
og hafa verið sýknaðir í Hæsta-
rétti. Við eigum í það minnsta
ekkert sökótt við hann,“ segir
Kristinn.
Pétur Þór sagðist vissulega hafa
haft veður af neikvæðum við-
brögðum í skúmaskotum en hann
væri eflaust síðasti maðurinn til að
heyra eitthvað slíkt. „En menn hafa
hringt í mig og óskað mér til ham-
ingju með þetta,“ segir hann og
bætir því við að hann hafi vissulega
gert sér grein fyrir því að þetta
yrði rætt á kaffistofunum. „Að
mínu mati er þetta hins vegar
þröngur hópur og þetta fölnar í
samanburði við stóra Randvers-
málið,“ segir Pétur en til gamans
má geta að fyrsta sýningin í nýja
galleríinu verður á verkum eftir
Pétur Þór.
Þær Berghildur Bernharðsdóttir
og Ásta Sól Kristjánsdóttir fylgd-
ust með ungri íslenskri stúlku sem
er alvarlega veik af átröskun í
heimildarmynd sinni Lystin að lifa.
„Maður hefur séð hvaða áhrif
horaðar fyrirmyndir úr tískuheim-
inum og fjölmiðlum hafa á ungt
fólk í dag. Þannig kviknaði hug-
myndin að myndinni. Okkur lang-
aði að segja sögu manneskju sem
hefur barist við átröskun á per-
sónulegan hátt,“ segir Berghildur.
„Við gerðum allt sjálfar frá A-Ö
hvað varðar tökur, handrit, hljóð
og klippingu. Hvorug okkar hafði
gert heimildarmynd áður en báðar
höfum við snert á einu og öðru því
tengdu.“
Lystin að lifa fjallar um unga
íslenska stúlku sem hefur verið
með átröskun í langan tíma. Í
myndinni fylgjast áhorfendur með
hæðum og lægðum í lífi hennar
auk þess sem fjölskylda hennar er
tekin tali. „Ég held að myndin komi
til með að vekja mikla umræðu um
þetta vandamál. Við hófum tökur í
desember á síðasta ári og erum í
raun búnar að vinna jafnt og þétt í
myndinni síðan. Við skiluðum
henni til RÚV í byrjun september.
Það eru endalausir þræðir sem
þarf að ganga frá þegar verið er að
gera svona heimildarmynd,“ segir
Berghildur en myndin verður sýnd
í Sjónvarpinu 14. október.
„Það eru ofboðslega margir sem
glíma við þennan sjúkdóm og þetta
er stórt vandamál,“ segir Berg-
hildur. „Tölum ber ekki saman um
hversu margir en nýlega las ég að
níu prósent ungs fólks þjáðist af
einhvers konar átröskun. Það má
heldur ekki gleyma því að þetta er
einn alvarlegasti geðsjúkdómur
sem til er þegar fólk er orðið langt
leitt.“ Berghildur segir ekki hafa
reynst erfitt að finna þátttakanda í
myndina. „Við vorum í mjög góðu
samstarfi við Forma-samtökin.
Þær bentu okkur á þessa stúlku
sem var tilbúin að segja sögu sína í
forvarnarskyni.“
Gerðu heimildarmynd um átröskun