Fréttablaðið - 10.10.2007, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 10.10.2007, Blaðsíða 17
Fimmtán gljáandi, urrandi Harley Davidson- mótorfákar með íslenskum knöpum brunuðu um hlykkjótta sveitavegi austurrísku Alpanna í september. „Mótorhjólaklúbburinn HOG stendur fyrir Harley Owners Group og er stærsti mótorhjólaklúbbur ver- aldar með yfir milljón meðlimi,“ segir Jón Örn Vals- son, framkvæmdastjóri Harley Davidson Íslandi, sem ásamt fimmtán meðlimum í Íslandsdeild HOG gekk frá hjóli sínu í gám til Frankfurt, þaðan sem brunað var á hjólunum niður Móseldalinn í átt til austurrísku Alpanna. „Íslandsdeild HOG fer utan ár hvert, ásamt því að reiða farþega í kringum Tjörnina á menningarnótt til styrktar langveikum börnum. Nú fórum við á Harley- mót til Faak am See, austurrísks fjallaþorps í 550 metra hæð. Alls mættu 50 þúsund manns, en í Ölpun- um er ekki þverfótað fyrir mótorhjólafólki í eftir- sóknarverðum aðstæðum þar sem hægt er að keyra upp og niður hlykkjótta vegi innan um stórkostlegt landslag og vinalega smábæi,“ segir Jón Örn sem skrapp yfir í ítalska hluta Alpanna og til Ljúblíana í Slóveníu meðan á mótinu stóð. „Það er mikil stemning í þessum ferðum. Við forð- umst hraðbrautir eins og heitan eldinn því það er hundleiðinlegt ferðalag þar sem ekki sést landslag og aðeins stoppað á bensínstöðvum. Svona ferðalag snýst um hjólaleiðina að áfangastað og til baka, en það er mótorhjóladellan í okkur að vera á góðum hjólum á mismjóum, bugðóttum sveitavegum. Maður upplifir náttúruna beint í æð, eins og alla lykt, hvort sem hún er af nýsleginni töðu eða kúaskít,“ segir Jón Örn hlæj- andi, en að meðaltali ók hópurinn 250 kílómetra leið á dag. „Við áttum einungis bókaða gistingu fyrstu og síð- ustu nótt ferðarinnar. Því var ekkert stress að keyra á milli náttstaða heldur létum við hvern dag ráðast og stoppuðum í hvert sinn sem eitthvað freistaði,“ segir Jón Örn sem eignaðist sína fyrstu skellinöðru tólf ára gamall. „Gamla ímynd mótorhjólamannsins er á hröðu und- anhaldi, en lengi þótti annars flokks að vera á mótor- hjóli og ógleymanlegt þegar fjörutíu Sniglar fylgdu félaga sínum heim í Mosfellsbæinn og kona hringdi á lögregluna. Í dag eru Harley-eigendur allt frá lægsta launamanni til skurðlækna, milljónamæringa og þing- manna, og allir tala saman á jafnréttisgrundvelli. Harley sameinar fólk og hjólamenn heilsast þegar þeir mætast hér heima og ytra, því þetta er bræðra- lag. Mótin eru svo ekkert annað en stór partí þar sem skiptast á sýningar og böll með rokkhljómsveitum og fjöri. Þess vegna er maður æstur að fara aftur, ár eftir ár, til að njóta ferðalags, hjólamennsku og þess að vera í góðra vina hópi.“ Kúaskítur beint í æð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.