Fréttablaðið - 10.10.2007, Blaðsíða 26
Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5000.
„Öll verk skipta mig máli,
hvort heldur þau eru lítil
eða stór.“
Frumkvöðlakeppni íslenskra háskóla-
nema hefst í dag og er þetta er í fyrsta
sinn sem keppnin fer fram. Í tilefni
keppninnar er staddur hér á landi
Kenneth P. Morse, framkvæmdastjóri
frumkvöðlaseturs við tækniháskólann
MIT í Bandaríkjunum, en þaðan er
fyrirmyndin komin.
Keppnin er í höndum Innovit sem er
sjálfstætt starfandi nýsköpunar- og
frumkvöðlasetur fyrir unga frum-
kvöðla. Andri Heiðar Kristinsson er
framkvæmdastjóri setursins sem var
formlega stofnað í september síðast-
liðnum. Sambærileg keppni hefur fest
sig veglega í sessi í Bandaríkjunum
og markmiðið er að sú íslenska verði
að árlegum viðburði. Að sögn Andra
er keppnin þríþætt. „Allar hugmynd-
ir verða teknar til greina. Síðan verða
valdar hugmyndir sem fara áfram í
þróunarferli þar sem boðið er upp á
ráðgjöf og aðstoð. Úr þessum hópi eru
síðan sigurvegararnir valdir og þá
eru vegleg verðlaun í boði,“ útskýrir
Andri sem mun kynna bæði verðlaun,
dómnefnd og frekara fyrirkomulag á
Hilton Reykjavík Nordica hótelinu kl.
14.00 í dag.
Að sögn Andra hefur bandaríska
keppnin markað upphafið að fjöl-
mörgum þekkingarfyrirtækjum vest-
anhafs. „Samanlagt markaðsvirði fyr-
irtækjanna hefur hæst numið um 20
milljörðum bandaríkjadollara eða yfir
1.200 milljörðum íslenskra króna!“
Keppnin er opin háskólanemum og
þeim sem hafa stundað háskólanám
síðastliðin fimm ár.
„Við vonum að hugmyndirnar verði
innan misjafnra sviða enda mín skoð-
un að tækifærin liggi mjög víða. Sér-
staklega þegar ólíkum sviðum er
blandað saman,“ segir Andri og heldur
áfram. „Við hugsum þetta sem reynslu
sem nýtist fólki í atvinnulífinu hvort
heldur það verði að litlu sprotafyrir-
tæki eða stórri samsteypu.“
Markmið Innovit er að leggja sitt af
mörkum til að Ísland verði þekkingar-
þjóðfélagi í fremstu röð og keppnin er
liður í því. „Við stöndum langt að baki
samkeppnisþjóðum varðandi frum-
kvöðlastarfsemi háskólamenntaðra.
Þetta hlutfall er tvöfalt hærra í Banda-
ríkjunum, Bretlandi og Norðurlöndun-
um og skilar sér í mun fleiri þekking-
ar- og hátæknifyrirtækjum,“ útskýr-
ir Andri og bætir við: „Við vonum að
keppnin bæti þetta hlutfall og verði
jafnframt kraftmikill og skapandi
vettvangur fyrir háskólamenntað
fólk.“
Á fundinum í dag mun Innovit jafn-
framt skrifa undir þriggja ára sam-
starfs- og styrktarsamninga við Lands-
banka Íslands, Samtök iðnaðarins, Ný-
sköpunarsjóð atvinnulífsins, Háskóla
Íslands, Háskólann í Reykjavík og Há-
skólann á Bifröst.
Allar nánari upplýsingar: www.inn-
ovit.is.
Fridtjof Nansen fæðist
50 ára afmæli
Einar Sveinn
Ólafsson
Rekstrarstjóri
Verður 50 ára í dag, 10. október.
Til heimilis að Skipalóni 26,
Hafnarfirði.
Áskær móðir okkar,
Anna Soffía Hákonardóttir
Austurbrún 2, Reykjavík,
andaðist á Landspítala Fossvogi að morgni 7. október.
Jarðarför verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
börn hinnar látnu.
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir og amma,
Margit Sofie Jónsson
er látin. Athöfnin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Árni L. Jónsson
Lýður Árnason
Íris Sveinsdóttir
Laufey, Lovísa og Karólína Lýðsdætur.
Ragnar Sigurmundsson
vélstjóri, frá Svínhólum í Lóni, áður til
heimilis að Strandgötu 67a, Eskifirði,
lést 4. október að Hulduhlíð. Útförin fer fram frá
Eskifjarðarkirkju laugardaginn 13. október kl. 14.00.
Sigríður Rósa Kristinsdóttir
Hafdís Þóra Ragnarsdóttir Júlíus Ingvarsson
Sigrún Ragna Ragnarsdóttir Helgi Jónsson
Kristján Ragnarsson Katrín Guðmundsdóttir
Kristinn Jóhannes Ragnarsson Halla Ósk Óskarsdóttir
Guðný Hallgerður Ragnarsdóttir Jón E. Guðmundsson
Kristján B. Sigurðarson
Sigurmundur Víðir Ragnarsson
Áslaug Ragnarsdóttir Guðlaugur Sæbjörnsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæra eiginkona, móðir, dóttir og
systir,
Jóhanna Þorbjörnsdóttir
lést á Krabbameinsdeild Landspítalans sunnudaginn 7.
október. Jarðarför fer fram frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 17. október kl. 13.00.
Guðjón Gíslason
Helena Kristinsdóttir
Rakel Guðjónsdóttir
Alexandra Guðjónsdóttir
Karlotta Guðjónsdóttir
Þorbjörn Jónsson Magðalena Axelsdóttir
Sandra Þorbjörnsdóttir Jónas Helgason
Jón Arnar Þorbjörnsson Berglind Bragadóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir, afi og langafi,
Haukur Matthíasson
Sóltúni 5, Reykjavík,
sem lést laugardaginn 6. október á Landakotsspítala,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstudaginn
12. október kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hins látna er
bent á FAAS, félag aðstandenda Alzheimersjúklinga.
Sími 898-5819 og 533-1088.
Arnfríður Aradóttir
Matthías Pétur Hauksson Janet Monsen
Arnar Páll Hauksson Aldís M. Norðfjörð
Ásrún Hauksdóttir Torstein Tveiten
Ari Jóhannes Hauksson Sólveig Magnúsdóttir
barnabörn og langafabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Kristinn R. Sigurjónsson,
lést á heimili sínu, Ásbraut 7, Kópavogi, föstudaginn
5. október. Útförin verður gerð frá Langholtskirkju
fimmtudaginn 11. október og hefst athöfnin kl. 13.00.
Ragna Halldórsdóttir
Steinunn Kaldal Kristinsdóttir Reidar J. Kolsöe
Halldór Kristinsson
Fríða S. Kristinsdóttir Vilhjálmur H. Vilhjálmsson
Guðbjörg K. Kristinsdóttir Ingólfur Ragnar Ingólfsson
Kristinn R. Sigurbergsson Helga Guðrún Jónasdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.